22.10.1970
Efri deild: 4. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 72 í C-deild Alþingistíðinda. (2456)
17. mál, meðferð ölvaðra manna og drykkjusjúkra
Flm. (Einar Ágústsson) :
Herra forseti. Ég flyt ásamt 4. þm. ,Sunnl., Birni Fr. Björnssyni, frv. til l. um breyt á l. um meðferð ölvaðra manna og drykkjusjúkra. Efni breytingarinnar er ákaflega einfalt. Það er við 1. mgr. 17.gr. l., að hún orðist svo:
„Af ágóða Áfengis– og tóbaksverzlunar ríkisins skal greiða ár hvert 2 1/2% í sérstakan sjóð, gæzluvistarsjóð. Sjóðurinn hefur það hlutverk að standa undir kostnaði af framkvæmd l. þessara og þá fyrst og fremst að auka og reisa stofnanir þær, sem um getur í 4. og 9. gr.“
Samhljóða frv. fluttum við þessir sömu þm. snemma á árinu 1969. Ég held, að ég hafi talað fyrir þessu frv. þann 20, marz það ár. Tilefni frv.— flutningsins þá voru umr., sem áttu sér stað í borgarstjórn 6. marz 1969, þar sem fram komu óhugnanlegar upplýsingar um áfengissjúklinga og aðbúð þeirra hér í höfuðborginni. Þar kom fram, að um það bil 40 algerlega heimilislausir menn eru hér í borginni. Þessi tala er að vísu nokkuð breytileg frá einum tíma til annans, en samkv. manntali Reykjavíkurborgar voru þá taldir hér 104 heimilislausir menn. Þess ber þó að gæta, að sumir þeirra eru vistmenn á hælum og stofnunum hér í borginni og utan hennar. Flest eru þetta karlmenn, en þó eru einnig í hópnum nokkrar konur. Flestir eru þessir menn Reykvíkingar, sumir þó komnir frá öðrum stöðum á landinu, en leita hingað af einhverjum ástæðum og þó að tilraunir hafi verið gerðar til að flytja menn úr þessum hóp til sinnar heimabyggðar, hafa þeir jafnan leitað í gamla félagsskapinn aftur að stuttum tíma liðnum. Þetta fólk er allt óreglufólk um meðferð og neyzlu áfengis, en að öðru leyti mein hægt og friðsamt, þannig að lögreglan þarf sjaldan að hafa afskipti af því, þegar það er saman. Flestir þessir menn eru algerir sjúklingar vegna áfengisnautnar, kulda og vosbúðar og fólkið þyrfti allt að vera á lækningahælum og komast undir hendur lækna og sérfræðinga. En fjarri fer, að hægt sé að veita þessu fólki viðtöku á slíkum hælum.
Þessar umr. í borgarstjórn Reykjavíkur, sem ég drap á í upphafi, voru almennar. Í þeim tóku þátt menn úr öllum flokkum, menn sem hafa sérstaklega til að bera þekkingu á þessum tegundum félagsmála og niðurstaða borgarstjórnar Reykjavíkur þá varð sú að fela Félagsmálaráði, sem er sú stofnun hér í borginni, sem hefur með þessi málefni að gera, að kanna mál þessara heimilislausu manna og aðbúnað og taka upp viðræður við ríkisstj. um leiðir til úrbóta í þessum efnum. Árangur þessara umr. varð m.a. sá, að starfrækt hefur verið síðan svokallað gistiheimili við Þingholtsstræti hér í borginni, þar sem áður var gamla Farsóttahúsið. Þar hafa að jafnaði 10—15 af þessum mönnum fengið húsaskjól næturlangt og eitthvað að borða, áður en farið var út að morgni. Fyrir skemmstu var framtíð þessa gistiheimilis til umr. í Félagsmálaráði, þar sem ár var liðið frá stofnun þess. Þá komu fram mjög miklar efasemdir ráðamanna um það, hvort rétt væri að halda þessum rekstri áfram og sjónarmið þeirra, sem vildu leggja reksturinn niður, var það, að slík starfsemi tefði fyrir raunverulegum og raunhæfum aðgerðum til úrbóta í þessu vandamáli. Niðurstaða Félagsmálaráðs varð hins vegar sú, að rekstrinum skyldi haldið áfram og hún mun aðallega hafa byggzt á því sjónarmiði meðlima ráðsins, að þeir gátu ekki hugsað þá hugsun til enda að þurfa að standa frammi fyrir því, að enn þá einn útigöngumaðurinn fyndist króknaður á köldum vetrarmorgni. En það er alveg ljóst, að þetta gistiheimili er engin lausn.
