17.02.1971
Neðri deild: 47. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 464 í C-deild Alþingistíðinda. (2965)

150. mál, náttúruvernd á vatnasviði Mývatns og Laxár

Stefán Valgeirsson:

Herra forseti. Mér hefði nú fundizt það í raun og veru eðlilegast, að hæstv. forsrh. og iðnrh. hefði verið viðlátinn, verið hér í salnum, þegar þessi umr. færi fram og ég harma það, að þetta skyldi hafa verið tekið fyrir hér í hans fjarveru. En það mun nú ekki skipta því máli, að ég mun flytja ræðu mína þrátt fyrir það, en ég harma þetta.

Þó að ástæða væri til þess að ræða sérstakar greinar þessa frv., þá mun ég ekki gera það að þessu sinni, enda mundi það ekki þjóna neinum tilgangi, þar sem þetta frv. mun fara aftur til hv. menntmn, til frekari skoðunar og fram hefur komið, að vaxandi áhugi er fyrir lagasetningu um þetta málefni, bæði hjá hv. menntmn. og yfirleitt hjá hv. alþm. Mun því gefast kostur á að athuga þetta mál, ef ástæða sýnist til, er það kemur til meðferðar Alþ. á síðari athugunarstigum þess. En að gefnu tilefni vil ég benda á, að þetta frv. er að stefnu til samhljóða frv. því, er við þm. Framsfl. í Norðurl. e. fluttum fyrir jólin um virkjun fallvatna í Þingeyjarsýslu. Munurinn er sá, að í okkar frv. var miðað við að gera tilraun til að leysa deiluna um virkjun Laxár og töldum við, að það mundi verða til þess, ef lögfest yrði, að eyða þeim ótta, sem hlutaðeigandi íbúar umræddra héraða hafa verið í, þar sem þær framkvæmdir, sem þegar eru hafnar, eru ekki það frábrugðnar hinni upphaflegu Gljúfurversvirkjun, að þær gátu að flestu leyti verið undirstaða hennar. En frv. okkar, ef að lögum verður, mundi taka allan vafa af um það efni. Hins vegar er þetta frv. sem hér er nú til umr., um takmarkaða náttúruvernd alls vatnasviðs Laxár og Mývatns. Ég er þeirrar skoðunar, að það sé ekki seinna vænna fyrir okkur að hefjast handa á þessu sviði, ef ekki á að henda óbætanlegt slys, ekki sízt þegar um er að ræða svæði eins og þetta frv. fjallar um, sem er hvort tveggja eftirsótt fyrir margra hluta sakir og sennilega mjög næmt fyrir utanaðkomandi áhrifum, sem erfitt gæti verið að bæta fyrir, þó að á því væri fullur vilji. Mér er t.d. tjáð, að sýrustig hafi hækkað mjög í Mývatni að undanförnu, jafnvel svo, að einhverju lífi þar gæti verið hætta búin. Hvað veldur þessu er e.t.v. erfitt að segja um. Hins vegar hefur ýmsum dottið í hug, að ástæður fyrir þessu gæti verið að rekja til borunar eftir heitu vatni og gufu í Mývatnssveit, því að allt rennsli frá þeim holum, sem þarna hafa verið gerðar, fer í Mývatn. En allt slíkt er þó enn á huldu. En þetta þarf að rannsaka og koma í veg fyrir tjón, ef rannsókn sýnir, að af þessu gæti stafað hætta og hægt er um að bæta. Í þessu sambandi má benda á, að þegar er búið að byggja a.m.k. einn sumarbústað á þessu svæði og gífurleg hætta á, að fleiri komi á eftir, ef ekki verða þegar reistar skorður við slíkum byggingum, því að ekki mun skorta áhuga á að eignast land og byggja á því sumarbústaði í slíku umhverfi, sem er við Laxá og þó sérstaklega á Mývatnssvæðinu og alltaf eru einhverjir veikir fyrir peningum, ekki sízt, ef fjárhagserfiðleikar eru fyrir hendi eins og hjá mörgu bændafólki nú.

