16.11.1970
Neðri deild: 19. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 306 í C-deild Alþingistíðinda. (2706)

29. mál, Fiskveiðasjóður Íslands

Flm. (Björn Pálsson):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja hér frv. til l. um breyt. á l. nr. 75 frá 13. maí 1966, um Fiskveiðasjóð Íslands. Frv. er í fjórum greinum eða fimm greinum raunar. Ég flutti þetta frv. í fyrra og hélt þá framsöguræðu ítarlega um þetta. Ég ætla þess vegna ekki að vera langorður nú, vegna þess að ég veit, að langar ræður þreyta þm. og bæta ekkert fyrir málefninu.

Efni frv. er í stuttu mál það, að það er breytt um stjórn hjá Fiskveiðasjóði. Með þessu frv. er miðað við það, að þarna verði sjálfstæð stjórn, svipuð og hjá hinum bönkunum og þeir ráði svo framkvæmdastjóra, einn eða tvo. En nú er það þannig, að Landsbankinn kýs tvo, Útvegsbankinn tvo og Seðlabankinn einn. Ég veit ekki hvernig það er, hvort það eru bankaráðin, sem kjósa þessa menn, eða hvort bankastjórarnir sjálfir ákveða þetta, það skiptir ekki öllu, en staðreyndin er sú, að það eru 5 bankastjórar, sem sitja í stjórn Fiskveiðasjóðs og þeir ráða framkvæmdastjóra. Verði þetta frv. að lögum, þá er ætlazt til þess, að þingið kjósi tvo, Seðlabankinn einn, LÍÚ einn og Sjómannasambandið einn. Satt að segja finnst mér ekki nema eðlilegt, þegar tekið er af óskiptum hlut, eins og gert er nú, að sjómannasamtökin eigi þarna einn fulltrúa. Mér finnst enn fremur ekki nema eðlilegt, að útvegsmenn eigi einn fulltrúa. Meginhluti af því fé, sem Fiskveiðasjóður hefur, sem er orðið sennilega hátt í hálfan annan milljarð, er kominn beint eða óbeint frá útvegsmönnum. Það er þess vegna ekki til mikils mælzt, þó að þeir eigi þarna fulltrúa. Ég legg til í þessu frv., að Alþ. kjósi tvo. Um það má náttúrlega deila, en það er í samræmi við það, sem er í hinum bönkunum. Ríkissjóður á, eða telur sig eiga að ráða yfir Fiskveiðasjóðnum og ég get ekki skilið það, að alþm. séu á móti því, að þingið kjósi tvo menn. Annar gæti verið úr stjórnarliðinu og hinn þá úr stjórnarandstöðunni og þá hafa báðir aðstöðu til að koma fram tillögum og hafa eftirlit með rekstri sjóðsins. Og 1egg til, að Seðlabankinn hafi einn mann. Mér finnst það ekki ósanngjarnt. Ég lít á Seðlabankann sem fulltrúa ríkisstj. í fjármálunum og það er vitanlega ekki nema gott um það að segja, að ríkisstj. hafi einn fulltrúa. Hann getur þá gefið upplýsingar um þá hluti, sem snerta framkvæmdaatriði viðvíkjandi fjármálum af hendi ríkisvaldsins og það hefur oft orðið að leita til ríkisvaldsins með þessi mál.