Það, sem gerzt hefur hér í Reykjavik, er svo það, að þann 17. október s.l. var gerð ályktun með öllum atkv. í borgarstjórn og flutt fram sú eindregna áskorun til Alþ. og ríkisstj., að framlag til gæzluvistarsjóðs verði tvöfaldað á næsta ári, þannig að unnt verði þegar að hefja undirbúning að stofnun lokaðs hælis fyrir drykkjusjúklinga. Þetta bréf hefur borgarstjórinn í Reykjavík sent Alþ. Það er skráð í dagbók 70 nr. 49 og geta hv. þm. kynnt sér það þar. Ég tel, að þessi niðurstaða sé spor í áttina, því að ég geri mér satt að segja vonir um það, að hv. meiri hl. Alþ. og hæstv. ríkisstj. taki tillit til þeirra óska, sem koma frá borgarstjórninni í Reykjavík, þegar þær óskir eru samhljóða. Og ég á von á því, að flokksbræðrum hæstv. ríkisstj. í borgarstjórninni verði meira ágengt við að þoka þessum málum til réttrar áttar heldur en okkur hér, sem teljumst til andstöðu við þá ríkisstj., hefur orðið, þó að við höfum reynt að hreyfa þessum málum. En ég vænti þess, að þetta framlag verið tvöfaldað á fjárl. þessa árs, m.a. og ekki sízt vegna þessarar ályktunar, sem ég hef hér gert grein fyrir. Og má þá segja, að ef menn væru ánægðir með þá lausn mála, væri frv: flutningur okkar hv. 4. þm. Sunnl. óþarfur. En ég vil rökstyðja þann frv.–flutning með því, að þegar á árinu 1964, er l. um gæzluvistarsjóð voru sett og framlag til hans ákveðið 71/2 millj., þá var þar vissulega talsvert rausnarlega á tekið miðað við það, sem áður hafði verið. Þá var framlagið, 71/2 millj., um það bil 2,3% af gjaldstofninum, tekjum Áfengisverzlunar ríkisins. Þá voru þær 320 millj. kr. Á s.l. ári voru þessar sömu tekju komnar upp í 730 millj. kr. En sjóðurinn fær enn 71/2 millj., þannig að framlagið er nú aðeins orðið 1% af tekjum Áfengisverzlunarinnar á s.l. ári. Eins og framlagið var upphaflega, mundu 2.3% hafa gert 16.8 millj. á s.l. ári. 21/2%, eins og við leggjum til, munu gera 18.2 millj. miðað við tekjur af áfengissölu á þessu ári.
Ég held, að þessar fáu tölur ættu að færa mönnum heim sanninn um það, að það er engin endanleg lausn, þó að ákveðið verði að tvöfalda framlag gæzluvistarsjóðs einu sinni. Það, sem þarf til að koma, er það að skapa gæzluvistarsjóði fastar, árlegar tekjur, sem dugi eitthvað, til þess að hann geti sinnt þeim verkefnum, sem honum eru samkv. l. falin. En verkefni gæzluvistarsjóðs eru samkv. l. þau að reisa og reka hæli fyrir drykkjusjúka menn og að reisa móttökustöðvar fyrir ölvaða menn, sem lögreglan þarf að koma til gæzlu um stundarsakir. Síðan þessi lög voru sett 1964, hefur ekkert — ekki nokkur skapaður hlutur verið gerður til þess að framkvæma þetta hlutverk sjóðsins. Allar tekjur sjóðsins hafa farið til þess að standa undir rekstri eins drykkjumannahælis á Akurhóli á Rangárvöllum. Og það er sýnt, að þessi mál eru komin í þá sjálfheldu, að við svo búið getur ekki lengur staðið. Þó að hv. Alþ. verði við óskum borgarstjórnar Reykjavíkur og tvöfaldi framlagið einu sinni á þessu ári, sem ég vona, að verði gert—- og er vissulega nokkur áfangi, þá er það engin framtíðarlausn. Eina framtíðarlausnin er sú, að sjóðnum verði nú þegar tryggðir nægilegir fjármunir til þess að undir eins verði hægt að hefjast handa við byggingu þeirra hæla og heimila, sem samkv. l. frá 1964 átti þá að byrja byggingu á, en hefur ekki verið byrjað á enn þá. Ég vona þess vegna, að hv. Alþ. fallist á það með okkur flm., að það sé réttara að breyta l. heldur en að tiltaka hækkun framlagsins einu sinni með skírskotun til þeirra raka, sem ég hef reynt að færa fram máli þessu til stuðnings í örfáum orðum.