Það er mín bjargfasta trú, að okkar þjóð eigi meiri möguleika á því en flestu öðru að hafa tekjur af því að laða hingað ferðafólk í stórum stíl, ef við getum valdið þeim verkefnum, sem til þess þarf. Í fyrsta lagi að geta tekið á móti þessum gestum svo að vel sé og hér sé eitthvað að sjá, sem er frábrugðið því, sem önnur lönd hafa upp á að bjóða. Og fyrst og fremst er þá það, sem mér sýnist skipta höfuðmáli, að við verðum svo forsjál að varðveita ósnortna náttúru á vissum svæðum í landinu og á einu þessara svæða eru einmitt þeir staðir, sem þetta frv., sem hér er til umr., fjallar um. Ferðamenn koma tæplega hingað um langan veg til þess að sjá mannvirki, svo sem orkuver og þó að draumur hæstv. ríkisstj. um að reisa hér á landi 20–30 álver yrði einhvern tíma að veruleika eða aðrar álíka raunhæfar áætlanir, þá hef ég ekki trú á því, að slík mannvirki mundu draga að ferðafólk, heldur hið gagnstæða, því að mér virðist, að í öllum löndum þyki mönnum nóg um slíkt.

Ef á annað borð á að gera okkar land að eftirsóttu ferðamannalandi, þarf að skoða þessi mál og gera sér fulla grein fyrir, hvað þarf að gera og hvað má ekki gera, til þess að það megi verða. Og ber okkur ekki, sem eigum sæti hér á hv. Alþ., að gera viðhlítandi ráðstafanir á meðan ekki er um seinan, til þess að ekki verði gerð spjöll á náttúrufegurð og náttúrufari landsins, þar sem það er sérstæðast og mikilfenglegast og skila því þannig til komandi kynslóða? Verður það ekki veglegri minnisvarði fyrir okkur, sem hér erum, en þó að t.d. breytt sé rennsli fallvatna okkar og samið við erlend auðfélög um að byggja 20–30 álver? Og í þessu sambandi vil ég spyrja hv. alþm. að því, hvað sé alvarlegasta vandamálið, sem stórþjóðirnar hafa nú við að stríða og horfa á með vaxandi ugg. Það dýrmætasta, sem þessi þjóð á, er landið og sjórinn umhverfis það á meðan við getum haldið hvoru tveggja ómenguðu. Fram hjá því skulum við ekki ganga.

Hv. 9. landsk. þm. (BrS) sagði m.a. í umr. um þetta mál hér um daginn, með leyfi forseta: „Ég skoða náttúruvernd sem gott mál svo lengi sem það fer ekki á þær villigötur að torvelda manninum að búa góðu lífi í sínu heimalandi.“ Ég get ekki betur séð en hv. 9. landsk. þm. sé kominn í alvarlega andstöðu við formann Alþfl., hæstv. menntmrh. Ég man ekki betur en ráðh. væri kominn að þeirri niðurstöðu eftir að hafa stjórnað með íhaldinu í öll þessi ár, að það væri ekki allt fengið með hinum veraldlegu verðmætum. Það væri meira virði að lifa fögru mannlífi og að því ættum við að stefna. Sumir, tóku þessi ummæli hæstv. menntmrh. á þann veg, að þau bentu til þess, að hann væri farinn að hafa samvizkubit af stjórnarstefnunni og væri nú farinn að hugsa til hreyfings. En hvað um það? Það er enginn vafi á því, að í þessu efni er í mörgum tilfellum fráleitt að láta peningasjónarmið ráða. Peningasjónarmiðið er ekki sú mælistika, sem á að nota í slíku máli.

Það var að heyra á hv. 9. landsk. þm., að það skipti einhverju máli, hvort náttúruverndarráð í heild eða einn af þeim eða einhver annar hefði samið þetta frv. Ég get ekki séð, að frv. sé betra eða verra fyrir það, hvað eða hverjir hafa samið það, það skiptir minnstu, heldur hitt, hvernig það er og eftir því á að meta það. Hins vegar er það alveg rétt hjá hv. 9. landsk. þm., að þörfin fyrir raforku er mjög mikil og brýn í þessum landshluta og það er annað mál. Það sýnir bezt, hvernig forustan hefur verið í þessum málum. En að því mun ég koma betur síðar. Og enn segir hv. 9. landsk. þm., með leyfi forseta:

