24.03.1971
Efri deild: 73. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 238 í C-deild Alþingistíðinda. (2633)

273. mál, Sementsverksmiðja ríkisins

Forsrh. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Ég skal hafa fá orð um þetta frv. Mér er ljóst, að það er svo seint fram komið í þinginu, að ég get ekki búizt við afgreiðslu þess nú.

N. hefur starfað að því, eins og fram kemur í grg. frv., að endurskoða l. um Sementsverksmiðju ríkisins og lágu til þess ýmsar ástæður, sem gerð er nánari grein fyrir í grg. og ég vitna til. Það kemur fram í grg., að það var ekki samstaða um öll atriði í n., sem undirbjó frv., bæði varðandi skipun stjórnarinnar og fleiri atriði, sem ég skal heldur ekki rekja. Þau eru hv. þm. fullkunnug.

Um eitt atriðið, tillögugerð eins nm. um að setja inn í l. ákvæði um skipun samstarfsnefndar milli starfsfólks og verksmiðjustjórnar, vil ég aðeins segja þessi orð. Það kemur almennt ákvæði í l. um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna um samstarfsnefndir í opinberum fyrirtækjum, svo að það ætti að liggja fyrir, þegar þau hafa náð samþykki hér í þinginu. Ég teldi eðlilegri þann hátt heldur en hinn að setja ákvæði um þetta inn í einstök frv., eins og lagt hefur verið til, t.d. um frv. um Áburðarverksmiðjuna, sem er í Nd., og till. kom fram um í n., sem endurskoðaði sementsverksmiðjulögin. Ég er mjög hlynntur því, að unnið sé að þessu, þar sem gott samkomulag og frjálst samkomulag næst um þetta.

Að tilhlutan ríkisstj. fór n. manna frá Vinnuveitendasambandinu og Alþýðusambandinu, eins og kunnugt er, undir formennsku Sveins Björnssonar, forstjóra Iðnaðarmálastofnunar Íslands, á ráðstefnu um svokallað atvinnulýðræði í Noregi í haust, þar sem sérstaklega var rætt um þessar samstarfsnefndir. Aðaltill. hennar eru að stefna að því, að slíkum samstarfsnefndum yrði komið upp á frjálsum grundvelli.

Um Sementsverksmiðjuna vil ég segja það, að ég hef þegar gert ráðstafanir til þess, að skipuð verði n. til þess í samráði við stjórn Sementsverksmiðjunnar og starfsfólkið þar að koma á svipaðri samstarfsnefnd og menn kynntust á ráðstefnunni í Noregi í haust. Ég hef ritað A.S.Í. og beðið um tilnefningu manns í slíka n. og beðið Vinnuveitendasamband Íslands að tilnefna mann í n. undir forsæti Sveins Björnssonar, forstöðumanns Iðnaðarmálastofnunar Íslands. Þá mundi þessi n., sem ég bíð bara eftir tilnefningu í frá viðkomandi aðilum, því að bréf hef ég sent til þeirra — þá mundi hún taka upp viðræður á frjálsum grundvelli við stjórn Sementsverksmiðjunnar og starfsfólk hennar og ég vona, að þegar allt kemur til alls reynist sú lausn farsæl og eðlileg á þessu máli.

Um hitt er ekki deilt, að sem æskilegast sé á hverjum tíma, að sem bezt samkomulag sé á milli starfsfólks og stjórnar eins fyrirtækis og alveg sérstaklega, ef það mætti verða til þess að bæta starfshættina í viðkomandi fyrirtæki. Ég þekki það hins vegar, að slíkar samstarfsnefndir hafa verið settar upp í fyrirtækjum og orðið að engu og náð engum árangri og lögþvingun tel ég ekki til neinna bóta í þessu.

Ég skal ekki hafa fleiri orð um þetta, með vísun til þess, sem ég sagði í upphafi, en vil leyfa mér að leggja til, að málinu verði, að lokinni þessari umr., vísað til 2. umr. og hv. iðnn.