Þó að ég flytji þetta frv., þá get ég búizt við, að það taki breytingum í meðferð, ef þetta verður að lögum. Og satt að segja, þá eru umdeilanleg atriði í frumvarpinu eins og það, hvort sjómannasamtökin eiga að eiga fulltrúa eða hvort útvegsmenn ættu að eiga tvo, o.s.frv. Það má vel vera, að það taki einhverjum breytingum og ég fyrir mitt leyti get vel gengið inn á það að vera með frv., þó að því yrði breytt. En aðalatriðið er þetta, að Fiskveiðasjóður fái sjálfstæða og óháða stjórn. Mér finnst engin ástæða til annars. Ég veit ekki betur en að verzlunarmenn landsins hafi sérstakan banka. Ég veit ekki betur en að iðnaðarmennirnir hafi sérstakan banka. Ég veit ekki betur en að bændurnir hafi sérstakan banka. Þetta er stærsti sjóður landsins. Sjávarútvegur er á margan hátt þýðingar mesti atvinnuvegur landsins og hvers á hann þá að gjalda að geta ekki haft sjálfstæða lánastofnun? Ég vil enn fremur, benda á það, að það er ákaflega óhagkvæmt fyrir útvegsmennina sjálfa, þegar þeir þurfa að reka erindi sín hér, að þeir koma upp í Fiskveiðasjóð, þeir tala við framkvæmdastjóra Fiskveiðasjóðsins, en hann getur engin svör gefið, því að hann ræður engu. Það er stjórnin, sem ræður. Ég álít, að framkvæmdastjórar þessa sjóðs eigi að hafa sama vald og bankastjórar, þannig að menn geti talað við þá eins og ráðandi menn. Þetta er miklu auðveldara fyrir þá, sem þurfa að fá þar lán, ef þeir hafa meiri völd. Nú er það svo, að það er verið að stofna ótal sjóði hér á landi. Þessir sjóðir eru farnir að lána meira og minna, t.d. ef á að ráðast í að kaupa skip eða reisa fiskvinnslustöð eða eitthvað slíkt. Þannig að völdin eru að dragast úr höndum lánastofnana og til þessara sjóða, sem hafa aðallega tekið til starfa á þessu svonefnda viðreisnarskeiði. Ég hygg, að bankastjórunum sé heldur lítið um það gefið, þeim finnist völdin vera að dragast úr sínum höndum til þessara sjóða. Það hefur komið fram í blaðaviðtali hjá einum bankastjóranum, að hann var að gera grín að þessum sjóðastofnunum. Persónulega hef ég heyrt þetta á sumum þeirra. Það er tvennt, sem þreytir og lamar þessa blessaða bankastjóra. Það er Seðlabankinn, sem er settur yfir þá og býr til lánsfjárkreppur og er víst á leiðinni með eina nú. Mér skilst, að bankastjórarnir megi ekki lána nema takmarkað nú. Og bankarnir bera sig frekar illa. Þykjast hafa lítil fjárráð. Svo eru það þessir blessaðir sjóðir. Bankarnir eru eiginlega á milli tveggja elda. Þeir eru farnir að ráða minna, en þeir gerðu. En hvað sem því líður, - það má deila um þetta, - þá virðist mér óþolandi, að útvegsmenn eigi ekki nokkurn veginn sjálfstæða stofnun og að framkvæmdastjórar hennar hafi ekki svipuð völd og aðrir bankastjórar í landinu.

Ég veit ekki, hvað varð þess valdandi, að það var farið að breyta þessum lögum upphaflega. Yfirleitt var Fiskveiðasjóður vel látinn hjá útvegsmönnum. Bankastjórar Útvegsbankans höfðu einhverja yfirstjórn, en ég varð aldrei var við, að Elías Halldórsson — hann var framkvæmdastjóri – réði ekki því, sem hann vildi. Ég held a.m.k., að samkomulagið hafi verið mjög gott milli þessara manna og ég dreg í efa, að það hafi yfirleitt verið tekin af honum ráðin, en þetta breyttist, þegar þessi nýja stjórn kom. Þá fór það að koma í ljós hjá Elíasi, að hann hafði ekki endanlegar ákvarðanir og gaf ekkert út á það, þegar menn töluðu við hann. Ég skal ekkert fullyrða um; hvað hefur valdið þessu, en mér hefur skilizt eftir ýmsum leiðum, að þarna hafi komið til, að Landsbankinn þóttist eitthvað vera fyrir borð borinn og Útvegsbankinn réði meiru heldur, en eðlilegt væri. Milli bankanna varð víst einhver togstreita út úr þessu og endaði með samkomulagi, þannig að Landsbankinn fékk tvo menn í stjórnina, Útvegsbankinn tvo og Seðlabankinn einn, en sannleikurinn er sá, að í framkvæmdinni mun Seðlabankinn hafa ráðið hér um bil öllu þarna.

Þannig er þetta nú, þannig að út úr þessu varð hálfgerður óskapnaður. Nú hafa þessir menn unnið sér ýmislegt til ágætis. 16. gr. í fiskveiðasjóðslögunum er um gengistryggingar og hún hljóðar svo:

„Nú tekur sjóðurinn erlent fé að láni og lánar það innanlands og er þá heimilt að semja svo um við lántakendur, að þeir beri halla eða njóti hagnaðar, er verða kann vegna gengisbreytingar, þannig að vaxta— og afborgunargreiðslur hækki og lækki í íslenzkum krónum í hlutfalli við slíkar breytingar.“