„Þetta er deila milli landeigenda við Laxá og hinna fjölmörgu og miklu fleiri íbúa héraðsins, sem vantar aukið rafmagn. Þetta er þó ekki einu sinni deila allra landeigenda við Laxá, því eð ríkið á margar jarðirnar, sem liggja að Laxá.“

Þetta leyfir hv. þm. sér að segja, þó að hann hljóti að vita, að þetta er óralangt, — ég sagði óralangt frá sannleikanum. Og þó virðist hv. þm. vilja leiða sannleikann í ljós í þessu máli, en annað var ekki að heyra á honum, bæði um daginn og hér áðan, þegar hann talaði fyrir stundu. Ja, sannleikurinn virðist taka á sig margvíslegar myndir eftir því, hver á heldur. Og af þessu tilefni vil ég lesa nokkrar ályktanir frá ýmsum aðilum, er ættu að sýna, hvað rétt er í þessu máli, með leyfi forseta. Ég vil þá byrja á því að lesa hér upp samþykkt, sem var gerð á aðalfundi Stéttarsambands bænda á s.l. hausti, en þar eru, eins og hv. þm. vita, mættir fulltrúar bændanna úr öllum héruðum landsins, en þessi ályktun var samþ. samhljóða:

„Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1970 leggur ríka áherzlu á, að náttúru landsins verði ekki spillt með mannvirkjagerð af hálfu einstaklinga, félagasamtaka eða opinberra aðila. Fundurinn gerir þá kröfu, að opinberir aðilar ákveði ekki breytingu á rennsli fallvatna, stíflugerðir eða önnur mannvirki, er áhrif hafa á umhverfi sitt, nema fyrir liggi samþykki hlutaðeigandi bænda, sveitarfélaga og náttúruverndarráðs. Fundurinn leggur áherzlu á aukna verndun og ræktun íslenzkra veiðivatna til fjölbreyttari atvinnuhátta í sveitum landsins og þjónustu við ferðamenn. Að gefnu tilefni vill fundurinn vekja sérstaka athygli á einstæðu náttúrufari Mývatns— og Laxársvæðisins. Fundurinn lýsir fullum stuðningi sínum við þau sjónarmið, að þetta svæði beri að verja um aldur og ævi gegn hvers konar náttúruspjöllum af manna völdum og skorar á Alþ. og ríkisstj. að tryggja verndun þess með löggjöf.“

Á 13. þingi framsóknarmanna í Norðurl. e., þar sem voru saman komnir fulltrúar úr öllum hreppum og bæjum á þessu svæði, var ennfremur samþykkt samhljóða eftirfarandi ályktun, með leyfi forseta:

„Þá harmar kjördæmisþingið þann undirbúning nýrra virkjana í Laxá, sem reynzt hefur ófullnægjandi og m.a. hefur leitt af sér hinar hörðu deilur milli Laxárvirkjunarstjórnar og Félags landeigenda við Laxá og Mývatn. Þingið hvetur eindregið til sátta milli deiluaðila, lýsir fylgi við þau almennu náttúruverndarsjónarmið og styður þær vatnsborðshækkanir einar í Laxá vegna raforkuöflunar, sem samkomulag næst um milli deiluaðila að undangenginni líffræðilegri rannsókn á vatnasviði Laxár og Mývatns. Kjördæmisþingið telur nauðsynlegt að endurskoða reglur um eignaraðild að Laxárvirkjun og gefa öllum sveitarfélögum á orkusvæðinu kost á aðild“.

Þessi samþykkt var samþ. samhljóða á hinu fjölmenna þingi á Akureyri, sem framsóknarmenn héldu í haust sem leið. Og í sambandi við það mál, sem hér er til meðferðar, vil ég leyfa mér að lesa upp ályktanir nokkurra hreppsnefnda, með leyfi forseta. Og hér kemur þá fyrst:

„Grænavatni, 28.l.1970.

Á fundi sveitarstjórnar Skútustaðahrepps 6. þ.m. var samþ. svofelld bókun.

