28.01.1971
Neðri deild: 40. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 154 í C-deild Alþingistíðinda. (2508)
184. mál, skólakerfi
Ingvar Gíslason:
Herra forseti. Það er nú eiginlega með hálfum huga, að ég fer í ræðustólinn, vegna þess að ég hafði kvatt mér hljóðs hér í gær, meðan umr. stóðu almennt um þetta mál og hafði þá meiri áhuga á því að taka þátt í umr., en ég sé þó ekki beinlínis ástæðu til þess að falla frá orðinu, þó að hins vegar sé svo, að þegar er búið að ræða þetta mál ákaflaga mikið og kannske ekki mikið, sem ég get við það bætt.
Ég verð að lýsa yfir því eins og fleiri, sem hér hafa talað, að ég hef ekki haft aðstöðu til þess að lesa þessa miklu lagabálka að neinu ráði og það hefur farið verr fyrir mér, en sumum öðrum, sem hafa verið svo lánsamir að geta útvegað sér þetta frv. í handriti í jólafríinu. Ég hef ekki orðið svo lánsamur að geta það og býst ég ekki við, að það sé við annan að sakast en sjálfan mig í þessu efni, en það gerir náttúrlega að verkum, að ég hlýt að eiga örðugra með að ræða þetta mál en sumir aðrir, sem hér hafa talað. Í raun og veru sá ég þetta frv. ekki — af sérstökum ástæðum — fyrr en í gær, að á fundinn kom og þá las ég þetta og hlýddi á ræðu hæstv. menntmrh. og í rauninni hef þá þekkingu, sem ég hef af þessum frv., af þessum litla lestri og því, sem fram kom hér í umr.
Ég vil lýsa yfir því, sem menn hafa yfirleitt gert, að hér er um mjög merkilegt mál að ræða og augljóst, að í frv. eru mörg nýmæli, sem rædd hafa verið meðal skólamanna og áhugamanna um þessi efni á undanförnum árum og mér sýnist, að það hafi tekizt að koma mörgum af þessum nýmælum inn í þetta frv. og er það vel. Ég fagna því t.d., að það er gert ráð fyrir auknum skólarannsóknum. Það er gert ráð fyrir því í lögunum, að bókasöfn verði meira notuð við grunnskólann, sem kallaður er, þ.e. barna— og unglingaskólana. Þetta er ákaflega mikilvægt atriði, að börn og unglingar læri snemma að nota sér bókasöfn og hefur því miður verið of lítið af því gert að beina mönnum þangað til þess að sækja sér menntun og fróðleik. Þetta er eitt af þeim atriðum, sem ég tel ákaflega mikilvægt og það er fagnaðarefni, að gert er ráð fyrir því í þessu frv., að meira verði lögð stund á að kenna unglingunum og nemendunum að notfæra sér bókasöfnin. Sama er að segja um sálfræðiþjónustuna og ráðgjafarþjónustuna, sem gert er ráð fyrir í þessum lögum. Hér er um ákaflega mikilvægt málefni að ræða, sem skólamenn hafa lagt mikla áherzlu á. En hér er jafnframt um talsvert vandamál að ræða, vegna þess að þetta er mikið nýmæli, og þarf áreiðanlega mikillar skipulagningar við og kannske er vandi, hvaða menn veljast til slíkra starfa.
Einnig er ástæða til að minnast á það, að frv. leggur mikla áherzlu á það, sem kallað er sérkennsla fyrir þá nemendur, sem á einhvern hátt eru afbrigðilegir af andlegum eða líkamlegum ástæðum. Hér er einnig um mjög merkilegt mál að ræða, sem mikið hefur verið rætt um á undanförnum árum og við erum því miður aftur úr hér á landi um, en er mikið nauðsynjamál, að úr megi bæta.
En um þetta mál annars má segja það, að vissulega er það ekki vonum fyrr, að það er komið fram. En það er þó a.m.k. ánægjuefni, að frv. þetta skuli vera komið fram og von fleiri í sama anda. En þó að mörg nýmæli séu í þessu frv., þá eru þó atriði, sýnist mér við fljótan yfirlestur, sem ég held, að hefðu átt að vera þarna með og ég sakna. Ég sakna þess t.d., að þarna skuli ekki hafa verið tekið inn í frv. og reynt að finna stað í fræðslukerfinn því, sem kallað hefur verið fullorðinsfræðsla eða eitthvað í þá átt og ég held, að við þurfum að gefa meiri gaum hér á landi heldur en hingað til og ég hygg, að hefði mátt finna stað innan fræðslukerfisins og hefði einmitt átt heima í þessum frv., sem hér hafa aðallega verið til umr. Þess vegna langar mig til þess að spyrja hæstv. ráðh., hvort ekki hafi verið sérstaklega að þessu máli hugað og hvort ekki hafi verið að því hugað að finna þessu máli stað innan fræðslukerfisins eða með öðrum hætti. Ég ætla ekki að fara frekar út í það að ræða fullorðinsfræðsluna, enda vita flestir, hvað við er átt. Ég tel, að hér sé um mikilvægt málefni að ræða og hefði átt að finna þessu stað innan fræðslukerfisins. E.t.v. minnkar þörfin fyrir fullorðinsfræðslu, eftir því sem tímar líða. Þó efast ég um það. Ég hygg, að það verði alltaf þörf á henni og þörf fyrir það, að fullorðnir menn fái aðstöðu til að bæta við þekkingu sína með ýmsum hætti og það er alveg áreiðanlega þörf fyrir hana um þessar mundir, vegna þess að það eru alltaf ný og ný þekkingarsvið að koma til og auk þess eru margir í landinu, sem komnir eru á fullorðinsár, sem ekki hafa notið mikillar skólagöngu, en mundu gjarnan, ef skilyrði væru fyrir því, reyna að afla sér ýmiss konar menntunar, ef hún væri aðgengileg.
