18.11.1970
Neðri deild: 20. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 403 í C-deild Alþingistíðinda. (2861)
88. mál, Stofnlánadeild landbúnaðarins
Sverrir Júlíusson:
Herra forseti. Það er aðeins örstutt athugasemd út af því, sem hv. 5. þm. Norðurl. e. sagði áðan. Ég tók eftir því í hans fyrstu ræðu, að þá talaði hann um það, að tjón af þurrafúa í bátum væri bætt af því opinbera. Hann sagði það frekar þrisvar, en tvisvar og mér fannst þess vegna ástæða til þess að gefa örlitla skýringu á því. En út af þessu frv., sem hér liggur fyrir á þskj. 92, þá efast ég ekki um, að Stofn1ánadeildin þarf aukið fjármagn til þess að vinna sitt hlutverk og ég er sannfærður um það, að bæði hv. þm., sem ég nefndi og öðrum gangi gott eitt til að flytja þetta. Hann minntist á þetta, eins og ég sagði áðan og einnig er að þessu mikið í grg. á bls. 3, en sannleikurinn er sá, að þetta er reginn misskilningur, að ríkið hafi greitt nokkurn tíma fyrir þurrafúa. Þegar þessi vágestur kom á árunum 1950—1960, þá vissu menn ekki almennilega, hvernig skyldi bregðast við þessu og það var þannig fyrstu árin, að ríkissjóður veitti ábyrgð fyrir lánum, sem mynduðust vegna þessara hluta. Síðan gerðist það, að löggjafinn samdi tryggingalög, þar sem sérstök trygging var vegna þessa þurrafúa og hefur tryggingin verið allt upp í 4.3% af því verðmæti, sem hefur verið lagt til grundvallar, sem er hluti af tréskipunum, en hefur farið lækkandi nú síðustu árin. En þeir, sem greiða í þennan tryggingasjóð, — greiða þessi tryggingaiðgjöld, eru engir aðrir en útvegsmennirnir sjálfir, þar sem Tryggingasjóður fær sínar tekjur frá útvegnum, en ekki ríkissjóði. Þetta er mjög útbreiddur misskilningur, svo að hæstv. þm. er vorkunn að halda, að það sé ríkið, sem greiðir þetta, en þetta er reginn misskilningur.
Ég segi þetta vegna þess, að ég veit, að margir, ef ekki allir flm. þessa frv. vilja hafa það, sem sannara reynist og ég efast ekki um, að frsm. vilji það einnig, en mér fannst ástæða til þess, að þetta kæmi fram. Það ber ekki að skilja orð mín þannig, að ég viti ekki, að það sé mjög mikil þörf á því að aðstoða í sambandi við ka1 og annað, heldur vildi ég aðeins gera þessa athugasemd eða öllu heldur leiðbeiningar, svo að menn væru ekki alltaf, eins og ákaflega oft kemur fram, að byggja auð í annars garði og halda aðrar stéttir sitja við betra borð en þeir sitja.