11.02.1971
Neðri deild: 46. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 460 í C-deild Alþingistíðinda. (2962)

150. mál, náttúruvernd á vatnasviði Mývatns og Laxár

Jónas Árnason:

Herra forseti. Ég vil minna á það, að örlög þess máls, sem við erum hér að ræða um, urðu þau á síðasta þingi, að það var á dagskrá alloft, en það var ekki einu sinni afgreitt til n. Og ég vænti þess, að sá leikur eigi nú ekki að endurtaka sig og hvet hæstv. forseta, sem jafnframt er formaður menntmn., sem flytur frv. og þar með 1. flm. þess formlega séð, til þess að ýta á um afgreiðslu þessa mjög svo mikilvæga máls.