04.11.1970
Neðri deild: 12. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 390 í C-deild Alþingistíðinda. (2836)

80. mál, þingsköp Alþingis

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Þetta frv., sem hér liggur fyrir á þskj. 82, hefur, eins og hv. frummælandi sagði, verið áður til meðferðar hér á hinu háa Alþ. og er um breytingu á þingsköpum Alþingis. Hv. þm. sagði, að ýmis atriði þingskapa væru orðin úrelt eða steinrunnin, eins og hann nefndi svo og skyldi maður ætla, að það væru þá hin elztu ákvæði þingskapanna, sem væru farin að steinrenna. En geta má þess til gamans, að þau ákvæði, sem lagt er til í frv., að breytt verði, eru einkum hin yngstu ákvæði þingskapanna, t.d. um útvarp og um fsp. og því líkt, en þessi fyrirbrigði eru frá síðustu áratugum, bæði útvarpið og fsp. í því formi, sem þær eru og ákvæðin um þetta því meðal yngstu ákvæða þingskapanna. Ég vek aðeins athygli á þessu, að það lítur út fyrir, að það séu ekki fyrst og fremst hin elztu ákvæði, sem n. telur, að þurfi að breyta, heldur fremur hin yngri.

Ég ætla nú ekki að fara að ræða efni frv. Ég hef áður athugað það nokkuð, þegar það hefur legið fyrir þingum og sýnist mér, að ýmislegt í því sé til bóta, en annað kunni að orka tvímælis. En mig langar til að spyrjast fyrir um það hjá hv. frsm., hvort það hafi nokkuð komið til orða í n., sem endurskoðaði þingsköpin, að nota útvarpið til þess beinlínis að opna þingið meira, en nú er gert. Nú er þingið opið á þann hátt, að þeir geta hlustað á umr. hér og séð, sem komast fyrir á þingpöllunum og svo kynnzt því, sem þar hefur farið fram með aðstoð blaða og þingfréttamanns útvarps, en mér er tjáð, að til séu dæmi um það í veröldinni, að þessi mikli fjölmiðill, útvarpið, sé notað beinlínis til þess að opna þingið að meira eða minna leyti og láta útvarpa því, sem þar fer fram. Nú er það orðið svo, að útvarpið okkar hér á Íslandi er starfandi mikinn hluta sólarhringsins frá því snemma á morgnana og seint á kvöldin, þannig að þetta ætti í sjálfu sér að vera vel gerlegt, að útvarpa t.d. tveggja tíma fundi, þingfundi, en þó auðvitað ekki nema frá annarri d. eða Sþ. í einu. Ég er aðeins að spyrja um þetta, hvort þetta hafi komið til orða í n. og hvort hún hafi kynnt sér fordæmi um þetta erlendis. Ég fékk einhvern tíma þær fréttir, að þetta tíðkaðist t.d. í Ástralíu, sem er að ýmsu leyti mikið nýtízkuland.

Það er nú aðallega þetta, sem mig langaði til að spyrja hv. frsm. um, en í öðru lagi langar mig til að spyrja hann um það, hvort ekki hefur komið til mála í n. að breyta eitthvað fastanefndum Alþ. og á ég þá einkum við Sþ. En þannig er ástatt þar, að þegar fjallað er um vissa tegund samgöngumála, þá kemur þar saman nefndarsamkoma, sem kölluð er samvinnunefnd samgöngumála og eru það nefndir úr þingdeildunum, úr samgmn. Ed. .og Nd. Þær koma saman í Sþ. og kalla sig samvinnunefnd samgöngumála og gera till. um sérstakan afmarkaðan þátt samgöngumálanna. Þetta hefur mér lengi fundizt undarleg tilhögun og ég hef nú talið, að þetta ætti í raun og veru ekki stoð í þingsköpum, þótt hins vegar hafi myndazt um það nokkuð löng venja og væri þá e.t.v. ástæða til þess að setja á laggirnar sérstaka n., samgöngumálanefnd í Sþ., ef ástæða þykir til að fjalla um þennan þátt samgöngumáða utan fjárveitinganefndar, eins og gert hefur verið.

Það er þetta tvennt, sem ég vildi beina til hv. frsm. og væri gott að fá upplýsingar um núna, en ég vil vænta þess eins og hann, að á þessu þingi gefi menn sér tíma til þess að ganga frá þessu þingskapamáli, en því er ekki að neita, að hér er um mjög mikið vandamál að ræða, þar sem þingsköpin eru.