01.02.1971
Neðri deild: 41. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 453 í C-deild Alþingistíðinda. (2951)

150. mál, náttúruvernd á vatnasviði Mývatns og Laxár

Bjartmar Guðmundsson:

Herra forseti. Eins og framsögumaður þessa máls tók fram hér í upphafi, þá var þetta frv. flutt að ósk náttúruverndarráðs skv. bréfi, sem formaður ráðsins sendi n. í fyrravetur. Það var einnig rétt hjá framsögumanni, að upptök þess, að þetta frv. var samið og síðan flutt, var það mikla mál, sem allir þekkja, deilan um Gljúfurversvirkjun. Nú hefur menntmn. aftur verið beðin að flytja þetta frv. og að því er ég ætla, kom óskin frá landeigendafélagi við Mývatn og Laxá. Hins vegar var ég ekki á þeim fundi, þegar þetta frv. var lagt fyrir n. og hún beðin að flytja það, en ég hygg nú samt, að þetta sé rétt með farið. Nú tel ég, að það ástand, sem ríkti í fyrra, þegar óskað var að flytja þetta frv., sé að miklu leyti breytt. Það, sem knúði á um samningu þess, var upphaflegt plan um Gljúfurversvirkjun og flutning Suðurár í Bárðardal eða ofan við Bárðardal niður í Laxá og Laxárdal, og síðan 57 metra stífla í Laxárdal. Frá hvoru tveggju þessu er nú horfið. Þar með hefur málið tekið ákaflega miklum breytingum frá því í fyrra. Eigi að síður tel ég, að þetta frv. eigi fullan rétt á sér þrátt fyrir þetta, vegna þess að því var ætlað að ná út yfir miklu fleira heldur en aðeins að stöðva flutning Suðurár niður í Laxárdal og byggingu hinnar miklu stíflu. Hin margþættu náttúruauðæfi við Laxá og Mývatn eru alkunn. Og það er mjög aðkallandi að finna ráð til að varðveita þau sem allra bezt. Það er bæði fuglalífið við Mývatn og alls konar náttúrufyrirbæri önnur á þeim stað, sem eru svo mikils virði, að það verður mikið í sölurnar að leggja til að varðveita þau. Og það er ekki aðeins til þess að varðveita þessi náttúruauðæfi frá utanaðkomandi öflum, svo sem virkjanahugmyndum, heldur mun þetta vera nauðsynlegt til þess að varðveita Mývatn fyrir Mývetningum sjálfum, ef svo mætti segja. Á bökkum Mývatns eru t.d. olíutankar við hvert einasta íbúðarhús, að ég hygg og það þarf ekki mikið út af að bera, til þess að olíutankar springi og olía flæði út um vatnið og eyðileggi í stórum stíl fuglinn. Það má líka benda á það, að um langan aldur, eða a.m.k. nú um tvo áratugi, hefur neta notkun í Mývatni gengið ægilega nærri fuglinum þar. Síðan nælonnetin komu og síðan hraðbátar komu á vatnið og silungsveiðar eru stundaðar um allt vatn, þá hefur legið í Mývatni u.þ.b. 10 km löng netjatrossa sumar eftir sumar, 3 mánuði á hverju sumri og lengur, einmitt á þeim tíma, sem unginn er að vaxa upp og mest hættan er á að hann lendi netum. Ég skrifaði um þetta mál fyrir rúmum áratug og vakti athygli á þessu, en enn þá situr við það sama í þessu efni.

Það er ýmislegt fleira, sem mætti nefna í sambandi við það, að það sé nauðsynlegt að gera ráðstafanir til þess að varðveita Mývatn fyrir fleiru, en stórvirkjunum niðri í Laxárdal. Af þessum sökum er ég því jafnt sammála og í fyrra, að þetta frv. verði skoðað í n. og n. gangi frá því með breytingum, sem nauðsynlega þarf á því að gera að vísu. Það hafa komið fram þó nokkrar raddir bæði úr Mývatnssveit og annars staðar úr héraði um breytingar á þessu frv., sem ég tel að hafi við rök að styðjast og þess vegna þarf að skoða það vandlega og ég álít, að það sé ekki síður ástæða til þess að gera sérstök lög um verndun Mývatnssvæðisins heldur en t.d. lög um verndun Þingvalla og svæðis í kringum Þingvelli, sem sett voru fyrir eitthvað 20 árum og voru talin nauðsynleg.

Enn er það eitt í þessu sambandi, sem vakir fyrir þeim, sem samið hafa þetta frv. og flutt, þ.e. að styðja það, að upp verði sett náttúrurannsóknarstöð við Mývatn, sem hefur lengi verið til umræðu hin síðari ár og náttúruverndarráð hefur haft mikinn áhuga á, að upp kæmist. Þetta frv. gerir ráð fyrir því, að aðgerðir verði studdar í þá átt. Ég tel því, að nú sé alls ekki ástæða til að breyta afstöðu til þessa frv. þrátt fyrir það, að breyting hefur orðið mikil á þeim hugmyndum, sem áður voru um Gljúfurversvirkjun, af þeim ástæðum, sem ég hef nú þegar rakið.

Ég sé svo ekki ástæðu til þess að ræða þetta mál frekar, en mín afstaða núna er ákveðin sú, að það beri að stuðla að því að þetta frv. nái fram að ganga í aðalatriðum eins og það er nú flutt. Hins vegar tel ég nauðsynlegt að gera á því breytingar. Það mætti að vísu segja, að þetta frv. ætti eðlis síns vegna að renna inn í annað frv., sem lagt var fyrir Alþ. hér í fyrra, frv. um náttúruvernd, en það komst skammt áleiðis í fyrravetur, eins og raunar þetta frv. og enn hefur það ekki fengið byr hér í þinginu, svo að maður veit ekki, hvað því líður, hvenær það muni ná fram að ganga. En ég álít, að það sé mjög merkilegt frv., ég hef lesið það og er mjög vandað til frágangs á því í milliþinganefnd árum saman að undanförnu og ég vona fastlega, að það komi fram hér á þinginu og verði afgreitt sem allra fyrst. En þar sem Mývatn og Mývatnssvæðið er svo sérstætt, þá hallast ég frekar að því, að réttara sé að hafa sérstakt frv. um það, sérstök lög um það, svipað eins og sérstök lög gilda um Þingvelli og það byggðarlag, sem þar er í kring og þann merkilega stað. Ég hallast frekar að því, að eðlilegra sé, að þetta sé sérstakt, að þetta sé ekki kafli um þessi mál í hinu almenna náttúruverndarlagafrv., sem ég vona, að komi til afgreiðslu á þessu þingi, áður en langt um líður. Þess vegna mun ég styðja að framgangi þessa frv. og að það verði skoðað í n. og að n. skili áliti um það.