11.11.1970
Efri deild: 14. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 343 í B-deild Alþingistíðinda. (276)

4. mál, ríkisreikningurinn 1968

Einar Ágústsson:

Herra forseti. Það kom fram hjá hv. form. fjhn. hér áðan, að n. í heild leggur til, að ríkisreikningurinn verði staðfestur, en einstakir nm. hafa þó áskilið sér rétt til að gera við hann nokkrar aths. Ég vil strax í upphafi taka fram, að ég mun ekki gera neinar till. um að breyta þessari niðurstöðu n. eða leggja til aðra málsmeðferð. En það eru nokkur atriði þessa reiknings, sem mig langar til að gera hér að umtalsefni í örstuttu máli. Það eru þá fyrst og fremst þau atriði, sem hv. 10. þm. Reykv. var að enda við að ræða hér, þ. e. þær tvær aths., sem yfirskoðunarmenn Alþ. hafa vísað til aðgerða þingsins. Ég tel, að það megi ekki minna við hafa, þegar slíkt kemur fyrir, en að við a. m. k. ræðum þær efnislega, eins og hv. form. fjhn. hefur raunar nýlokið við að gera.

Fyrri aths., sem ég ætla að ræða um, er sú aths., sem yfirskoðunarmenn hafa gert og lýtur að því, að stjórn Bjargráðasjóðs Íslands hefur farið út fyrir valdsvið sitt í tveim tilgreindum atriðum. Eins og hv. 10. þm. Reykv. lýsti, var í fyrra tilfellinu um að ræða afslátt af húsaleigu, sem sjóðsstjórnin sjálf hafði ákveðið til náins samstarfsfélaga, Sambands ísl. sveitarfélaga, og það vegna húsnæðis, sem leigjandinn sannanlega notaði ekki. Ég minnist þess, held ég, ekki — og alls ekki raunar, að ég hafi þann tíma, sem ég hef starfað hér í fjhn. á hv. Alþ., séð annan eins sparðatíning og jafn fráleitan frá ríkisendurskoðuninni eins og þetta. Það er gerð aths. um það, að stjórn Bjargráðasjóðs breyti eigin ákvörðun um húsaleigu til Sambands ísl. sveitarfélaga, sem er nánast önnur grein á sama meiðnum, og það fyrir húsnæði, sem ekki er notað. Það er virðingarvert að vinna verk sín vel. Síðastur manna skal ég gagnrýna það. En hér finnst mér of langt gengið í tortryggni. Og svo skal ég bæta því við, að mér hefði fundizt alveg óhætt fyrir hv. yfirskoðunarmenn að taka þessa skýringu stjórnarinnar gilda og sleppa því að vísa þessu atriði til Alþ. Þeir taka ýmislegt gilt eins og t. d. það, að ekki hafi unnizt tími til þess hjá ríkisútvarpinu að athuga, hvaða einstaklingar hafa fengið greiddan hæstan ferðakostnað árið 1968. Það ætti þó varla að vera svo yfirgripsmikið verkefni, að ekki væri ástæða til þess að krefjast þess hreinlega, að ríkisútvarpið upplýsti þetta atriði, fyrst yfirskoðunarmenn hafa séð ástæðu til þess að spyrja um það. En það kemur fram í 12. aths. þeirra, að þeir segja þar um, að yfirskoðunarmenn ríkisreiknings sætti sig að þessu sinni við þær upplýsingar, sem í svarinu eru. Ég held, að þeir hefðu alveg eins átt að sætta sig við þá skýringu stjórnar Bjargráðasjóðs, sem hér hefur verið gerð grein fyrir.

Hitt atriðið, er varðar stjórn Bjargráðasjóðs, er að vísu meira matsatriði — það skal ég játa — og lögfræðilegt atriði, hvort heimilt sé að veita styrki og vaxtalaus lán úr sameignardeild vegna þeirra tjóna, sem samkv. lögum nr. 82/1967 heyra undir afurðatjónadeild landbúnaðarins. Við í fjhn. höfum fallizt á túlkun sjóðsstjórnar, sem hv. 10. þm. Reykv. var hér að gera grein fyrir, á þeim forsendum, að í lögum séu engin ákvæði, sem banni að veita samhliða fyrirgreiðslu úr tveimur deildum sjóðsins, ef lagaskilyrðunum er fullnægt, enda er um þetta fjallað í ríkisreikningi á bls. 371. Þar segir, með leyfi forseta: „Þvert á móti er beinlínis ráð fyrir því gert í frv. að l. nr. 82/1967, þar sem segir m. a.: „. . .afurðatjónadeild, sem hafi það verkefni að mæta þeim áföllum, sem að framan eru talin ásamt hinum deildunum“.“

