11.11.1970
Neðri deild: 16. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 364 í C-deild Alþingistíðinda. (2783)
55. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Flm. (Halldór E. Sigurðsson) :
Herra forseti. Á þskj. 56 höfum við þrír þm. Framsfl. leyfa okkur að flytja frv. til l. til breyt. á 1. um tekju– og eignarskatt. Efni frv. er það, að þegar unnið er að framtölum, skuli það gert með þeim hætti, að 10% af framtölunum sé dregið út samkv. reglum, er skattstofan semur og þau athuguð sérstaklega. Ástæðan fyrir því, að þetta frv. er flutt, er sú, að það er kunnara en frá þurfi að segja, að skattaframtöl eru ekki talin svo örugg sem skyldi og nauðsyn ber til. Þegar skattaframtöl eru óörugg, leiðir það til þess, t.d. í sveitarfélögunum, að þeir, sem rétt telja fram, taka á sig að greiða meira af gjöldum til sveitarfélagsins heldur en annars hefði verið, ef allir þegnar höfðu gert það. Ýmsar leiðir hafa verið reyndar til þess að bæta úr þessu og m.a. var því haldið fram hér á hv. Alþ., að þegar horfið var frá þeirri vinnuaðferð, sem áður var hér, að skattanefndir voru í öllum sveitum landsins og skattstofurnar voru settar upp, mundi verða breyting til batnaðar, sem mundi skapa meiri festu og öryggi um gerð framtala. Ég mun áður hafa sagt það hér á hv. Alþ., að ég var á þeirri skoðun, að það gæti verið rétt, að þetta form gæti skapað meiri festu og öryggi um úrvinnslu framtala heldur en áður hafði verið.
Nú er nokkur reynsla fengin af störfum skattstofanna og því miður hefur hún ekki orðið sú, sem búizt var við eða a.m.k. þeir bjartsýnustu reiknuðu með.
Eitt af því, sem fundið var að hjá skattstofunum, var það, hvað framtölin komu seint frá þeim og það seinkaði svo allri álagningu í sveitarfélögunum, að hún var ekki framkvæmd fyrr en á haustin. Nú á síðari árum hefur orðið breyting á þessu, en hún hefur orðið með þeim hætti, að vinna eða endurskoðun skattstofanna á framtölunum hefur að minnstu leyti farið fram, áður en álagning hefur átt sér stað. Skattstofurnar hafa lauslega farið yfir framtölin, lagt þau saman eins og framteljandi hefur gengið frá þeim. Þær hafa ekki borið saman launamiða eða neitt það, sem áður var gert í endurskoðun og ætlazt var til, að endurskoðað yrði. Þetta hefur orðið til þess, að skattstofurnar hafa svo tekið framtölin til sín síðar á árinu, venjulega ekki fyrr en á haustin, til þess að framkvæma þá endurskoðun, sem þeim er ætlað að vinna í upphafi og svo hafa þær sent út um héruðin endurskoðun skattframtalanna, stundum um og eftir næstu áramót. Þeir, sem hafa viljað hagnýta sér það, sem út úr þeirri endurskoðun hefur komið, hafa því orðið að legga tvisvar til þrisvar á sama gjaldanda á hverju gjaldaári. Þessi vinnubrögð geta ekki staðizt og hafa orðið til þess, a.m.k. í smærri sveitarfélögum, að sveitarstjórnir hafa ekki lagt í það að endurleggja á útsvör vegna aths., sem hafa fram komið, nema um stórfelldan mismun væri að ræða. Þess vegna hefur þetta orðið á þann veg, að endurskoðunin. sem skattstofurnar áttu að framkvæma, hefur í rauninni ekki verið unnin fyrr en það seint, að hún hefur ekki komið að notum og ríkissjóður eða þeir, sem tekju– og eignarskattsálagningu annast og innheimtu, hafa orðið að innheita hjá sumum aðilunum mörgum sinnum álögur af sömu tekjunum vegna þeirra breytinga, sem fram hafa komið við síðari endurskoðun. Þessi vinnubrögð eiga sér ekki framtíð, og hygg ég, að allir séu sammála um, að hér verði að gera breytingu á. Ástæðan fyrir því, að þetta er svona, er talin vera sú, að skattstofurnar hafi ekki mannskap til að inna af höndum þessa eðlilegu endurskoðun á réttum tíma. Þess vegna er þetta frv. flutt til þess að reyna að láta breyta þessari vinnuaðferð í þeirri von, að hún gæfi þá raun, að hún gæti útilokað þó nokkuð af vinnu skattstofanna, vegna þess að hún er það mikið aðhald í framtali, þar sem öllum er það ljóst, að þeir geta lent í þessari nákvæmu endurskoðun, sem yrði hjá 10% af gjaldendunum, og enginn vildi því hætta á það að hagræða framtali sínu á annan veg en rétt er. Ég minnist þess í sambandi við þetta frv., sem var flutt einnig á síðasta þingi, að ég sá grg., sem kom frá ríkisskattrannsóknarstjóranum til fjhn. þessarar hv. d. út af þessu frv. og taldi hann ýmis vandkvæði á því. En það, sem þar var um að ræða og ríkisskattrannsóknarstjórinn hafði við þetta að athuga, var allt hugsað út frá hans starfi. Þetta frv. er ekki hugsað út frá starfi ríkisskattrannsóknarstjóra, sem á að sjá um þá sakfelldu, heldur er þetta miðað við það, að vinnubrögð skattstofanna fari inn á þessa braut til þess að draga úr þeim ofsastörfum, sem er verið að vinna í sambandi við framtölin, sem verða svo ekki að meira gagni heldur en ég hef hér lýst. Það, sem aftur fer fram hjá skattrannsóknardómaranum, er annars eðlis og það er ekki verið að setja honum vinnuaðferðir með þessu frv. Það er trú okkar flm., að með þessari vinnuaðferð, sem við leggjum hér til, verði vinnubrögðin gerð hagfelldari heldur en þau eru nú á skattstofum, verði gerð öruggari og það muni skapa meiri festu í skattaframtölunum heldur en nú er. Ég vil því undirstrika það og treysta því, að hv. alþm. taki á þessu máli hleypidómalaust og með fullri sanngirni og geri sér grein fyrir því, að vinnuaðferðir á skattstofunum, eins og þær eru nú, eru ónothæfar og það er ekki hægt að hugsa sér það að leggja á bæði skatt og útsvör samkv. framtölum, sem raunverulega eru ekki endurskoðuð, en þannig er framkvæmdin nú. Ég vil því treysta því, að hv. alþm. taki þetta mál til fullkominnar athugunar og geri sér grein fyrir því, hvort þessi vinnuaðferð getur ekki skapað þá festu og það öryggi, sem hér er ætlazt til.
Ég leyfi mér svo, herra forseti, að leggja til að, að þessari umr. lokinni verði málinu vísað til 2. umr. og hv. fjhn.