29.03.1971
Neðri deild: 75. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 303 í C-deild Alþingistíðinda. (2696)
15. mál, námskostnaðarsjóður
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Það hefur orðið að samkomulagi milli ríkisstj. og flm. þessa frv., að ríkisstj. skipi n. til þess að gera till. um það mál, sem frv. fjallar um, þ.e.a.s. aðstoð hins opinbera við námsmenn til þess að jafna aðstöðu þeirra til náms. Gert er ráð fyrir því, að í n. eigi sæti fulltrúar tilnefndir af þingflokkunum 5, auk fulltrúa frá menntmrn. og skal það vera hlutverk n. að undirbúa frv. um þetta efni, sem unnt verði að leggja fyrir næsta Alþingi.