Hv. 10. þm. Reykv. upplýsti það hér áðan, sem ekki kom fram á fundi n., að ég held, að vegna fjárhagsástæðna deildanna, eins og þær væru í ár, væri nú unnt að endurgreiða sameignardeild þessa f árhæð, sem hefði átt að heyra undir áhættudeild. Ég get ekkert gert með þennan rökstuðning. Annaðhvort er heimilt að veita til þessa verkefnis úr sameignardeild eða það er óheimilt. Mín skoðun er sú, að það sé heimilt, og þess vegna tel ég allar endurgreiðslur og allt fikt milli deilda hreinan óþarfa og raunar ekki viðeigandi. Mín skoðun er sú — og fjhn. á fundinum, sem við héldum um þetta mál, þar sem framkvæmdastjóri Sambands ísl. sveitarfélaga mætti — að heimilt sé að veita til verkefnisins úr báðum deildum. Það er enn þá mín skoðun, að lögin séu þannig. Þess vegna geri ég ekkert með það, að nú verði farið að færa þessa peninga til einu sinni enn. Hitt getur vel verið matsatriði og verður þá vafalaust athugað, hvort ástæða sé til að breyta l., þannig að öll tvímæli séu tekin af um það, að þessi verkefni séu undir áhættudeild einni, sem óneitanlega virðist eðlilegast — það skal ég samþykkja með hv. 10. þm. Reykv. En l. eru bara ekki þannig, eins og sakir standa.

Hin aths., sem yfirskoðunarmenn vísuðu til Alþ., er miklu alvarlegra eðlis. Hún lýtur að þrætu tveggja rn. út af afgreiðslu tiltekinna aths. yfirskoðunarmanna, sem gerðar voru við ríkisreikninginn 1967 og stöfuðu af úrskurðum ríkisendurskoðunar vegna misfærslu og greiðslu án heimildar til starfsmanna hjá tilteknu embætti eins og þar segir. Umræddum úrskurðum ríkisendurskoðunar breytti dómsmrn., að því er varðaði tvo af þeim þremur starfsmönnum, sem þar um ræddi, og vegna þessa spyrja yfirskoðunarmenn þriggja spurninga. Ég held, að það sé rétt, að ég leyfi mér að rifja það upp, með leyfi hæstv. forseta, ekki sizt vegna þess, sem fram kom hér áðan, að þm. munu almennt kannske ekki hafa ríkisreikninginn 1968 fyrir framan sig, þar sem svo langt er liðið, síðan honum var útbýtt hér. En spurningar yfirskoðunarmanna eru þá þessar:

1. Eru fordæmi fyrir því að greiða sama aðila fyrir aukavinnu í sínu eigin starfi jafnframt því, að hann bæti á sig störfum vegna annars manns og taki laun fyrir það við sömu stofnun?

2. Telur rn. ekki varhugavert að ákveða þóknun fyrir störf, sem unnin eru fyrir nokkrum árum?

3. Telur dómsmrn. sig geta ákveðið, án samráðs við launadeild fjmrn., eins miklar launaverðbætur og þarna voru ákveðnar?

Að venju sendir fjmrn. svar viðkomandi rn. — í þessu tilfelli dómsmrn. — með, sem svar við aths. Í bréfi dómsmrn., sem prentað er á bls. 365 í ríkisreikningnum, er auðvitað reynt að réttlæta það, sem gert var. Það er ekkert óvenjulegt við það, og í mörgum tilfellum, ég hygg í flestum raunar, er svar viðkomandi rn. einnig svar fjmrn. En svo er ekki í þessu tilfelli. Það óvenjulega við þessa málsmeðferð er það, að jafnhliða skýringum dómsmrn. sendir fjmrn. bréf sitt til dómsmrn. Í bréfinu er bent á: 1) Að það sé dómsmrn. eitt, sem ber ábyrgð á umræddum launaúrskurðum. 2) Að ríkisendurskoðunin hafi ekki veitt samþykki fyrir þeirri málsmeðferð, sem þar er ráðgerð. 3) Að það sé næsta vafasamt og geti leitt til ósamræmis að úrskurða mjög háar aukalaunagreiðslur án samráðs við launadeild. 4) Að oftast sé eitthvað óeðlilegt við slíka kröfugerð eftir langan tíma. 5) Að tiltekið atriði í úrskurðinum sé áður óþekkt, síðan launadeild fór að fylgjast náið með launagreiðslum í ríkiskerfinu, eins og í þessu umrædda bréfi segir, sem dagsett er 6. okt. 1969.

