19.10.1970
Neðri deild: 3. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 2143 í B-deild Alþingistíðinda. (2286)
Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
Frsm. (Matthías Á. Mathiesen):
Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur haft til athugunar kjörbréf Gísla Jónssonar menntaskólakennara, sem er 1. varamaður Sjálfstfl. í Norðurl. e., en eins og lesið var upp hér áðan hefur Jónas G. Rafnar, 2. þm. Norðurl. e., óskað eftir fjarvistarleyfi og að varamaður taki sæti í stað hans. Kjörbréfanefndin mælir með, að kosning varaþm. verði tekin gild og kjörbréfið verði samþykkt.