08.03.1971
Efri deild: 59. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 32 í C-deild Alþingistíðinda. (2401)

39. mál, ráðgjafar- og rannsóknarstofnun skólamála

Einar Ágústsson:

Herra forseti. Ég á nú sæti í menntmn., sem leggur það til, að þessu frv. um ráðgjafar— og rannsóknarstofnun skólamála verði vísað til hæstv. ríkisstj. og ég hef ekki neitt við það að athuga, að sú málsmeðferð verði viðhöfð. Þetta er nú í annað skipti, sem ég og hv. 2. þm. Austf. og hv. 1. þm. Norðurl. v. flytjum frv. um ráðgjafar— og rannsóknarstofnun skólamála og tilgangurinn með þeim frv. flutningi var að koma á slíkri stofnun. Nú hefur hæstv. ríkisstj. lagt það til í frv: formi, sem að vísu verður nú ekki afgreitt á þessu þingi, að bæði þessi atriði verði tekin upp í sambandi við þá grunnskóla, sem hér á að koma á fót. Tilganginum er þess vegna að verulegu leyti náð með flutningi frv.

Hv. 10. þm. Reykv. sagði, að það mundi að líkindum ekki fara saman þær till., sem frv. gerir ráð fyrir annars vegar og svo þær hugmyndir, sem höfundar grunnskóla lagafrv. hafa um skipan þessara mála hins vegar. En svo vel vill til, að þau fara mjög vel saman og ég hygg, að menn þurfi nú ekki mjög lengi að skoða þessi frv. til þess að kynna sér það.

Um skólarannsóknirnar, sem eru annað meginatriði okkar frv., er fjallað í 8. kafla frv. um grunnskóla. Þar segir, að í menntmrn. skuli vera deild, sem hefur með höndum gerð áætlana um umbætur í starfi skólarannsókna og umbætur í starfi skóla, mat og endurskoðun námsmarkmiða og námsefnis, gerð staðlaðra prófa, endurskoðun námsskrár, undirbúning í samvinnu við Ríkisútgáfu námsbóka að útgáfu kennslubóka í þeim námsgreinum, sem deildin hefur til endurskoðunar, kennslufræðilegt leiðbeiningarstarf og till. um kennaranámskeið og nýjungar í kennaranámi í samráði við Kennaraskóla Íslands. Um þetta fjallar b–liður 2. gr. frv. okkar og þar eru svo til með alveg sama orðalagi talin upp þau verkefni, sem skólarannsóknir eiga að hafa. Þetta er eðlilegt, þar sem starf þeirra er að nokkru leyti byggt á þeirri reynslu, sem fengizt hefur af skólarannsóknadeild menntmrn., einungis stendur til að stórauka þetta starf.

Sama má að verulegu leyti segja um sálfræðiþjónustuna. Um hana fjallar 14. kafli grunnskólafrv. og þar segir, að koma skuli á ráðgjafar– og sálfræðiþjónustu fyrir grunnskóla og að sálfræðideild skuli vera við hverja fræðsluskrifstofu landsins. En í okkar frv. segir um þetta, að þegar ákveðin eru starfssvæði sálfræðinga og félagsráðgjafa, er starfa á vegum stofnunarinnar, skal hafa hliðsjón af umdæmum námsstjóra. Stefnt skal að því, að þessir starfsmenn verði búsettir hver á sínu starfssvæði og verkefnið er skilgreint í a—lið frv. þess, sem hér um teflir og það er nánast alveg það sama og 14. kafli grunnskólafrv. telur upp, aðeins með örlítið breyttu orðalagi.

Ég held því, að flm. frv. um ráðgjafar— og rannsóknarstofnun skólamála megi eftir atvikum vel við una þá afgreiðslu, sem hér stendur til að framkvæma. Ég vona, að það þing, sem kemur eftir þetta,- og þeir hv. þdm., sem sæti koma til með að eiga á því þingi, sýni þessu máli verðskuldaðan áhuga og hjálpi til við að koma a.m.k. þessum hluta frv. um grunnskóla í framkvæmd, því að á því hygg ég, að sé full þörf. Einu atriðinu er með nokkuð öðrum hætti fyrir komið heldur, en ráð er fyrir gert í frv. okkar. Við gerðum ráð fyrir því, að kostnaður við þessa starfsemi yrði að öllu leyti greiddur úr ríkissjóði. Eins og nú er, þá er skólarannsóknadeildin kostuð algerlega af ríkissjóði, annar helmingur þessa verkefnis, en sálfræðiþjónustan að öllu leyti af skólahéruðunum. Og afleiðingin hefur orðið sú, að sálfræðiþjónusta er mjög óvíða til, nánast hvergi nema í Reykjavík og að nokkrum hluta í Reykjaneskjördæmi, þar sem sveitarfélögin þar hafa komið sér saman um og ráðið einn sálfræðing til þess að gegna þessum störfum. Þegar þetta frv. var til meðferðar hér við 1. umr. í fyrra, þá lýsti hæstv. menntmrh. því sem sinni skoðun, að sálfræðiþjónustan skyldi áfram vera verkefni sveitarfélaganna. Nú sé ég mér til ánægju, að horfið er frá þessari skoðun, því að í frv. um grunnskóla er gert ráð fyrir því, að sálfræðiþjónustan verði kostuð að hálfu af ríki og að hálfu af sveitarfélögum, sem sagt farið með það eins og annan skólakostnað, eins og flestir geta séð við lestur frv. Ég tel þetta til mikilla bóta og auðvitað til stórbóta, að það sé lögfest, að sálfræðiþjónusta skuli vera í fræðsluhéruðunum, því að framhald á þeirri braut, sem farin hefur verið, mundi ekki leiða til heppilegs fyrirkomulags þessara mála, eins og ég sýndi fram á, að ég hygg, nokkuð rækilega, þegar þetta frv. var hér til 1. umr. fyrr í vetur.

Ég skal ekki gera þessi mál frekar að umtalsefni. Það er ljóst, að verkefni þessa Alþ. bíða næsta þings og það gefst tækifæri til þess að ræða þau þar fyrir þá, sem hér verða þá. En ég vildi, að þetta kæmi fram í sambandi við þessa afgreiðslu málsins, að ég er manna ófúsastur til þess að fela hæstv. ríkisstj. meðferð þeirra frv., sem ég hef flutt hér á þingi og margsinnis lýst því, en í þetta skipti tel ég þó, að hægt sé að sætta sig við þá afgreiðslu, með því að eðlilegt má telja, að þessi þáttur skólastarfsins bíði heildarathugunar eins og aðrir þættir.