Hér eru mjög þungar sakir bornar á dómsmrn. að mínum dómi — mjög þungar, og mér finnst, að í tilefni af þeim sé full ástæða til að spyrja, hver réttarstaða hinnar svokölluðu launadeildar fjmrn. raunverulega er. Og ég hefði mjög óskað eftir því, að hæstv. fjmrh. hefði séð sér fært að vera viðstaddur, þegar Ed. Alþ. fjallar um ríkisreikninginn 1968 og staðfestingu á honum, en ég geri það svo sem ekki að neinu kappsmáli. Ég treysti því, að hv. 10. þm. Reykv., formaður fjhn., taki þá að sér það hlutverk að segja hæstv. fjmrh. það, hvað hér fer fram, og koma þeim spurningum á framfæri, sem mig langar til að bera fram við hann, fyrst hann er svona önnum kafinn, að hann má ekki vera að því að fylgja þessu máli sínu fram. Það er almennt um það talað og okkur sagt það, að engar launabreytingar nái fram að ganga, nema samþykki þessarar launadeildar komi til, og persónulega þekki ég dæmi um það, að mánuðum og jafnvel missirum saman hefur verið staðið gegn smávægilegum launabreytingum — ekki langt aftur í tímann, heldur frá þeim degi, sem á þær var minnzt — launabreytingum, sem bæði forstjóri viðkomandi stofnunar og viðkomandi ráðh. virðast vilja, að nái fram að ganga, en þeir telja ekki hægt að framkvæma vegna andstöðu þessarar alvöldu launadeildar.

Út af fyrir sig er ekkert við því að segja, — og það er kannske bæði rétt og sjálfsagt, að til sé einhver aðili, samnefnari, sem haldi þessum þráðum í hendi sinni. Stundum hafa menn jafnvel viljað hrósa sér af því fyrirkomulagi, og má vel vera, að það eigi nokkurn rétt á sér. Þetta fyrirkomulag getur komið ýmsu góðu til leiðar, ef rétt er á haldið. En því betra starf, sem menn álíta, að launadeild vinni, þeim mun meira bregður þeim við að sjá, að eitt rn. og það rn., sem lýtur forystu núv. hæstv. forsrh., gerir sér litið fyrir og hunzar launadeildina algerlega með því að kveða upp úrskurð, sem ekki er aðeins vafasamur og getur leitt til ósamræmis, heldur byggir líka á óeðlilegri kröfugerð auk þess, sem hluti hans er algert einsdæmi í allri sögu margnefndrar launadeildar, svo að ég noti aðeins þau orð, sem tekin eru úr fyrrnefndu bréfi fjmrn. sjálfs. Og spurning mín er þá þessi: Hvert er og á að vera hlutverk launadeildar í framtíðinni, þegar svona vinnubrögð eru látin viðgangast? Og ég ætlaði mér að biðja hæstv. fjmrh. að svara þessu, hvert að hans áliti ætti að vera hlutverk þessarar deildar. Á hún að halda áfram að geta staðið í vegi fyrir — ég vil segja — réttlátum launabreytingum, sem yfirmenn stofnana og jafnvel viðkomandi rn. eru sammála um? Á að halda áfram að nota hana til þess, en segja henni svo bara, að henni komi það mál ekki við, þegar það hentar betur?

Ég held, að svar við þessari spurningu verði menn að gera upp við sig. Annaðhvort á þessi deild að hafa þetta hlutverk og þá algerlega eða þá, að það er langbezt að leggja hana niður og spara það, sem hún kostar.

Í þriðja lagi vil ég vekja athygli á því, að yfirskoðunarmenn báðu um það, að látin yrðu í té tvö yfirlit um ríkisreikninginn 1968. Annars vegar er það yfirlit, sem um er fjallað í 3. aths. og er svona: Hvað störfuðu margar n. — þar með talið vegna undirbúnings lagafrv. — og hverjar á vegum ríkisstj. og rn. á árinu 1968? Hvað störfuðu margir menn í hverri n.? Hver voru launakjör þeirra hvers um sig? Hversu margar af n. hafa lokið störfum? Og hins vegar er 7. aths.: Hvaða aðilar njóta þessarar greiðslu? Er þar átt við greiðslu vegna ómældrar yfirvinnu. Eftir hvaða reglu er farið, þegar um er að ræða, hverjir skuli njóta hennar og á hvaða heimild er hún byggð? Enn fremur: Hver ákveður fjárhæðir þær, er greiddar eru?