2. mál: Oddviti las upp uppkast að frv. um takmarkaða náttúruvernd á vatnasviði Mývatns og Laxár í Suður–Þingeyjarsýslu. Sveitarstjórnin lýsir ánægju sinni yfir, að slíkt frv. komi fram, enda áður yfirlýst stefna sveitarstjórnarinnar samkv. fundangerð frá 7. maí 1969. Sveitarstjórnin telur þó nauðsynlegt, að annaðhvort í nefndu frv. eða í reglugerð séu nánari ákvæði um varnir gegn mengunarhættu af völdum olíu, skolps eða af öðrum eiturefnum, svo sem þvottaefni o.s.frv. Virðingarfyllst,

oddviti Skútustaðahrepps.“

Hér kemur annað frá Reykdælahreppi, dags. sama dag, 28.1.1970:

„Á fundi hreppsnefndar Reykdælahrepps 29. des. 1969 var tekið fyrir til umr. frv. til l. um takmarkaða náttúruvernd á vatnasviði Mývatns og Laxár, er hreppsnefnd hafði verið sent til umsagnar. Eftirfarandi bókun var gerð:

“Hreppsnefnd Reykdælahrepps mælir með því, að sett verði sérstök lög um takmarkaða friðlýsingu Mývatns– og Laxársvæðisins svipuð og gert er ráð fyrir, sbr. frv. það til l., er fyrir liggur. Þó vill hreppsnefndin benda á, að rétt muni vera að tilgreina nánar, hvað er Laxársvæði.“

Og þetta er undirskrifað af oddvitanum, Teiti Björnssyni.

Svo er hér mikil grg., sem ég hef milli handanna og er frá samtökum um náttúruvernd á Norðurlandi. Í þessari grg., sem er mjög yfirgripsmikil og ítarleg, er mælt með því, að þetta frv. sé samþ., en undir þetta skrifa Helgi Hallgrímsson safnvörður, Akureyri, Hjörtur E. Þórarinsson, bóndi á Tjörn, Árni Sigurðsson sóknarprestur, Blönduósi, Egill Bjarnason ráðunautur, Sauðárkróki, og Jóhann Skaftason sýslumaður, Húsavík.

Hv. 9. landsk. þm. sagði í sinni ræðu um daginn, að hreppsnefndirnar í Reykjahreppi og Aðaldælahreppi og hreppsnefndin í Reykjadal kvæðu sig samþykkar virkjuninni, einn á móti. Og svo segir hv. þm., með leyfi forseta:

„Dettur ykkur nú í hug, að það sé rétt, sem stundum hefur verið haldið fram, að það sé verið að níðast á Þingeyingum í þessu máli, þegar hreppsnefndirnar taka málinu svona?“

Ég fékk hér um daginn frá iðnrn. þær ályktanir, sem því höfðu borizt um þetta mál. Enn fremur barst mér símskeyti frá oddvita Reykdælahrepps með bókun hreppsnefndar þar um málið, sem er frá Jóni Jónssyni á Þverá og staðfest af oddvita, Teiti Björnssyni. Þetta símskeyti er svohljóðandi, með leyfi forseta:

„Það vottast hér með, að engin atkvgr. hefur farið fram í hreppsnefnd Reykdælahrepps um svokallaðar miðlunartillögur sáttasemjara í Laxármálunum.

Oddviti Reykdælahrepps, Teitur Björnsson.“

Og hér er bókunin, sem var gerð á sama fundi:

„Árið 1971, 11. jan., kom hreppsnefnd Reykdælahrepps saman til fundar á Brún. Mættir voru aðalmenn aðrir en Ingi Tryggvason, en í stað hans mætti Guðmundur Gunnarsson. Tilefni fundarins voru tilmæli, er borizt höfðu frá iðnrn. um umsögn um virkjunarmál Laxár. Lesin voru og rædd ýmis plögg málinu viðvíkjandi, en ekki varð samkomulag um ályktun. Hins vegar vill hreppsnefndin fagna þeim árangri, er náðst hefur um viðurkenningu á umráðarétti bænda á löndum sínum fyrir baráttu landeigendafélags Laxár og Mývatns.“

Þetta er sú bókun, sem gerð var á þessum fundi. Og hér er fyrir framan mig bókun frá hreppsnefnd Reykjahrepps:

„Við undirritaðir hreppsnefndarmenn Reykjahrepps höfum kannað sáttatillögur iðnrn. og önnur gögn, sem okkur hafa verið send og gert eftirfarandi bókun:

Eins og málið stendur í dag, fögnum við þeirri ákvörðun stjórnar Laxárvirkjunar að vera horfnir frá Gljúfurversvirkjun, þ.e. vatnaflutningi úr Suðurá og Svartá yfir í Kráku og þaðan í Laxá. Jafnframt lýsum við stuðningi okkar við framkomið bréf iðnrn., dags. 13. maí 1970, þar sem það er í nær öllum atriðum í samræmi við samþykkt sýslunefndar Suður–Þingeyjarsýslu á sýslufundi á árinu 1969“.

