18.11.1970
Neðri deild: 20. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 402 í C-deild Alþingistíðinda. (2860)
88. mál, Stofnlánadeild landbúnaðarins
Flm. (Stefán Valgeirsson):
Herra forseti. Síðasti hv. ræðumaður gat um það, að í sambandi við íbúðarhúsalánin yrði að miða við vaxtakjör og annað, þegar þetta væri allt saman athugað og metið. Ef við förum að athuga, hvernig þetta er í sambandi við þær stéttir, sem eru tekjuminnstar, miðað við þau lög, sem voru samþykkt á s.l. ári, þá er þar ákveðið, að vaxtakjörin geti verið í sambandi við þann hluta, sem fátækustu verkamennirnir fá, 2% vextir til 42 ára. En þessi lán, sem við erum með, eru með 6% vöxtum, eins og hv. þm. veit, en aftur hjá Húsnæðismálastofnuninni eru þau með 41/4 % vöxtum. Og í flestum tilfellum — þó að Hagstofan eða sumir af hennar sérfræðingum hafi komizt að þeim niðurstöðum, að ódýrara sé að byggja úti í sveitum heldur en í kaupstöðum — er það mín reynsla, að það er alrang og það er vegna þess, að það eru vissir liðir, sem bændurnir verða að greiða umfram það, sem fólk í þéttbýlinu þarf að borga í sambandi við sínar byggingar. Það er að vísu rétt, að sums staðar eru allveruleg lóðargjöld, en ég vil benda á það, að t.d. allur flutningskostnaður kemur yfirleitt umfram það, sem er þá í þéttibýlinu og í öðru lagi eins og háttar víðast hvar, þá verða bændur að fá vinnuflokka til þess að byggja fyrir sig og þar sem ég þekki bezt til, þá fara þeir frá og til kaupstaðarins á hverjum degi í vinnutímanum og bóndinn verður að skaffa þeim fæði umfram taxtakaup, þannig að í mörgum tilfellum mun byggingarkostnaður í sveitum a.m.k. ekki verða lægri, heldur frekar hærri en í þéttbýlinu. Á þetta verður líka að líta, þegar verið er að meta þessi mál á alla vegu.
Hv. þm. sagði, að það væru í Hagtíðindum hér á borðinu allar tölur í sambandi við kaup stéttanna. Ég vil bara geta þess, að þessi tala, sem ég hef hér, hún er frá Hagstofunni beint. Ég hef ekki athugað, hvernig hún er fundin, þessi tala, en þessa tölu hef ég beint frá Hagstofunni milliliðalaust og þetta er það, sem hún gefur upp að séu meðaltekjur bóndans, hvernig sem á þessari tölu stendur.
Að öðru leyti sé ég ekki ástæðu til þess að fara frekar út í þetta mál við þessa umr., nema annað tilefni gefist til.