11.11.1970
Neðri deild: 16. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 2145 í B-deild Alþingistíðinda. (2293)
Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
Forseti (GunnG):
Svo hljóðandi bréf hefur borizt:
„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður landsk. þm. Alþfl., Unnar Stefánsson viðskiptafræðingur, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Sigurður Ingimundarson,
1. landsk. þm.
Til forseta neðri deildar.“
Kjörbréf Unnars Stefánssonar hefur áður verið rannsakað og tekur hann sæti á þingi sem 1. landsk. þm. og býð ég hann velkominn til starfa.