Undir þetta skrifa Stefán Óskarsson, Sigtryggur Árnason og Þórarinn R. Jónsson.

Hér er svo umsögn sveitarstjórnar Skútustaðahrepps:

„Sveitarstjórn Skútustaðahrepps telur tillögur iðnrn. algerlega óaðgengilegar og lýsir undrun sinni á kortinu af Birningsstaðaflóa, sem með fylgir og virðist auðsjáanlega rangt. Sveitarstjórnin lítur svo á, að stjórn landeigendafélagsins sé sá aðili, sem á að fjalla um þessi mál og semja beri við. Hins vegar telur sveitarstjórnin, að umræðugrundvöllur geti verið fyrir framkvæmdum í Laxá, ef þær rannsóknir,, sem nú eru ákveðnar, leiði ótvírætt í ljós, að slíkt sé með öllu hættulaust. Sveitarstjórnin lítur svo á, að óhjákvæmilegt sé að stöðva þær byggingarframkvæmdir, sem nú eru hafnar, meðan rannsóknir standa yfir.“ Rétt afrit vottar Sigurður Þórisson oddviti.

1971, fimmtudaginn 14. jan., boðaði oddviti Aðaldælahrepps hreppsnefndarfund á Sandi skv. kröfu Guðmundar Hallgrímssonar og Kristjáns Ástvaldssonar í bréfi dags. 13. 1. 1971. Allir hreppsnefndarmenn voru mættir. Fundarefni voru tilmæli iðnrn. um það, að hreppsnefnd segði frá áliti sínu um virkjun í Laxá. Málið var allmikið rætt og kom fram eftirfarandi tillaga, sem var samþykkt með 4 atkv.:

„Vegna tillagna iðnrn. um virkjunarframkvæmdir í Laxá hjá Brúum telur hreppsnefnd Aðaldælahrepps óæskilegt, að hætt sé við 1. áfanga virkjunarinnar með hliðsjón af þeim tillögum, sem sýslumennirnir lögðu fram sem sáttagrundvöll á s.l. ári.“

Friðjón Guðmundsson gerði eftirfarandi grein fyrir sinni skoðun á málinu: „Með tilvísun til þess, að landeigendafélag Laxár og Mývatns sé löglegur samningsaðili við Laxárvirkjunarstjórn um virkjunarframkvæmdir í Laxá, tel ég óeðlilegt, að einstakar hreppsnefndir hafi þar afskipti af. Og þar sem ég fæ ekki séð, að afskipti hreppsnefndar geti stuðlað að lausn deilunnar, tel ég ekki rétt, að hún blandi sér í þetta viðkvæma mál“. Undir þetta skrifa allir hreppsnefndarmennirnir.

Þar sem eitt skjal enn hefur borizt iðnrn. og ég er með það hér í höndunum eins og önnur plögg, tel ég rétt að lesa það, en þá eru líka upp taldar þær umsagnir, sem hafa komið um þetta mál:

„Í tilefni af þeim viðræðum, sem nú fara fram um Laxárvirkjun, vil ég ítreka við hið háa rn. ályktun bæjarráðs Húsavíkur 16. marz s.l. um stuðning við frekari virkjunarframkvæmdir við Laxá í Suður-Þingeyjarsýslu. Stöðvun virkjunarframkvæmda nú mundi hafa mjög alvarleg áhrif á atvinnuástand héraðsins og auka enn röskun á búsetu þess fólks, sem nú starfar eða elst upp í þessum landshluta.

