26.11.1970
Efri deild: 22. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 197 í C-deild Alþingistíðinda. (2569)
120. mál, almannatryggingar
Frsm. (Jón Árm. Héðinsson):
Herra forseti. Á þskj. 186 kemur fram, að heilbr.— og félmn. hefur athugað frv. og leggur samhljóða til, að frv. verði samþ. óbreytt.
Lögfræðingur hér í borg benti mér á það, að það gæti komið til vandamáls í örfáum tilfellum varðandi 1. gr. frv., — að úrskurður um barnsmeðlag kynni að taka nokkurn tíma, en í 2. málsl. 1.gr, segir:
„Tryggingastofnuninni er ekki heimilt að greiða meðlög lengra aftur í tímann en þrjá mánuði, talið frá byrjun þess mánaðar sem yfirvaldsúrskurður er afhentur stofnuninni, nema um sérstakar ástæður sé að ræða, sem barnsmóðir verður ekki talin eiga sök á og getur þá tryggingaráð úrskurðað meðlagsgreiðslur allt að 18 mánuði aftur í tímann.“
Ef svo færi, að úrskurður drægist verulega og ekki yrði litið á þessar sérstöku aðstæður, kynni að fara svo, að barnsmóðir tapi rétti sínum, eftir því sem lögfræðingur benti mér á, — auðvitað ætlast löggjafinn ekki til þess, — vegna veikinda barnsins eða annarra tæknilegra atriða. Því vil ég að það komi skýrt fram hér við framsögu, að viðkomandi persóna mundi ekki tapa rétti sínum, ef slíkar ástæður væru fyrir hendi, og við verðum að vænta þess, að 18 mánuðir aftur í tímann séu nægileg trygging fyrir því, að barnsmóðir tapi ekki rétti sínum vegna tæknilegra atriða við blóðrannsókn.
Að öðru leyti tel ég mig ekki þurfa að hafa fleiri orð um þetta frv. Það er fylgifiskur þess, sem við vorum að afgreiða hér rétt á undan, með eðlilegum tengslum. Að svo mæltu legg ég til, að frv. verði vísað til 3. umr.