Þarna er alveg skýrt fram tekið, að það má ekki lána með gengisáhættu peninga nema erlent fé. Eins og þið munið, þá gerði ég fsp. viðvíkjandi þessu atriði í fyrra og fékk greinargóða skýrslu frá framkvæmdastjóranum og bókhaldaranum og þar er sagt, að þegar gengisbreytingin er gerð 1961 þá skuldar Fiskveiðasjóður erlendis 105 millj. 229 þús., en er gengisbreytingin fer fram 1967, 87 millj. M.ö.o., að erlendar skuldir hafa lækkað um 18 millj. á þessum tíma. En allan þennan tíma lána þeir með gengisáhættu 3/5 af andvirði skipanna, þannig að ég lít svo á, að þarna hafi verið alveg ólöglega að farið. Það hafi verið lánaðir með gengisáhættu íslenzkir peningar. Í ársbyrjun 1967 er hætt að lána með gengisáhættu og þannig er það þangað til í maí 1968, en erlendar skuldir hækka á þessu tímabili úr 87 millj. upp í 172. En þá er lánað án gengisáhættu. Maður getur tæplega þverfótað, þegar maður kemur inn í þessa banka, fyrir lögfræðingum og m.a. er það þannig í Fiskveiðasjóði. Þeir eru í hverri holu, ég held að þeir séu einir þrír. Nú gæti maður ætlazt til þess, að löglærðir menn — og nóg er af þeim í bönkunum — gerðu ekki ólöglega hluti. En ég sé ekki annað en að þarna hafi verið framið algert lögbrot.

Það var birt í útvarpi fyrir skömmu frásögn um einn vesalings kaupmann. Það var út af söluskatti og undandrætti. Hann varð að borga eitthvað á aðra millj. kr. fyrir undandrátt, vanigoldinn söluskatt og ýmiss konar útgjöld. Svo varð hann að borga í sekt 650 þús. kr. og þar að auki er hann dæmdur til að vera í 3 mánuði í tukthúsi, óskilorðsbundið. Ég er nú heldur góður í mér og mér fannst þetta of langt gengið og eiginlega nóg fyrir manntetrið að borga 650 þús. í sekt, þó að hann ætti ekki að vera 3 mánuði í tukthúsinu, af því að það er líka takmarkað húsrými hjá ríkisstj. Það er nóg af prófessorum, en eiginlega of lítið af tukthúsum, þannig að ég held, að það hefði nú verið hyggilegra fyrir báða, að manngreyið hefði fengið að verzla áfram og borga sína sekt, en sleppa við tukthúsið, ef hann borgaði sektina. Þeir eru nú strangir, þessir herrar. En þegar menn gera miklar kröfur til annarra, eins og ríkisstj. virðist gera og ríkisvaldið hér á landi, — ég er ekki nema gott um það að segja, að menn brjóti ekki lögin — þá þurfa menn líka að gera kröfur til sjálfs sín og þeirra fyrirtækja, sem þeir stjórna.

Nú hefur þetta skeð hjá þessum 5 bankastjórum og þessum óteljandi lögfræðingum, að þeir hafa reiknað út gengistap, 122 milljónir og deilt því niður á menn, sem tóku lán frá árinu 1961 og til 1967, deilt niður á okkur, sem tókum lánið á þessum tíma, 122 millj. króna. Það var ekkert erlent fé lánað á þessum tíma, það voru borgaðar niður erlendar skuldir. En það voru komnar erlendar skuldir áður, 105 millj. M.ö.o., það er alveg farið öfugt að og þeir látnir borga, sem ekkert áttu að greiða. Það er ekki hægt að fá hæstv. sjútvrh. til þess að vera hér inni, eiginlega þyrfti ég að snúa máli mínu til hans. Hann er yfirmaður þessa sjóðs. Það er sennilega ekki hægt að fá hann til að vera hér, hann hefur ekki aðstöðu til þess.

Ég spurðist fyrir um þetta hér í fyrra hjá ráðherrum og þeir skrifuðu víst Fiskveiðasjóði. Ég veit ekki, hvernig svarbréfið var, en þarna hefur það skeð, að þeir hafa verið látnir borga gengismuninn, sem ekki áttu að borga hann, en hinir, sem raunverulega hefðu átt að borga hann eftir anda og bókstaf laganna, þeir sleppa alveg. Og ég veit ekki, hvort er réttlátara: að setja þennan kaupmanns garm í tukthúsið eða þá menn í tukthúsið, sem deila þarna ranglega niður 122 millj. Þetta er ekkert aukaatriði. Magnús Gamalíelsson á Ólafsfirði sagði mér, að hann hefði fengið 4 millj. kr. hækkun á fyrsta skipið, sem hann keypti. Næsta skip á eftir slapp alveg — ég skal ekki fara með, hvað verðið var, það skipti samt milljónum — en það slapp alveg. Nú eru þetta ill laun hjá fjmrh. og ósanngjörn, því að þetta hefur alltaf verið dyggur stuðningsmaður hans. Mér fyndist það eðlilegt, að hann gengi fram fyrir skjöldu til þess að þetta væri lagað.