Bæjarstjórinn á Húsavík, Björn Friðfinnsson:`

Þá hef ég lesið allt, sem borizt hefur iðnrn. vegna tilmæla þess til hreppsnefnda í Suður–Þingeyjarsýslu um umsögn um tillögur sáttanefndarinnar í þessari deilu og enn fremur bókun og afgreiðslu hreppsnefndar Reykdælahrepps á málinu. Og það hef ég gert vegna ummæla hv. 9. landsk. þm. (BrS) um afstöðu þessara aðila. Ég læt svo hv. alþm. það eftir að draga sínar ályktanir af þessum afgreiðslum og hvort þeir komast að sömu niðurstöðu eða einhverri annarri, en hv. þm. Bragi Sigurjónsson. Ég hef að vísu lesið lítið hér af öllum þeim samþykktum, sem gerðar hafa verið víðs vegar um land um áskoranir til stjórnarvalda að þyrma Laxár— og Mývatnssvæðinu, enda ætti það að vera óþarfi, því að dagblöðin hafa birt þær undanfarin 2 ár. Og er það ekki í raun og veru merkilegt, að hv. þm. skuli svo halda því fram hér í sölum Alþingis, að þessi deila sé á milli landeigenda og ekki einu sinni allra landeigenda, annars vergar, en hins vegar allra annarra? Ég verð nú að segja það, að þetta er vægast sagt undarleg niðurstaða, hvaðan svo sem þessi fluga er komin. Deilan stendur á milli landeigenda í raun og veru og ríkisstj., og menn eru svo sjálfráðir að því, hvaða ályktanir þeir draga af því, sem fyrir liggur um þetta mál, með hvorum aðilanum hver og einn telur, að almenningur í landinu standi. Það ætla ég mér ekki að ræða við hv. þm., á því er engin þörf. Hitt vil ég vona, að sem allra fyrst finnist lausn í þessu máli, Lausn, sem flestir geta sætt sig við, því að við höfum sannarlega næg verkefni, þó að kröftunum sé ekki eytt á þennan hátt, fyrir utan alla þá fjármuni, sem fara í þann málarekstur, sem deilu þessari fylgir.

Hafa menn hugleitt það í alvöru, á hvaða stig þessi deila er komin, þegar ráðsettir bændur og húsfreyjur telja sig knúin til þess að fjölmenna til slíkra aðgerða, sem unnar voru, þegar stíflan í Miðkvísl var sprengd í sumar? Hefðu þarna verið að verki nokkrir unglingar, væri allt annar svipur á þessu máli. En þegar bændur og húsfreyjur þeirra taka þá ákvörðun að grípa til svo alvarlegra aðgerða að sprengja upp mannvirki og safna um sig fjölmenni af þessu tilefni, hlýtur að liggja í augum uppi, að frá sjónarmiði þessa fólks er meira í húfi hvernig þessari deilu lyktar en spurningin um það, hvað hver kwst. af rafmagni kostar með því að virkja í þessum stað eða hinum. Þetta fólk telur sig vera að verja það, sem því er e.t.v. dýrmætast af öllu, koma í veg fyrir, að átthagarnir verði fyrir raski af völdum hvers konar mannvirkjagerðar umfram það, sem brýnasta þörf er á til þess að lifa eðlilegu lifi fyrir þá, sem byggja þessi héruð. Það er vitað, að menn hafa skiptar skoðanir á því, hvort þessi afstaða þessa fólks sé skynsamleg og jafnvel hvort eigi að taka nokkurt tillit til slíkra sjónarmiða, það sé peningasjónarmiðið, sem eigi að ráða og annað ekki. Hv. 9. landsk. þm. er einn af fulltrúum þeirra sjónarmiða, eins og fram hefur komið í báðum ræðum hans. Eftir hans málflutningi að dæma á ekkert tillit að taka til afstöðu þeirra, sem búa á umræddu svæði og eiga landið og hafa lífsafkomu af því, heldur miklu fremur annarra, sem þó geta tæpast verið beinir aðilar að þessu máli. En hvað um Sjálfstfl., flokkinn, sem þykist berjast fyrir eignarréttinum, flokk hæstv. forsrh. og iðnrh.? Er ekki hans afstaða, a.m.k. eins og hún kemur enn fram í þessu máli, hálfundarleg í ýmissa augum? Eða er Sjálfstfl. e.t.v. hættur að virða eignarréttinn? Og er þá flokkur hv. 4. landsk. þm., Jónasar Árnasonar, búinn að skipta hlutverki við Sjálfstfl. að þessu leyti? Hann virðist vera farinn að berjast fyrir eignarréttinum. Það er margt undarlegt í kýrhausnum og ég held, að ekki veitti af sérfræðingum til að fylgjast með öllum þeim vendingum, sem virðast eiga sér stað í þessum flokkum.

