18.11.1970
Neðri deild: 20. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 399 í C-deild Alþingistíðinda. (2857)

88. mál, Stofnlánadeild landbúnaðarins

Pálmi Jónsson:

Herra forseti. Út af ræðu hv. 5. þm. Norðurl. e. og því frv., sem hér er til umr., þykir mér rétt að segja örfá orð. Ég vil þó taka það fram, að ég tel ekki, að ég þurfi á neinn hátt að taka upp hanzkann fyrir hæstv. ríkisstj. eða hæstv. landbrh., sem lokin í ræðu hv. þm. beindust fyrst og fremst að. En vegna efnisatriða í þessu frv. vildi ég láta það koma hér fram, að sú endurskoðun, sem nú fer fram á stofnlánadeildarlögunum, er að komast á lokastig. Þess má vænta, að frv., sem byggist á þeirri endurskoðun, verði lagt fyrir hv. Alþ. á næstu vikum og þar verða tekin til meðferðar hin ýmsu viðfangsefni, sem ætlað er, að í framtíðinni falli undir þau lög. Í endurskoðunarnefndinni hafa verið rædd hin ýmsu efnisatriði laganna, eins og þau eru og þær breytingar, sem æskilegt sýnist að gera á þeim. Þar hafa verið rædd ýmis ný svið, sem æskilegt er, að ríkið í gegnum þessi lög taki upp stuðning sinn við. Þar hafa vissulega verið rædd öll þau atriði, sem á er minnzt í þessu frv. Þó að svo sé, tel ég ekki tímabært nú að skýra frá einstökum atriðum, því að eins og sagði áðan er endurskoðun laganna hjá nefndinni að komast á lokastig og það mun koma fram á sínum tíma, hvað hún leggur til. Ýmislegt af því, sem hv. 5. þm. Norðurl. e. gat um, var hér réttilega sagt. Hins vegar er það nú háttur þessa hv. þm. að taka munninn stundum nokkuð fullan, eins og hv. dm. kannast við og skal ég samt ekki fara að rekja dæmi um það, en ég vil taka það fram, að t.d. um það atriði, sem hér er minnzt á í frv., hækkun íbúðarhúsastyrksins, þá er það ljóst, að hann þarf ekki einungis að miða við vísitölu, heldur einnig við það, hver lánsupphæðin er til íbúðarhúsa og þetta samanlagt, lánsupphæð og styrkur, þarf að vera nokkuð sambærilegt við þau lán, sem veitt eru eftir hinu almenna veðlánakerfi ríkisins til þeirra, sem byggja á skipulagsskyldum svæðum. Það er rétt, að styrkurinn hefur dregizt mjög aftur úr og hann þarf að hækka. Hvort hann þarf að hækka í 150 þús. kr. eða einhverja aðra fjárhæð, skal ég láta liggja á milli hluta að þessu sinni, en ég tek það fram, að í því sambandi þarf einnig að hafa hliðsjón af þeim lánaupphæðum, sem bankastjórn Búnaðarbanka Íslands ákveður.

Um þau önnur atriði, sem á er minnzt í þessu frv., skal ég ekki hafa mörg orð. En varðandi það, er segir um aukinn stuðning við endurræktun túna og það, er segir í frv., sem þessi sami hv. þm. mælti fyrir, um breytingar á jarðræktarlögunum, hér í gær, þá hafa þau efnisatriði öll verið rædd í endurskoðunarnefndinni og má vænta þess, að Landnámi ríkisins verði falið að taka upp aukinn stuðning til þessara þátta og ýmissa fleiri atriða, sam hv. þm. minntist ekki á. En endurskoðun laganna er mikið verk. Þau eru að meginstofni með orðalagi, sem tilheyrir gömlum tíma. Þó að þau hafi verið endurskoðuð með tiltölulega fárra ára millibili síðan þau voru fyrst samin, þá er andi þeirra og megintilgangur enn að mestu leyti við hæfi þess tíma, er þau voru í upphafi samin á. Og þess vegna hefur endurskoðunin tekið nakkuð langan tíma, því að nú verður ekki lengur hjá því komizt að aðhæfa lögin viðhorfum nútímans.

Ég vil taka það fram að lokum að, að sjálfsögðu mun þetta frv., sem hér liggur fyrir, fá sína athugun í n. Þess má vænta, að frv., sem byggt verður á athugun mþn., sem fjallar um stofnlánadeildarlögin, verði einnig vísað til sömu n., þ.e. landbn. og þau frv. þá væntanlegu skoðuð þar saman og nægilegt svigrúm mun gefast fyrir hv. flm. þessa frv. til að koma þar að þeim ábendingum, sem hann telur, að þörf sé á að fram komi um einstök efnisatriði.