18.12.1970
Efri deild: 40. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 2159 í B-deild Alþingistíðinda. (2337)
Þingfrestun og setning þings að nýju
Björn Jónsson:
Herra forseti. Ég vil leyfa mér fyrir hönd þdm. að þakka hæstv. forseta fyrir hans vinsamlegu orð og góðu óskir í garð okkar þdm. Ég vil einnig tjá honum sérstakar þakkir fyrir forsetastörf hans, sem að okkar dómi hafa verið unnin með ágætum og réttlæti. Ég vil, og ég veit að ég mæli þar fyrir munn okkar allra, óska hæstv. forseta og fjölskyldu hans gleðilegrar jólahátíðar og allrar farsældar á komandi ári og að við megum hitta hann heilan á húfi, er þingstörf hefjast aftur að loknu jólaleyfi. Ég vil biðja hv. þdm. að taka undir orð mín með því að rísa úr sætum. —