07.04.1971
Efri deild: 97. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 2162 í B-deild Alþingistíðinda. (2350)
Starfslok deilda
Björn Jónsson:
Herra forseti. Ég leyfi mér fyrir hönd okkar þdm. að þakka hæstv. forseta fyrir hans vinsamlegu orð og hlýju óskir í okkar garð. Um leið vil ég tjá honum þakkir okkar fyrir forsetastörf hans bæði á þessu þingi, sem nú er að ljúka, og öllum þeim árum, sem hann hefur gegnt þessari virðingarstöðu með alkunnum sóma, þar sem saman hefur farið einstök ljúfmennska, réttsýni og virðuleiki. Ég vil, og ég veit að ég mæli þar fyrir munn okkar allra, óska hæstv. forseta og fjölskyldu hans allrar farsældar og hamingju í framtíðinni og sé ástæðu til að leggja á þær óskir sérstaka áherzlu nú, þar sem svo stendur á, að hæstv. forseti hverfur að loknu þessu kjörtímabili af þingi í bili, þar sem hann hefur átt lengi sæti við góðan orðstír. Ég vil biðja hv. þdm. að rísa úr sætum og taka þannig undir orð mín. — [Dm. risu úr sætum.]