16.11.1970
Neðri deild: 19. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 372 í C-deild Alþingistíðinda. (2805)
71. mál, velferð aldraðra
Birgir Finnsson:
Herra forseti. Þetta frv. var flutt á síðasta þingi, en varð þá ekki útrætt. Það er endurflutt að þessu sinni óbreytt, Hv. 1. flm. frv., 5. þm. Vesturl., talaði ítarlega fyrir frv., þegar það var flutt hér á seinasta þingi og gæti ég þess vegna í sjálfu sér látið nægja að vísa til ræðu hans þá. Ég vil þó aðeins með örfáum orðum rifja upp, hvert er efni þessa frv. og tilgangur. Tilgangur frv. er að samhæfa og efla samstarf allra opinberra og einkaaðila, sem vinna að velferð aldraðra. Lagt er til, að í stað þeirra nefnda, sem fjallað hafa um þessi mál, komi föst stofnun, í nánum tengslum við Tryggingastofnun ríkisins. Þetta kemur m.a. fram í 1. og 2. gr. frv., en í 3. gr. þess er verkefni Velferðarstofnunar aldraðra nánar skilgreint á þessa lund, með leyfi hæstv. forseta:
1. Að halda uppi stöðugum rannsóknum á vandamálum aldraðra í landinu, þ.á.m. fjárhagslegri afkomu þeirra.
2. Að gera tillögur um lausn þeirra vandamála til allra aðila, sem láta sig þau skipta eða gætu stuðlað að lausn þeirra.
3. Að gera tillögur um lausn vandamála, sem einstök sveitarfélög eða aðrir aðilar beina til stofnunarinnar,
4. Að örva og styðja hvers konar félagsstarfsemi fyrir aldraða.
5. Að annast fræðslu um nútímaviðhorf til vandamála aldraðra og þróun þeirra mála erlendis.
6. Að gefa út leiðbeiningarit fyrir aldraða um vandamál ellinnar og lausn þeirra.
7. Að efna til námskeiða í félagslegu og öðru starfi, sem vinna þarf fyrir aldraða.
Í 4. gr. frv. er síðan nánar kveðið á um, hvernig stjórn velferðarstofnunarinnar skuli skipuð. Síðustu áratugi hefur sú skoðun fest rætur hér á landi, sem og í mörgum öðrum löndum, að þjóðfélaginu beri að sjá farborða þeim einstaklingum, sem af einhverjum ófyrirsjáanlegum ástæðum standa höllum fæti í lífsbaráttunni. Fyrst í stað var þessi hugsjón framkvæmd með stofnun sjúkrasamlaga og almannatrygginga, aðstoð við íbúðarbyggingar og ráðstöfunum til að greiða götu æskunnar til náms. Síðar hefur vaknað skilningur á því, að gera þurfi margvíslegar félagslegar og fjárhagslegar ráðstafanir til aðstoðar við þá aldursflokka, sem ýmist eru að búa sig undir starfsárin eða hafa lokið þeim, þar eð þeir hafa misst starfsorku að meira eða minna leyti vegna elli. Undanfarin ár hafa málefni unga fólksins verið mjög í sviðsljósi, en það hefur einnig vaknað nýr áhugi og nýr skilningur á vandamálum aldraðra, þótt minna hafi á því borið. Hér á landi hefur ríkisvaldið skipað nefndir til að fjalla um þau mál og hefur verið unnið gott starf á vegum þeirra, svo og ýmissa stofnana og félaga. Slíkar stofnanir eru til víða erlendis og þykja hafa unnið gott starf. Má nefna The National Old Peoples Committee í Englandi, sem starfað hefur síðan 1940 og á Norðurlöndum eru til stofnanir, þar sem saman koma ýmis frjáls samtök og opinberir aðilar, er vinna að málefnum aldraðra. Þann vísi, sem til er að slíku starfi hér á landi, er ætlunin að notfæra með þessu frv., þannig að það verði sett á fót stofnun, sem samhæfi starfsemi þessara aðila. Fyrr á árum var það trú manna, að fátt þyrfti að gera fyrir aldraða annað en að koma upp elliheimilum. Nú hafa gerólíkar og miklu mannúðlegri skoðanir rutt sér til rúms. Þær byggjast á því, að ekki sé nóg að bæta árum við lífið, heldur verði einnig að bæta lífi við árin. Aldraðir eiga að búa á eðlilegan hátt með yngra fólki og börnum eins lengi og unnt er. Slíkt hlýtur ávallt að geta orðið til þess að bæta sambúð ungra og gamalla. En á þeim tímum, sem við lifum nú, er mikil þörf á því. Þeir öldruðu þurfa að hafa vel fyrir nauðþurftum og létt starf eða áhugamál að fást við. Yngra fólk þarf að aðstoða þá eldri, þegar þrekið minnkar, en getur þegið margvíslega aðstoð af öldungunum í staðinn. Að sjálfsögðu verða að vera til sjúkradeildir og hjúkrunarheimili fyrir þá öldruðu, sem þess þurfa. Nú eru á mörgum stöðum í öðrum löndum reyndar ýmsar hugmyndir á þessu sviði og er okkur mikils virði að fylgjast með þeim og læra af þeim. Þess vegna er nauðsynlegt að til sé sérstök stofnun, sem um þessi mál fjallar og safnar saman vitneskju og sérþekkingu á málefnum aldraðra, veitir sveitarfélögum og öðrum aðilum ráð og minnir á þessi mál með því að birta niðurstöður af sífelldum athugunum og halda uppi fræðslu. Þessi atriði, sem ég hef nú drepið á, eru ítarlegar rakin í grg. með frv. Því fylgir enn fremur ítarleg grg. frá Erlendi Vilhjálmssyni um vandamál aldraðra og leyfi ég mér að vísa til þeirrar grg, að öðru leyti varðandi efni þessa frv.
Ég sé svo ekki ástæðu til, herra forseti, að fara um frv. fleiri orðum, en leyfi mér að leggja til, að, að lokinni þessari umr. verði því vísað til hv. heilbr.– og félmn.