Ég hef ekkert gaman af að standa í málaferlum, þó að ég hafi stundum neyðzt til þess og satt að segja vildi ég helzt komast hjá því. En þegar fimm bankastjórar koma saman og hafa sér til aðstoðar a.m.k. þrjá lögfræðinga, þá hefði ekki verið ofverkið þeirra að athuga, hvað væru lög og hvað ekki lög og náttúrlega nær það engri átt að láta kúga menn til að skrifa undir samning um, að 3/5 af láninu sé gengistryggt, þegar enginn eyrir af erlendu fé er tekinn til þess að lána í þessi skip. Þetta er algert lögbrot. En þeir, sem tóku lánin, vissu ekki, hve mikið erlent fé fór í það. Þeim var ekki hleypt í reikninga Útvegsbankans eða Fiskveiðasjóðsins. Þannig að þegar ég t.d. tók lánið, þá hafði ég ekki hugmynd um, hve mikið fé erlent var notað, eða hvort það var notað eða ekki. Þarna hefur því verið framið freklegt lögbrot og algerlega snúið við hlutunum. Ég hygg, að þetta hefði ekki komið fyrir, ef útvegsmenn hefðu haft þarna fulltrúa, a.m.k. ef einhver dugur hefði verið í honum.

Ég geri nú ráð fyrir því, af því að sjútvrh. er ekki hér, að ég neyðist til þess að leggja fram fsp. um það í þinginu, hvort ríkisstj. ætli ekkert að gera í þessu máli? Eðlilegast er náttúrlega, ef einhverjum af stofnunum ríkisins verður eitthvað á, lagalega eða á annan hátt, að það sé lagað, án þess að um það þurfi málaferli eða miklar deilur, en ég hef ekki séð bóla neitt á því. Svo er það mál út af fyrir síg, þær ráðstafanir, sem gerðar hafa verið og sannleikurinn er sá, að útvegsmenn geta sér um kennt. Vextirnir voru hækkaðir upp í 6,5% og dráttarvextirnir upp í 12%. Það er siður hér, að ef einhver á erfitt, þá er honum refsað fyrir það. Nú gera menn það ekki að gamni sínu að borga ekki á réttum tíma afborganir og vexti af gjöldum sínum. En þeim, sem eiga í örðugleikum, á að hjálpa á þann hátt að láta þá borga 12% í dráttarvexti. Þetta er algerlega andstætt því, sem skynsamlegt er og réttlátt og ég hygg satt að segja, að sjóðsstjórninni hafi sjálfri ofboðið þetta svo, að þessu hafi ekki verið framfylgt. En við getum ekki þakkað okkur það. Við settum þessi vitlausu lög, eða réttara sagt stjórnarliðið, það ber ábyrgð á þessum lögum og það er ógerlegt að reka útgerð með þessum háu vöxtum. Það er ekki hægt og mun tæpast vera gert í nokkru landi. Og að bæta svo gráu ofan á svart með því að refsa þeim, sem eru í örðugleikum, með því að láta þá greiða okurvexti, það nær náttúrlega ekki neinni átt. Ég skal játa það, að gengislækkun hefur verkað jákvætt fyrir þá menn, sem ekkert gengistap hafa orðið að borga, en þessi mikla hækkun, sem kemur á þá, sem höfðu gengistryggðu lánin, hún getur ráðið úrslitum um, hvort viðkomandi útgerð ber sig.

