26.03.1971
Efri deild: 66. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 244 í C-deild Alþingistíðinda. (2646)
298. mál, Þjóðleikhús
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Þjóðleikhúsið hóf starf sitt vorið 1950 og hefur nú starfað í 21 ár. Löggjöfin um Þjóðleikhús hafði verið sett nokkru áður og er frá árinu 1947, en reglugerðir hafa verið gefnar út 1949, 1951, 1953 og 1958. Á þessum tveggja áratuga starfstíma Þjóðleikhússins hefur fengizt mikilvæg reynsla um það, með hverjum hætti málum þess yrði haganlega skipað og hefur nú þótt tími til kominn að endurskoða lög og síðan reglugerð um Þjóðleikhús. Til þess að endurskoða lögin skipaði menntmrn. hinn 6. febrúar 1970 n. og voru skipaðir í hana Birgir Thorlacius, ráðuneytisstjóri í menntmrn., sem var formaður n., Baldvin Tryggvason, framkvæmdastjóri og stjórnarformaður Leikfélags Reykjavíkur og dr. Þórður Eyjólfsson, fyrrverandi hæstaréttardómari. Hafa þessir 3 menn samið það frv., sem hér er um að ræða, en mjög náið samstarf hefur verið haft við leikara Þjóðleikhússins, þjóðleikhúsráð og þjóðleikhússtjóra.
Þær breytingar, sem felast í þessu frv. frá gildandi lögum um Þjóðleikhús, eru margar og mikilvægar. Þar er kveðið skýrar á um það, en í gildandi lögum, að þótt flutningur leikrita sé aðalhlutverk Þjóðleikhússins, beri því einnig að sýna óperur og listdans að staðaldri og að á hverju ári skuli eitt eða fleiri viðfangsefni sérstaklega ætluð börnum. Þá er skipan þjóðleikhúsráðs gerbreytt, en skipan þess hefur verið eitt þeirra atriða, sem einkum hafa verið gagnrýnd í núgildandi lögum um Þjóðleikhús. Starfstímabil þess er nú tímabundið, en var áður ótímabundið og fulltrúum í því hefur verið fjölgað, til þess að það geti orðið vettvangur sem flestra þeirra sem leikhúsreksturinn varðar. Starfstímabil þjóðleikhúsráðs er ákveðið allt að 4 ár, en Alþ. kýs nýtt ráð eftir hverjar reglulegar alþingiskosningar. Fráfarandi þjóðleikhúsráð heldur þó umboði sínu, þangað til nýtt ráð er fullskipað.
Verkefni þjóðleikhúsráðs samkvæmt frv. er að hafa eftirlit með starfsemi leikhússins. Það á að fjalla um starfs— og fjárhagsáætlun leikhússins fyrir komandi leikár og staðfesta hana með þeim breytingum, sem því þykir rétt að gera. En áætlunina á þjóðleikhússtjóri að semja með aðstoð fjármálafulltrúa og bókmennta— og leiklistarráðunautar og framkvæmdaráð á að hafa samþykkt hana.
Í þjóðleikhúsráði er með þessu frv. gert ráð fyrir, að eigi sæti þessir aðilar. Í upphafi fyrsta þings eftir hverjar reglulegar alþingiskosningar á hver þingflokkur að tilnefna einn fulltrúa fyrir hverja 10 þm. í flokknum eða brot úr þeirri tölu. Þá á Bandalag ísl. listamanna að kjósa 3 fulltrúa, einn tónlistarmann, einn listdansara og einn rithöfund. Félag leikara Þjóðleikhússins einn fulltrúa, menntmrh. skipar einn fulltrúa, en þjóðleikhúsráðið sjálft á að kjósa sér formann. Þar sem hér er um að ræða mjög mikla fjölgun á meðlimum þjóðleikhúsráðs frá því, sem nú er, er gert ráð fyrir því, að við Þjóðleikhúsið skuli starfa 5 manna framkvæmdaráð og er það í raun og veru hliðstæðara því þjóðleikhúsráði, sem nú starfar. Í því eiga sæti formaður þjóðleikhúsráðs, sem jafnframt er formaður framkvæmdaráðs, þjóðleikhússtjóri, fjármálafulltrúi Þjóðleikhússins, sá af fulltrúum Félags ísl. leikara í þjóðleikhúsráði, sem félagið ákveður og fulltrúi leikarafélags Þjóðleikhússins í þjóðleikhúsráði.
Eins og hér kemur fram, er hér um gerbreytingu að ræða á yfirstjórn leikhússins frá því, sem nú er. Reglunum um skipan þjóðleikhússtjóra er einnig gerbreytt. Þjóðleikhússtjóra á nú samkvæmt frv. að ráða til 4 ára í senn og má endurráða sama mann einu sinni, þannig að enginn getur gegnt þessum starfa lengur en 8 ár. Þá er og það nýmæli í frv., að ráða skal að leikhúsinu bókmennta— og leiklistarráðunaut, listdansstjóra og tónlistarráðunaut.
Ákvæði er í frv. um það, að miða skuli við, að svo margir leikarar, söngvarar og listdansarar starfi við Þjóðleikhúsið, að það geti jafnan leyst af hendi þau verkefni, sem því ber að sinna. Það er gert ráð fyrir, að það verði lögfest, að blandaður kór starfi við Þjóðleikhúsið. Tímaskeiði leikársins er og breytt. Það á framvegis að vera frá 1. september til 1. ágúst, en ekki frá júlíbyrjun til júníloka, eins og nú á sér stað. Þá er gert ráð fyrir því, að Þjóðleikhús og Sjónvarp komi saman á fót leikmunasafni, er önnur leikfélög geti gerzt aðilar að. Þetta safn leigi búninga, leiktjöld og annan sviðsbúnað til leikfélaga. Lögð er áherzla á það, að um aukið samstarf verði að ræða milli Þjóðleikhússins og leikfélaga áhugamanna, t.d. með því að láta þeim í té leikstjórn og gestaleikara. Fyrirmæli er í frv. um það að fara skuli í leikferðir um landið á starfstíma Þjóðleikhússins, að komið skuli á fót sérstökum leiklistar—, sönglistar— og listdansskóla ríkisins og að síðustu, að komið skuli á fót öðru 1eiksviði til eflingar starfsemi hússins.
Í þessu eru fólgnar þær meginbreytingar, sem á gildandi lögum eru ráðgerðar. Þær lúta fyrst og fremst að miklu nánari ákvæðum um hlutverk Þjóðleikhússins og verkefni þess, en eru í gildandi lögum, gerbreytingu á skipan þjóðleikhúsráðs og breyttri tilhögun á ráðningu þjóðleikhússtjóra, en þau ákvæði mundu koma til framkvæmda, þegar þjóðleikhússtjóri yrði ráðinn næst. Ákvæðin um þjóðleikhúsráðið mundu koma til framkvæmda þegar á fyrsta þingi eftir kosningar, eftir að frv. hefði verið samþ.
Með þessu móti vona ég, að mér hafi tekizt að gera grein fyrir kjarnanum í þeim breytingum, sem þetta frv. fæli í sér, ef að lögum yrði og leyfi mér, herra forseti, að leggja til að málinu verði, að lokinni 1. umr., vísað .til 2. umr. og hv. menntmn.