08.03.1971
Neðri deild: 58. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 64 í C-deild Alþingistíðinda. (2430)

144. mál, námslán og námsstyrkir

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason) :

Herra forseti. Það eru aðeins ör fá orð að síðustu. Ég sé enga ástæðu til þess að halda áfram karpi við hv. þm. um hluti, sem ég tel alveg augljósa. Það skiptir engu máli, hvað hann segir um það, hver sé skoðun þeirra, sem hann kallar fólkið í landinu. Ég veit, hver er skoðun hans blaðs, ég veit, hver er skoðun hans sjálfs og ég þekki hliðstæða skoðun hjá ýmsum öðrum, en hann hefur ekkert umboð til þess að segja það og engan rétt til þess að fullyrða neitt um, hver sé skoðun þjóðarinnar eða almennings í þessu máli. Og jafnvel þó að þetta væri skoðun almennings í málinu, þá breytir hún ekki staðreyndum. Og það skal ég láta vera mín síðustu orð hér um þetta, að endurtaka þær upplýsingar, sem ég gaf um staðreyndir málsins. Þær taka af öll tvímæli um það, að þessar aðgerðir höfðu engin áhrif á gerðir ríkisstj. í málinu, því að efnisákvörðunin var tekin, áður en aðgerðirnar hófust. Og hvernig hlutir eiga að verka aftur fyrir sig með þessum hætti, er ofar mínum skilningi.