18.03.1971
Neðri deild: 64. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 2139 í B-deild Alþingistíðinda. (2279)

Hæstaréttardómur í handritamálinu

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti.

Mér þykir rétt að skýra frá því, að fyrir andartaki var mér að berast skeyti frá Danmörku um það, að fyrir hálfri klukkustund hafi hæstiréttur kveðið upp dóm í handritamálinu. Hljóðar dómurinn á þá lund, að danska ríkið sé ekki skaðabótaskylt gagnvart stofnun Árna Magnússonar og þess vegna geti undirbúningur að afhendingu handritanna hafizt og málinu sé nú lögfræðilega og pólitískt lokið. Þetta eru mikil ánægjutíðindi fyrir okkur Íslendinga. Mig langar að nota tækifærið um leið og þessi vitneskja berst, til að láta í ljós sérstakar þakkir til þjóðþings Dana, til dönsku ríkisstjórnarinnar og dönsku þjóðarinnar fyrir þann einstaka höfðingsskap, sem hún hefur sýnt Íslendingum í þessu máli og mun verða til þess að treysta vináttu íslendinga og Dana meira en nokkuð annað, sem gerzt hefur í samskiptum þeirra um langan aldur. Enginn vafi er á því, að þessi fregn mun vekja þjóðarfögnuð á Íslandi, og ég vona, að þessi orð, sem ég hef nú mælt, hafi ég mælt fyrir munn allra Íslendinga. Þegar handritin koma til Íslands munu íslenzk stjórnarvöld að sjálfsögðu gera ráðstafanir til þess, að þau verði rannsökuð eins og efni standa til, og mér þykir rétt að endurtaka þá yfirlýsingu, sem áður hefur verið gefin af hálfu íslenzkra stjórnvalda, að þau telja sér það ljúfa skyldu að sjá til þess, að erlendir fræðimenn, og þá einkum og sér í lagi danskir, fái ákjósanlega aðstöðu til þess að stunda rannsóknir á handritunum áfram í Handritastofnun Íslands.

Ég endurtek síðan þau orð mín, að Íslendingar þakka danska þjóðþinginu, dönsku stjórninni og dönsku þjóðinni allri afstöðu hennar og aðgerðir í þessu máli.