24.03.1971
Efri deild: 73. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 240 í C-deild Alþingistíðinda. (2634)
273. mál, Sementsverksmiðja ríkisins
Jón Árm. Héðinsson:
Herra forseti. Ég vildi við 1. umr. hér vekja athygli á því, að það var til minni hl. álit um stjórn á þessu fyrirtæki sbr. 8. gr., en í henni er fjallað um ákvæði, sem áður var í 5. gr. 1. um framkvæmdastjóra — að hann skuli vera einn og með verkfræðilega menntun. En nú er gert ráð fyrir, að breyting verði á. Í minni hl. áliti Benedikts Gröndals segir orðrétt með leyfi hæstv. forseta:
„Stjórn Sementsverksmiðju ríkisins ræður forstjóra fyrirtækisins og skal hann hafa verkfræðilega menntun. Veitir hann fyrirtækinu forstöðu og hefur prókúruumboð fyrir það, annast daglegan rekstur og á sæti á stjórnarfundum.“
Síðan segir, að heimilt sé að ráða framkvæmdastjóra svo marga sem þurfa þykir til að stýra einstökum þáttum rekstrarins undir stjórn forstjóra. Ég veit ekki á þessu stigi, hver yrði niðurstaða iðnn., en ef þörf er þarna að hafa marga forstjóra, þá getur líka verið hliðstæð þörf í öðrum stórum fyrirtækjum á vegum ríkisins og er þess vegna nokkurt atriði, að það sé gaumgæfilega athugað. Ég tel, að í fyrirtækjum, sem eru með svona sérstaka framleiðslu og á sérsviði, þá hljóti forstjórinn að verða að vera verkfræðilega menntaður. Það hefur sætt mjög harðri gagnrýni af hálfu stéttarfélags verkfræðinga og varla vegna einberrar öfundar eða að ástæðulausu, sem sú gagnrýni hefur komið á loft, að ekki hafi verið ráðinn aftur forstjóri, sem hefði verkfræðilega menntun.
Ég vildi aðeins vekja athygli á þessu á þessu stigi málsins, til þess að iðnn. taki þetta mál til alvarlegrar athugunar, hvort hér á að verða ákveðin stefnubreyting. Samstarfsnefndirnar er allt ágætt um að segja, en lítils háttar ágreiningur kom upp þar einnig, sem þyrfti að athuga um. Sem sagt: Ég vildi aðeins vekja athygli á þessu, þannig að n. gæfi sér tíma til að hugleiða nánar þennan ágreining.