08.03.1971
Neðri deild: 58. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 60 í C-deild Alþingistíðinda. (2427)
144. mál, námslán og námsstyrkir
Frsm, minni hl. (Magnús Kjartansson) :
Herra forseti. Hæstv. menntmrh. sagði, að ég væri ekki lukkulegur, eins og hann komst að orði yfir því, að hæstv. ríkisstj. hefði orðið við öllum kröfum námsmanna og Lánasjóðsins í sambandi við fjárveitingu á síðustu fjárlögum. Af hverju markar hæstv. ráðh., að ég sé ekki lukkulegur með það? Hann er að reyna að búa til þá kenningu, að hér sé maður, sem hafi einhverja ánægju af erfiðleikum, vanefndum og lélegum vinnubrögðum hjá hæstv. ríkisstj. En ég held, að við hv. þm. séum ekki þannig skapi farnir — enginn okkar.
Það var vissulega ánægjulegt, að hæstv. ríkisstj. tók myndarlegar á þessum málum, en hún hafði gert um langt skeið. En því miður spratt þetta nú ekki upp úr góðum vilja hæstv. menntmrh. Til þess að þessi árangur næðist, þá þurftu námsmenn sjálfir að heyja mjög harða baráttu. Þeir urðu að vekja athygli á vandamálum sínum utan þingsins og stundum með mjög óvenjulegum aðgerðum. Ég geri ráð fyrir því, að æði margir þm. muni eftir orðaskiptum, sem urðu hér á Alþ. af því tilefni, þegar þessi hæstv. ráðh. kom hér upp í stólinn og hafði hreinlega í hótunum við námsmenn, að þeir skyldu hafa verra af, ef þeir leyfðu sér að hegða sér, eins og þeir gerðu. Þessar hótanir frá þessum hæstv. ráðh. og raunar fleiri ráðh. voru hæstv. ríkisstj. til fullkominnar vansæmdar. Hitt er svo sjálfsagt að meta að verðleikum, að hæstv. ríkisstj. tók sig á. Henni vitraðist sú staðreynd, að kröfur námsmanna voru eðlilegar og hún ákvað að fallast á þær. Þetta er vissulega fagnaðarefni.
Hitt er ekki eins ánægjulegt, ef hæstv. ríkisstj. ætlar að stöðvast á þessum punkti, einmitt þegar hún getur tekið ákvörðun um að ná markinu á stuttum tíma Ef hæstv. ríkisstj. ætlar að hætta aftur, þar sem hún er nú komin, þá er hún að bjóða heim vaxandi óróa á nýjan leik, ekki vegna þess að námsmenn hafi neina ánægju af því að standa í slíku stríði, heldur vegna þess að margir þeirra eru þannig settir, að þeir komast ekki hjá því, ef þeir eiga ekki að hætta námi í miðjum klíðum og lenda í miklum persónulegum vanda. Þetta er fullkomið alvörumál.
Það er algerlega rangt, sem hæstv. ráðh. sagði, að það hefði verið samkomulag hér á Alþ., að ekki skyldi setja inn í l. ákvæði um, að þau skyldu ná tilgangi sínum á vissu árabili. Bæði í Nd. og Ed. voru fluttar brtt. við l. þegar í upphafi um þetta atriði. Þær voru hins vegar felldar. Ég rakti þetta, þegar ég mælti fyrir þessu frv. fyrr á þessu þingi. Ég man ekki málavexti, þannig að ég geti farið með þá, en þetta er öruggt. Og það er einnig öruggt, að Stúdentaráð Háskólans sendi hingað til Alþ. einmitt beiðni um það, að slík ákvæði væru í l., enda eru það skynsamleg vinnubrögð, ef Alþ. ætlar að ná tilteknu takmarki á vissu árabili, að þá sé gerð áætlun fram í tímann og síðan unnið að því að fullkomna hana. Það er ákaflega margt, sem kallar að í sambandi við afgreiðslu fjárlaga og fjárveitingar og þá er í mörg horn að líta. Þess vegna er nauðsynlegt, að ef Alþ. vill byggja upp tiltekinn sjóð og láta hann ná markmiði sínu, þá sé gerð áætlun fram í tímann, sem Alþ. geti stuðzt við og það er það, sem við leggjum hér til og áætlunin í till. okkar er ekki óraunsærri en svo, að hún byggist á því, sem hæstv. ráðh. sjálfur taldi vera eðlilegt hér fyrr á þessu þingi.
Það má vel vera, að það sé rétt hjá hæstv. ráðh., að það séu einhverjar athuganir í gangi í rn. hans um aðstoð við þá námsmenn, sem eru á bilinu á milli skyldunáms og háskólastigs. Það skal ég ekki draga í efa. Hins vegar eru þær athuganir auðsjáanlega komnar ákaflega skammt. Sú upphæð, sem er á fjárl. til þess að leysa vanda þessara nemenda, 15 millj. kr., er hlægilega lág. Og þegar frv. um námskostnaðarsjóð var lagt fram hér á þingi, hefði verið hægt fyrir hæstv. ríkisstj. og flokka hennar að vinna í því máli og gera við það brtt., ef málið hefði verið komið á það stig, að hæstv. ríkisstj. hefði séð í gegnum það. En það hefur hún auðsjáanlega ekki gert. Það stoðar því miður ákaflega litið, þó að einhverjir embættismenn, sem vafalaust eru duglegir menn og ágætir, séu að byrja að athuga vandamál af þessu tagi. Þetta vandamál er búið að blasa við mjög lengi og hæstv. menntmrh. hlýtur að hafa vitneskju um það sjálfur, að þetta mál hefur verið leyst á allt annan hátt annars staðar á Norðurlöndum, þar sem slíkt kerfi er búið að vera starfandi í langan tíma . Og það hefði vissulega verið ástæða til þess, að því verki hefði miðað miklu hraðar hér á landi, en raun ber vitni. En vonandi er hægt að byggja eitthvað meira á fallegu umtali hæstv. ráðh. nú heldur en þeim fögru orðum, sem hann sagði hér í haust, þegar hann taldi sjálfsagt að hafa þennan vaxtarhraða á Lánasjóði íslenzkra námsmanna.