Svo er annað atriði með þau skip, sem við erum að kaupa nú. Ég býst við, að það séu sæmilega gefnir menn, sem að því standa, en mér dettur ekki í hug, að þeir geri ráð fyrir því að þau verði nokkurn tíma borguð. Ég reikna ekki með, að þeim, sem eru að kaupa togara nú fyrir 150 millj. og jafnvel 200 með þeim vaxtakjörum, sem þeir verða við að búa og með gengisáhættunni, að þeim detti í hug, að útgerðin borgi þetta. Hitt er svo annað mál, að bæjarfélögin verða að hafa einhver tæki til að afla hráefnis, til að fólkið geti unnið og það er ekkert um annað að tala en að ráðast í þetta. En þessum mönnum, sem standa að þessum skipakaupum nú, þeim dettur vitanlega ekki í hug –með þeim sköttum, sem hvíla á útgerðinni og með þeim vaxtakjörum, sem hún býr við, — þeim dettur ekki í hug, að hún geti borgað kaupverð skipanna. Það er fjármálastefna, sem er að aukast fylgi, að taka lánin, ráðast í framkvæmdirnar, hvað sem það kostar. Ég geri ráð fyrir, að fólk sé neytt til þess, það er ekki um annað að tala. En þetta er dálítið hættuleg stefna.

Ég hef haldið því fram, að það væri réttast að búa eins vel að útgerðinni og hægt er, skattleggja hana eins lítið og hægt er, hafa vaxtakjörin eins hagkvæm og hægt er, en segja þeim svo, að þeir verði að standa á eigin fótum. En það hefur alltaf verið þannig, þegar verið er að semja fyrir hönd útgerðarinnar, að þá hafa alltaf komið einhverjir fleygar, aðrir skattar komið gegn eftirgjöf á kaupi, en svo koma bara kaupkröfurnar á eftir. Og þannig standa útgerðarmenn á eftir með fleiri skatta og jafnhátt kaup og þannig er þetta að verða nú. Það er búið að bæta síðan 1964 þremur eða fjórum stórum sköttum á útgerðina, en það mun líða að því, að hásetarnir nái sömu kjörum og þeir höfðu og raunar verða þeir búnir að ná sömu kjörum, þegar lífeyrissjóðurinn er tekinn með, þannig að þarna er farið inn á vafasama leið. Ég held því satt að segja, að það veiti ekkert af því, að stjórn Fiskveiðasjóðsins sé skipuð þannig, að útvegsmenn eigi þar fulltrúa, sem þeir geti treyst. Sjómannasamtökin geta gjarnan átt einn. Þingmenn ættu að vera færir um að kjósa tvo fulltrúa. Svo getur ríkisstj. haft sinn fulltrúa. Það má vera, að það séu skiptar skoðanir um þetta. Sumir vilja vafalaust, að Seðlabankinn hafi engan o.s.frv. Og út af fyrir sig, þó að ég leggi þetta frv. fram, tel ég víst, að því verði eitthvað breytt, svo framarlega, sem það verður samþ. En ég fullyrði, að það er vilji útgerðarmanna að eiga einhverja hlutdeild í stjórn sjóðsins. Ég hef margoft orðið var við það, bæði persónulega í samtölum við þá og eins hef ég orðið var við það á fundum. Hitt er svo annað mál — og þar geta útgerðarmenn sjálfum sér um kennt, þeir hafa ekki staðið nógu vel saman. Það er annar hlutur, sem er dálítið hættulegur og það er það, að stjórn þessara samtaka sé þeim megin, sem ríkisstj. er, því að þá verður alltaf þessi auðmýktartónn, þeir þora aldrei að setja hnefann í borðið eða hlífast við því. Ég er sannfærður um, að útvegsmennirnir, ef þeir hefðu verið nógu harðir í horn að taka, hefðu þeir fengið vextina lækkaða. Þeim hefði tekizt það, þegar Eysteinn Jónsson var fjmrh. Sannleikurinn er sá, að þótt Eysteinn Jónsson hafi aldrei gert út skip eða fengizt við útgerð, þá var meira vit í stjórninni á útgerðarmálum þá. Það voru allt að því helmingi færri skattar á útgerðinni og miklu lægri og þar að auki voru vextirnir miklu lægri. Ég fékkst við útgerð bæði þessi tímabil og sannleikurinn var sá, að þó maður fengi færri krónur fyrir fiskinn, þá var betra að láta útgerðina bera sig þá heldur en nú. En þetta hefur orðið ofan á, fjölga sköttunum og hækka vextina. Svo koma útvegsmenn og segja við ríkisstj.: „Við getum ekki gert út.“ Þá er hlaupið til og fellt gengið, stolið af sparifjáreigendum og allt kerfið skekkt og traust íslenzku krónunnar eyðilagt.