Ég hef haldið því fram frá því í byrjun þessarar deilu, að óhugsandi væri að fara út í svona mannvirkjagerð, nema fyrir lægi áður fullt samkomulag um hana á milli aðila. Það sýnir sig nú, að það hefði verið hollast fyrir alla, að ráðamenn þjóðfélagsins hefðu haft sömu skoðun á því máli og farið eftir henni. Það er alveg rétt hjá hv. 9. landsk. þm. (BrS) að þörfin fyrir aukna raforku er mjög mikil á þessu svæði og verður ekki hægt að komast hjá því að bæta úr henni hið bráðasta. Og ef þetta mál er athugað nánar, þá hlýtur sú spurning að vakna, hvernig forusta stjórnarvalda sé í þessum málum, hvað hafi verið gert af þeirra hendi til að sjá þessu svæði fyrir raforku og eftir hvaða leikreglum sé farið. Var því ekki lýst yfir af stjórnarvöldum, þegar ákvörðun var tekin um Búrfellsvirkjun, að næsta virkjun yrði Dettifossvirkjun? Muni ég þetta rétt, hvað hefur þá verið gert til þess að standa við það fyrirheit? Fyrir tveimur árum, meðan enn var tími til skynsamlegra aðgerða í okkar virkjunarmálum, spurði ég hæstv. fjmrh. hér á Alþ. að því, hvort þess væri ekki að vænta, að rannsóknum á Dettifossvirkjun yrði haldið áfram og hvort ekki væru fyrirhugaðar rannsóknir á Skjálfandafljóti hjá Íshólsvatni. Þá átaldi ég það, að ekki skyldu vera rannsakaðir þeir möguleikar, sem kynnu að vera fyrir hendi í Skjálfandafljóti, áður en gerðar væru áætlanir um vatnaflutning úr því fljóti í Laxá. Ég taldi, að þarna hefði verið farið alveg öfugt að hlutunum. Hæstv. fjmrh. gaf þá þær upplýsingar, að á næsta sumri, þ.e. sumarið 1969, yrðu lagðar 5 millj. í rannsóknir við Dettifoss og mundi sú rannsókn, sem hægt væri að gera á einu sumri fyrir þessa fjárupphæð, leiða í ljós vitneskju um hagkvæmni þessara virkjana umfram það, sem þá lá fyrir. En fullnaðarrannsókn og undirbúningur undir virkjun þarna mundi kosta um 30 millj. og taka 3 ár að sögn fjmrh. Ég veit ekki til, að þessi rannsókn, sem sagt var, að ætti að fara fram á Dettifosssvæðinu sumarið 1969, hafi enn farið fram. Hins vegar hef ég hlerað, að á vegum Orkustofnunar hafi farið fram á síðasta sumri rannsókn á Jökulsá á Fjöllum, ekki á virkjun þar, heldur á því, hvaða möguleikar væru á að veita þessu fljóti austur á land. Og engin athugun hefur farið fram á Skjálfandafljóti, svo að ég viti til. Þannig er unnið að þessum málum og á þessu sést, hvernig forusta þjóðarinnar er í reynd og hvernig fjármunum hennar er varið. Á þessu sést, að það er fyrst og fremst um að kenna forustu þjóðarinnar í þessum málum, hvernig komið er raforkuskortinum á Norðurl. e. Það er enginn undirbúningur fyrir aðra virkjun á þessu svæði en við Laxá og hins vegar liggur það fyrir, að möguleikar til virkjunar eru nægir í þessum landshluta og þarf því ekki að taka Laxá vegna þess, að hún sé síðasti virkjunarmöguleikinn, sem umrætt svæði hefur, en þá ályktun hefði mátt draga af ræðu hv. 9. landsk. þm. (BrS) áðan. Það er sjálf yfirstjórnin, sem hefur brugðizt í þessu máli eins og mörgum öðrum á liðnum árum og þaðan er fyrst og fremst að leita orsaka þess, hvernig þessum málum er komið.