Meðal nýmælanna, sem rædd hafa verið og eru í þessu frv., eru ákvæði 7. gr. frv. um skólakerfi um jöfnun námsaðstöðu. Ég vil eins og fleiri, sem hér hafa talað, fagna því sérstaklega, að þetta er nú markað með lögum sem stefna, en jafnframt vil ég benda á það, að hér veltur auðvitað allt á framkvæmdinni, hér er fyrst og fremst um peningaspursmál að ræða og það mun áreiðanlega kosta mikið fé, ef á að vera hægt að koma þessu í viðhlítandi horf, eins og ég hef oft áður rætt hér í þinginu í sambandi við þingmál, sem ég hef flutt í þessu efni. Í sambandi við jöfnun námsaðstöðu verður líka að hafa það í huga, að það er ekki nóg að hafa jafna aðstöðu til náms fyrir skyldunámsnemendur, heldur verður líka að hyggja að hinum, sem stunda framhaldsnám. Það verður líka að gæta þess, að aðstaða þeirra verði einnig jöfnuð.
Menn hafa rætt hér nokkuð um það, hvort þörf sé á því að hraða afgreiðslu þessa mál og ég er sammála því, sem fram hefur komið hjá mörgum, að vissulega sé engin ástæða til þess að hraða þessu máli um of. En ég held líka, að það sé ekki ástæða til þess að tefja þetta mál neitt sérstaklega. Vissulega þarf málið rækilegan undirbúning, en ég hygg, að á þeim tíma, sem lifir til vors, megi vinna svo að þessu máli, að menn gætu sæmilega við það unað, að það yrði afgreitt. Þeir sem áhuga hafa á málinu, hljóta að geta komið að sínum brtt. En vissulega þarf að undirbúa það vel og m.a. með því að tryggja, að menn úti um landsbyggðina fái aðstöðu til þess að kynna sér málið. En ég held sem sagt, að það sé mikil ástæða til þess að athuga málið vel, en hins vegar ekki ástæða til þess endilega að fara að draga það úr hófi að lögfesta frv. með þeim breytingum, sem það kann að taka hér í þinginu.
Ég hef kannske ekki svo margt að segja um þetta frekar. Ég vil endurtaka, að það er gott, að þetta er komið fram og hefði náttúrlega mátt vera komið fram fyrr og ég vil leggja áherzlu á, að það hefði mátt vera komið fram fyrr og ég vil leggja áherzlu á, að það felst mikill vandi í framkvæmd þessara laga, eins og allra slíkra laga. Það er gert ráð fyrir mjög rúmum tíma til framkvæmda, eða allt að 10 árum og verður að sýnast, að það sé nægur rími. En því miður höfum við ekki góða reynslu af framkvæmd núgildandi fræðslulaga, sem eru þegar orðin 25 ára gömul. Þau hafa í rauninni tæpast komizt til framkvæmda að öllu leyti á þessum 25 árum og slíkt má auðvitað ekki ske um þessa nýju löggjöf, að hún komist ekki til framkvæmda á eðlilegum tíma. Og 10 ár sýnast vera nokkuð langur tími til þeirra hluta.
Þetta vildi ég segja um vanda framkvæmdarinnar, en þetta er líka áminning til Alþ. og til okkar sem þingmanna, að þarna þurfum við einnig að standa vel á verði og við verðum vitanlega að fylgjast með því á hverjum tíma , að framkvæmd fræðslulaganna geti orðið að raunveruleika og það gerum við auðvitað bezt með því að vera ósparir á fjárveitingar til þessara mála, því að áreiðanlega veltur mjög á því, ekkert síður, en á dugnaði einstakra ráðh. Þetta skulum við hafa vel í huga og ég held, að ég megi segja það fyrir hönd framsóknarmanna, að þeir munu ekki láta sinn hlut eftir liggja í því að sjá svo um, að Alþ. veiti það fé til þessara mála, sem nauðsynlegt er, til þess að hægt sé að framkvæma lögin með eðlilegum hætti.