19.10.1970
Neðri deild: 3. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 2142 í B-deild Alþingistíðinda. (2285)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík, 20. okt. 1970.

Jónas G. Rafnar, 2. þm. Norðurl. e., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varaþm. Sjálfstfl. í Norðurl. e., Gísli Jónsson menntaskólakennari, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Jón Þorsteinsson,

forseti Ed.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Fyrir liggur kjörbréf Gísla Jónssonar menntaskólakennara og vil ég biðja kjörbréfanefnd að taka það til rannsóknar. Á meðan verður gert fundarhlé.