23.11.1970
Neðri deild: 22. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 5 í C-deild Alþingistíðinda. (2371)

133. mál, Fiskiðja ríkisins

Flm. (Jónas Árnason):

Herra forseti. Ég leyfi mér að vekja athygli hæstv. forseta og hv. þm. á því, að það hefur orðið prentvilla í dagskrá þessarar hv. deildar í dag, 11. málið á dagskránni, þ.e.a.s. 133. mál í Nd, á þskj. 163 heitir ekki frv. til laga um Fiskiðjuver ríkisins, heldur frv. til laga um Fiskiðju ríkisins. Það má segja, að þeim, sem sáu um prentun dagskrárinnar sé nokkur vorkunn, að hafa ruglað titli þessa þingskjals saman við hliðstæða titla á öðrum þskj. og þetta leiðir hugann að þeirri miklu vinnugleði, sem ríkir hér á þessu þingi.

Hér í umr. áðan var aðeins á þetta drepið. Hv. þm. Hannibal Valdimarsson fór hörðum orðum um það, að hv. 8. landsk. þm. Steingrímur Pálsson hefði tekið ófrjálsri hendi tiltekið frv. Ég ætla ekki að blanda mér í þær umr., en ég skrifaði eftir hv. þm. Hannibal Valdimarssyni eina setningu. Hann var að ræða um það, að hann hefði tvisvar eða þrisvar flutt þetta mál áður. Síðast, að ég hygg, fyrir 2—3 árum, þá kemur honum það til hugar að flytja það enn, en ræðir svo málið við hv. þm. Steingrím Pálsson og nú sagði hv. þm. Hannibal Valdimarsson, „þá fól ég honum að flytja þetta mál.“ Mér er ekki kunnugt um, að þær reglur ríki í þingflokki Alþb., að einn eða annar þm. geti falið einum eða öðrum þm. að gera hitt eða þetta. Það er ekki svo langt síðan hv. þm. Hannibal Valdimarsson sagði skilið við þingflokk Alþb., að hann ætti að muna þetta. Það gætu jafnvel komið upp grunsemdir um það, að skortur á slíku valdi hafi verið eitt af því, sem olli því, að hann fór úr flokknum. (Gripið fram í.) Ég er ekki að ræða um höfundarrétt, aðeins um þær reglur, sem gilda um samskiptí þm. í þingflokki Alþb.

Við Alþb menn hér á þessu þingi höfum haft nokkuð svipaða sögu að segja og hv. þm. Hannibal Valdimarsson hér áðan á þessu þingi, þar sem vinnugleðin ríkir. Sú vinnugleði er nú reyndar svo mikil hjá sumum, að þeir verða endilega að flytja þau sín sömu mál, sem aðrir þm. hafa þegar flutt, sbr. til að mynda dagskrá þessarar hv. d. í dag. 1. liður hennar heitir: „Rannsókn aðdraganda verðstöðvunar.“ 2. liður heitir: „Rannsókn á verðhækkun.“ Hér er í aðalatriðum um nákvæmlega sama málið að ræða, þó að fyrirsögnin sé ekki nákvæmlega hin sama. En fyrirsögnin er oft á tíðum alveg hin sama, sbr. enn dagskrá þessarar hv. d. í dag. 5. liður heitir: „Eyðing refa og minka“. 6. liður heitir líka: „Eyðing refa og minka“.

En í þessu flóði till. og frv. sjáum við Alþb: menn óneitanlega æði oft birtast mörg gömul baráttumál okkar, flutt af þm. annarra flokka. Þetta er okkur að sjálfsögðu mikið ánægjuefni, að slíkur áhugi skuli vera vaknaður hjá þm. fyrir málum okkar, því að þetta eru allt saman góð mál og þörf.

Í frv. því, sem hér liggur fyrir, um Fiskiðju ríkisins, felst gamalt baráttumál okkar Alþb. manna. Frv. hefur þegar verið þrisvar flutt af okkar hálfu í þeirri mynd, sem það birtist hér. Flm. þess var Ragnar Arnalds, en það náði ekki fram að ganga. En nú á þessu atorkusama þingi, þá hefur málið einnig birzt í mjög svipuðu formi í frv., sem einn þm. stjórnarflokkanna, einn hv. þm. Alþfl., flytur í Ed. Það frv. heitir: „Frv. til laga um fiskvinnslustofnun ríkisins.“

Ég sagði hér áðan, að það væri engin furða, þó að þeir, sem eiga að ganga frá prentun dagskrár, ruglist á titlum hinna ýmsu mála, sérstaklega þegar þau eru svo skyld og það skyldi þó ekki vera, að á leiðinni væri frv., sem héti, eins og segir í dagskrá í dag: „Frv. til laga um Fiskiðjuver ríkisins.“ En í þessu frv., sem hér liggur fyrir, er eitt atriði, sem við Alþb.-menn höfum löngum lagt mikla áherzlu á. Það er nauðsyn á menntun, sérstaklega til verkstjórnar og annarra starfa í fiskiðnaði, — þetta atriði nýtur nú svo mikils skilnings hér á hinu háa Alþ., að krafan um fiskiðnskóla er fram borin æ ofan í æ af ágætum mönnum úr öllum flokkum. Guð láti nú allt þetta gott á vita.