Mín skoðun er sú, eins og ég tók fram áðan. Eins litla skatta og mögulegt er, eins lága vexti og hægt er og segja útgerðarmönnum að spjara sig, segja bara við þá: „Gengið verður ekki fellt ykkar vegna,“ fyrir utan það, að síðast var nú gengið fellt vegna ríkissjóðs, en ekki útgerðarinnar. Það vantaði aura í ríkissjóðinn, sem komu með fleiri krónum í söluskatti og innflutningsgjöldum. En þetta eyðist aftur, þegar launin hækka og öll hringrásin á fullri ferð. Það er þegar farið að tala um þessa verðbólgu nú, þetta er afleiðing af gengislækkuninni. Það er búið að tefja, að skriðan komi, í eitt til tvö ár og svo hlaut hún auðvitað að koma, þegar launasamtökin eru búin að sækja í sig veðrið. Það er engin sérstök verðbólguskriða á annan hátt en þann, að það er allt að breytast í samræmi við gengisfellinguna 1968. Það er það, sem er að gerast, þannig að ef við viljum stjórna okkar fjármálum af viti, þá verðum við að fara aðrar leiðir, heldur en við höfum farið nú undanfarin ár.

Ég sé ekki ástæðu til þess að fjölyrða meira um þetta. Þetta er ekki það flókið mál, að ég efast ekki um, að þm. geri sér grein fyrir því. Ég lít ekki á þetta sem pólitískt mál. Það er ekki fyrir neinn sérstakan flokk unnið. Þetta snertir ekki pólitík og ég álít, að allir flokkar gætu í raun og veru komið sér saman um svona hluti. En þarna er bara um það að ræða, að þessi á margan hátt þýðingarmesta stofnun okkar verði sjálfstæð stofnun, þar sem þeir aðilar, sem mest hafa til hennar að sækja, hafi a.m.k. tillögurétt, þó að þeir ráði ekki úrslitum. Og þetta er sú stofnunin, sem á mesta fjármuni í landinu. Ég hygg, að eignirnar nálgist hálfan annan milljarð, en það er eitthvað svipuð eign og allir bankarnir, eiga nettó í landinu, þannig að ég sé enga ástæðu til, að Fiskveiðasjóður sé undirlægja hjá helztu viðskiptabönkum landsins. Ég álít, að við eigum að efla þessa stofnun. Ég álit, að það mættum gjarnan renna ýmsir sjóðir til hennar, sem eru notaðir til þess að lána sjávarútveginum og við eigum að gera hana að sjálfstæðri og vel stjórnaðri stofnun. Þessar 122 milljónir, sem var ranglega jafnað niður á útvegsmenn, það er eins og dropi í hafið fyrir Fiskveiðasjóð, þó að hann borgaði þær. Sannleikurinn er sá, að það þýðir ekkert að fjasa yfir því, þó að þeir lánuðu þessum aðilum ógengistryggt í ársbyrjun 1967. Það er mál út af fyrir sig. En þeir áttu bara ekki að láta aðra borga fyrir þá. Það var þeirra mál, hvort þeir lánuðu ógengistryggt. Þeir hafa e.t.v. haft lagalega heimild til þess, þó að það væri ekki gáfulega gert, þegar um erlent fé var að ræða. En þeir áttu bara ekki að láta saklausa menn borga það. Það eru rangindi. Þeir sem tóku lánin frá 1961-1966, þeir eru 1átnir borga gengistapið af lánum, sem voru 1ánuð fyrir árslok 1961.

Sannleikurinn er sá, að þessir bankastjórar og lögfræðingar, — það eru líklega þrír lögfræðingar og fimm bankastjórar, sem hafa verið þarna hver öðrum til aðstoðar, — þeir líta svo á, að þeir megi gera hvað sem þeim sýnist, það muni enginn segja neitt. Og sannleikurinn er sá, að útgerðarmenn eru svo kúgaðir, að þeir segja ekki neitt. Það er eingöngu af því, að ég þarf ekkert til þessara herra að sækja og ekkert lán að fá hjá þeim, að ég hef kjark til þess að standa hér og segja sannleikann, en flestir eru það skuldugir og kúgaðir, að þeir þora ekki að hreyfa sig, hvernig sem með þá er farið. Ég veit, að sjútvrh. hefur engan þátt átt í þessu. Ég veit líka, að Sverrir Júlíusson, væntanlegur forstjóri, hefur engan þátt átt í þessu. En þeir hafa tækifæri til þess að laga þetta, án þess að staðið sé í málaferlum. Og eins og ég sagði áðan, ég er friðsamur maður og leiðist ö11 málaferli og vil helzt aldrei fara í mál, en ef nauðsynlegt er — þó að ég sé farinn að eldast, þá býst ég við, að ég treysti mér til þess að stefna þessum herrum.