Það væri full ástæða til þess að ræða þetta atriði meira, en ég mun ekki gera það að þessu sinni. Það má að vísu segja, að sá valdi miklu, sem upphafinu veldur. Hverjir eru höfundar Gljúfurversvirkjunar, eða hvaðan er sú hugmyndafræði komin? Er sú stefna upp fundin af okkur framsóknarmönnum? Átti hv. 4. landsk. þm. (JónasÁ) við það, þegar hann talaði um stefnuleysi okkar í geðvonzku kastinu hér um daginn? Hvaðan er þessi óraunhæfa áætlun komin? Er hún komin frá mönnum, sem eru á einhvern hátt skoðanatengdir okkur? Ef það væri, að þessi byltingarkennda áætlun um Gljúfurversvirkjun væri frá okkur komin, sem felur það í sér að gerbreyta heilum héruðum, sem enginn getur sagt um eða séð fyrir, hvað gæti leitt af sér, ef framkvæmd hefði verið, þá væri ekkert undarlegt við það, þó að, að okkur væri sótt í þessu máli. Hv. 4. landsk. þm. gæti e.t.v. upplýst það, hvaðan þetta er komið og talað svo um stefnu sinna manna og stefnuleysi okkar þar á eftir. Við vorum ekki spurðir ráða eða til okkar leitað í þessu máli fyrr en það var komið í harðan hnút og hæstv. ríkisstj. þarf ekki að ganga þess dulin, að ég tel, að hún hafi fyrst og fremst bundið þessa hnúta, sem valdið hafa Laxárdeilunni og beri því höfuðábyrgðina á því, hvernig málum er komið og beri því að leysa þau, enda ekki á annarra færi.

Hvað sem um þetta — framhald á virkjun í Laxá — verður, þá á að reisa næstu virkjun fyrir norðan, en ekki sunnan. Þar er nú tilfinnanlegur orkuskortur, eins og margoft hefur komið fram í þessum umr. Fyrir því munum við þm. Framsfl. í Norðurl. e. hefja harða baráttu að fá það fram, sé þess nokkur kostur. Ég ætlast ekki til þess, að neinn dragi þær ályktanir af því, sem ég hef sagt hér um þetta mál, að ég slái því föstu, að ekki megi virkja meira en orðið er í Laxá eða það sé óhætt að virkja þar eitthvað ákveðið upp að einhverju vissu marki. Ég hef enga þekkingu á því atriði og því lítið upp úr slíkri fullyrðingu leggjandi. Og ég efast mjög um það, að hv. alþm. hafi það heldur. Um hitt ættum við að geta orðið sammála, að í þessu máli eins og í öllum öðrum verður að fara að lögum og þá ekki sízt hæstv. ríkisstj. En hefur það verið gert? Bendir úrskurður Hæstaréttar til þess? Er ekki sá úrskurður byggður á því, að fyrst og fremst undirbúningi hafi verið áfátt og átti sá undirbúningur ekki að fara fram, áður en ráðherraleyfið var gefið um framkvæmdir? Það væri ekki úr vegi, að hæstv. forsrh. eða einhver annar ráðh. svaraði þessum spurningum. En þrátt fyrir öll mistök vona ég, að rannsóknir muni leiða í ljós, að ekki sé miklu hætt, þó að takmörkuð virkjun, sem miðuð væri við þær sérstæðu aðstæður, sem þarna eru fyrir hendi, væri gerð í Laxá, á meðan verið er að undirbúa aðra virkjun í Skjálfandafljóti eða Jökulsá á Fjöllum. Hitt undirstrika ég alveg sérstaklega, að ekkert slíkt verður gert nema með fullu samkomulagi við landeigendur, því að ég lít svo á, að þó að menn séu fátækir og eignir þessara landeigenda séu e.t.v. ekki metnar hátt eftir mælistiku valdhafanna, þá er þetta þeirra land, þeirra eign og fátæki maðurinn hefur líka sinn rétt, a.m.k. í mínum augum.

Er þjóðin búin að gleyma gamla spakmælinu, sem ætti og verður að vera í fullu gildi hér eftir sem hingað til og enginn má láta sér úr minni falla, jafnvel ekki í hita átakanna? Þar ætti þó hæstv. ríkisstj. að ganga á undan öllum öðrum í verki og þá mundu spjöld sögunnar e.t.v. minnast hennar með öðrum hætti en nú horfir í þessu máli, en þetta spakmæli er: „Með lögum skal land byggja, en með ólögum eyða.“