Af ástæðum, sem ég hef þegar nefnt, það er vegna endurtekinnar kynningar á efni þessa frv. hér á hinu háa Alþ., ætti ekki að þurfa að hafa um það mörg orð að þessu sinni. Við Íslendingar stöndum, eins og allir vita, langt að baki nágrannaþjóðum okkar í fullvinnslu matvæla úr sjávarafurðum. Sú iðngrein má heita, að hafi staðið í stað áratugum saman, þó að afli hafi hins vegar stór aukizt. Ríkisvaldið hefur lítið sem ekkert aðhafzt til þess að bæta úr þessu, en við svo búið má ekki lengur standa. Ríkisvaldinu ber skylda til að skipuleggja og skapa skilyrði til stóraukinnar fullvinnslu afurða úr sjó og þetta frv. er flutt með það sjónarmið í huga. Í frv. er gert ráð fyrir því, að niðurlagningarverksmiðjan á Siglufirði verði fullbyggð og búin þeim tækjum, sem þar eiga að vera, svo að hún geti starfað eðlilega og gegnt því hlutverkí, sem Alþ. ætlaði henni í upphafi. En frv. gerir einnig ráð fyrir því, að áfram verði haldið á sömu braut. Með 1. gr. er lagt til, að stofnað verði sérstakt ríkisfyrirtæki, sem beri nafnið „Fiskiðja ríkisins“, og starfi undir sérstakrí stjórn, sem Alþ. kjósi. Þetta nýja fyrirtæki, sem mundi strax taka við niðurlagningar verksmiðjunni á Siglufirði, taki síðan að sér það hlutverk að hafa forustu um tilraunastarfsemi við frystingu, niðurlagningu, niðursuðu og hvers konar fullvinnslu matvæla úr síld og öðrum fisktegundum í samvinnu við Rannsóknastofnun fískiðnaðarins. Fiskiðjan mundi einnig miðla reynslu og þekkingu til annarra framleiðenda á þessu sviði, og yrði þá að því stefnt, eins og gert er ráð fyrir í 2. gr. frv., að sett yrði á stofn sérstök rannsóknadeild, sem hefði með höndum vísindalegar mannsóknir í niðurlagningar— og niðursuðutækni.

Í 2. gr. frv. er einnig gert ráð fyrir, að Fiskiðja ríkisins hafi forustu um öflun markaða erlendis. Markaðsöflun hefur, eins og allir vita, verið í molum á þessu sviði. Úr því þarf að bæta og reynslan sýnir, að það verður naumast gert á annan hátt en þann, að ríkisvaldið hafi þar forustu. Til þess að auðvelda framgang þeirra mála er gert ráð fyrir því í 2. gr., að Fiskiðjan beiti sér fyrir myndun sölusamtaka, sem annist sölu á fullunnum fisktegundum í ýmsum tegundum umbúða undir einu íslenzku vörumerki. Í þessari gr., þ.e.a.s. 2. gr., er einnig minnzt á fræðslumál fiskiðnaðarins, en það viðurkenna allir, að þau eru í hinum mesta ólestri. En ef á fót kemst sá fiskiðnaðarskóli, sem margir ágætir menn berjast nú fyrir hér á hinu háa Alþ., þá ætti að sjálfsögðu að vera sæmilega séð fyrir lausn þess vanda.

Ég skal svo ekki hafa þessi orð fleiri, en með þessu frv. er í stuttu máli stefnt að því að niðursuðuiðnaður verði ekki lengur hornreka í íslenzku atvinnulífi, heldur verði hafizt handa um að gera hana á landsmælikvarða með víðtækri markaðsöflun og skipulagningu — gera þennan iðnað að því, sem allar aðstæður leyfa að hann verði og krefjast raunar, að hann verði, þ.e. einn af grundvallaratvinnuvegum þjóðarinnar. Ég legg svo til, að frv. verði, að lokinni þessari umr., vísað til 2, umr. og sjútvn.