Rn. telur í svari sínu öll tormerki á því, að það sé yfirleitt nokkur leið að telja saman þessar n. fyrr en einhvern tíma, eftir að yfirstandandi ár er liðið, og eins og segir í svarinu, eru þeir tilleiðanlegir til þess að framkvæma þessa upptalningu eftir 1970. Það sýnist þá eiga að verða verkefni næstu hæstv. ríkisstj. að glíma við það vandamál, því að þessi hæstv. ríkisstj. virðist ekki treysta sér til þess. En yfirskoðunarmenn hafa ekki viljað sætta sig við þetta, heldur leggja til, að svarið fylgi ríkisreikningi fyrir árið 1969 og sé að öllu leyti við það ár miðað. Jafnframt taka þeir svo af allan vafa um það, hvaða skilyrði skráin skuli miðast við. Nú er búið að leggja fram ríkisreikning fyrir árið 1969. Honum var útbýtt hér í byrjun þings. Ég hef að vísu ekki lesið alla þessa bók, en ég hef lesið efnisyfirlitið og flett þessu, og ég held, að mér sé alveg óhætt að fullyrða það, að engin skrá um n. fylgir því, þannig að það er a. m. k. ekki enn þá farið að uppfylla þessar kröfur yfirskoðunarmanna. Og ég ætlaði að spyrja hæstv. fjmrh. að því, ef hann hefði getað verið hér: Hvenær má Alþ. vænta þess, að skrá um n. eftir þar til gerðri forskrift yfirskoðunarmanna geti legið fyrir? Þetta barst í tal við 1. umr. fjárl. Það var líka gengið eftir þessari nefndaskrá þar, en ég tók ekki eftir því, að hæstv. fjmrh. gæfi í svari sínu neinar yfirlýsingar um það. Ég held þó, að það sé allra hagur að fá þessar upplýsingar og fylgjast með því, hvernig þessum störfum er fyrir komið. Og ég held, að Alþ. hljóti að gera þá kröfu til fjmrn. á hverjum tíma, að það, sem yfirskoðunarmenn biðja um af upplýsingum og skýrslum, sé veitt, því að ég sé ekki, til hvers þessi yfirskoðun er, ef það á að vera matsatriði í rn., hvað er gert með þessar aths.

Alveg sama er að segja um hitt atriðið, þ. e. um greiðslu fyrir yfirvinnu. Yfirskoðunarmenn töldu svarið við því ekki heldur fullnægjandi og óskuðu nýrra upplýsinga fyrir árið 1969. Þessar upplýsingar hafa ekki heldur borizt. Þeir leggja til, að í ríkisreikningnum fyrir árið 1969 sé grg. um það, sem um er spurt í aths. Það má vel vera, að það sé enn þá hægt að koma þessu við, og ég vil koma þeim óskum á framfæri, að það verði gert, þannig að þessar upplýsingar geti raunverulega fylgt ríkisreikningnum 1969.

Ég vil svo að endingu aðeins fagna því, að með ríkisreikningi 1968 skuli nú birt skrá eða yfirlit ríkisendurskoðunar um reikninga ríkisstofnana og embætta, sem ekki hefur verið lokið við endurskoðun á fyrir 1968 og nokkrir einnig frá fyrri árum. Þessi skýrsla fylgir að vísu samkv. ósk yfirskoðunarmanna, og það er sama, hvaðan gott kemur. Ég geri þetta að umtalsefni hér einungis vegna þess, að það er í svo mörg skipti, sem fjhnm. hafa orðið að biðja um þessa skýrslu. Nú er tekinn upp sá háttur, að hún fylgir ríkisreikningnum frá rn., og ég fagna því, því að vitanlega er tæpast hægt, a. m. k. fyrir alþm., að staðfesta ríkisreikninginn, nema þeir viti þó a. m. k., hvað búið er að endurskoða og hvað er eftir að endurskoða, þannig að þeir taki ekki ákveðið á því, sem ekki hefur einu sinni verið endurskoðað.

Ég vildi láta þessar aths. og þessar fsp. koma hér fram, herra forseti, áður en ríkisreikningurinn verður endanlega afgreiddur hér í deildinni. Mér þykir lakara, að hæstv. fjmrh. skuli ekki vera hér til þess að veita mér upplýsingar þær, sem mér leikur hugur á að fá. Við því er sjálfsagt ekkert að gera. Ég verð þá að treysta því, að síðar gefist tækifæri til þess að inna hann á ný eftir skilum þessara gagna. Að öðru leyti skal ég ekki ræða ríkisreikninginn frekar og er því samþykkur, eins og hv. 10. þm. Reykv. greindi frá, að hann verði staðfestur að lokum umr. hér.