15.03.1971
Efri deild: 63. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 82 í C-deild Alþingistíðinda. (2465)

17. mál, meðferð ölvaðra manna og drykkjusjúkra

Frsm. minni hl. (Sigurgeir Kristjánsson):

Herra forseti. Ég ætla nú ekki að tefja þessar umr. lengi, en ég hef sem gamall lögregluþjónn með tæplega 20 ára starf að baki svolitla persónulega reynslu af drykkjusjúklingum og drykkjumönnum. Og það er nú stundum svo, að þeir, sem hafa séð með eigin augum það, sem gerist, skilja betur en hinir, sem bíða svona álengdar. Þess vegna vildi ég ekki láta hjá líða að segja hér nokkur orð til viðbótar, því að fjmrh. eða stjórnvöld landsins og hið háa Alþ. heyra ekki kveinstafi kvenna og barna, sem þjást á heimilum drykkjusjúklinganna og það er auðveldara að segja en að gera, hvernig eigi að ráðstafa þessum mönnum. Hvert á að fara með þá? Og hvernig á að taka á málinu og koma þeim af heimilunum í þá gæzluvist, sem þeir þurfa að vera í?

Í l. um meðferð drykkjusjúkra og ölvaðra er skilgreining á því, hvaða tökum er hægt að taka á þessu. Það er með því, að þeir vilji fara sjálfir og það er hægt að dæma þá þangað, en í kringum það eru mjög miklar og erfiðar krókaleiðir. Þessir menn eru margir hverjir mjög vel gefnir og vita og kunna ýmis ráð til að komast fram hjá því að verða teknir fyrir opinberlega og fluttir, með valdi á þessi hæli, sem varla eru til. Þar að auki eru möguleikarnir að miklu leyti bundnir við það, að þeir vilji fara sjálfir og hælin eru opin og þeir geta farið þaðan heim aftur í mörgum tilfellum, þegar þeim sýnist. Og þá byrjar sami leikurinn.

Ég er sammála hæstv. fjmrh. í því, að það þarf að skoða þetta mál í heild og þá einmitt að taka það til meðferðar að gera auðveldara að taka drykkjusjúklingana, ofbeldismennina, sem eyðileggja heimilin og eyða tekjum og jafnvel eignum foreldra sinna með framferði sínu, taka þá af heimilum og koma þeim fyrir á lokuðum hælum. Þetta álít ég, að sé stór nauðsyn, sem hið háa Alþingi þyrfti að taka til athugunar.