11.03.1971
Neðri deild: 60. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 173 í C-deild Alþingistíðinda. (2524)
247. mál, innflutnings- og gjaldeyrismál
Halldór E. Sigurðsson:
Herra forseti. Ég ætla ekki að hefja umr. um þetta frv. hér á þskj. 474, en mig langar í sambandi við það að gera eina fsp. til hæstv. viðskrh. Það kom fram í ræðu hans og er tekið fram hér í grg., að gert er ráð fyrir því, að Búnaðarbankinn, Verzlunarbankinn og Iðnaðarbankinn fái rétt til þess að verzla með gjaldeyri. Ég leyfi mér að spyrja, af hverju Samvinnubankinn fái ekki slíkan rétt?