03.03.1971
Neðri deild: 55. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 501 í C-deild Alþingistíðinda. (3045)

169. mál, uppeldisstyrkur búfjár vegna kals í túnum

Flm. (Stefán Valgeirsson) :

Herra forseti. Frv. það, sem hér er til umr., er um uppeldisstyrk búfjár vegna kals eða grasbrests í túnum. Meðflutningsmenn mínir, eru þeir hv. 5. þm. Austf., Vilhjálmur Hjálmarsson, og hv. 2. þm. Sunnl., Ágúst Þorvaldsson. Alkunnar eru þær ástæður, sem liggja fyrir flutningi þessa frv. Veðurfar hefur farið kólnandi hin síðari ár og afleiðing þess hefur orðið gróðurdauði í hinu ræktaða landi víðs vegar um landið, jafnvel svo að heilar spildur, stundum heil tún, hafa verið alveg gróðurlausar. Landshlutarnir hafa farið misjafnlega út úr þessum skemmdum frá ári til árs og venjulega hefur verið hægt að fá keypt hey til bjargar þeim, sem verst voru settir hverju sinni, en þó með því að flytja það um langan veg með tilfinnanlegum kostnaði. En þó hefur það farið svo sum árin, að ekki hefur tekizt að fá keypt nóg hey, sérstaklega þó tvö síðustu árin. Þegar um heyskort er að ræða, er alltaf hætt við, að þeir efnaminni og venjulega þeir, sem eru með stærstu fjölskyldurnar á sinni framfærslu, verði út undan með heykaupin, einmitt þeir bændur, sem sízt mega við því að skerða bústofn sinn að neinu marki. Þegar um þá bændur er að ræða, sem eru með bústærð í lágmarki, til að fjölskyldan hafi af því viðunandi lífskjör, og þeir verða svo að skerða þann bústofn vegna fóðurskorts, þá segir það sig sjálft, að ekki horfir vænlega með afkomuna framvegis hjá slíkum fjölskyldum. Hætt er við, að allur grundvöllur til áframhaldandi búskapar sé brostinn, ef það opinbera bætir þeim ekki tekjumissinn, sem þeir verða fyrir, á meðan verið er að koma upp búunum aftur. Það ætti ekki að hafa farið fram hjá neinum og sízt hv. alþm., að þau sveitaheimili, er hafa haft mörg börn og unglinga á framfæri, hafa mjög barizt í bökkum á undanförnum árum, ekki sízt þeir, sem verið hafa í einhverjum framkvæmdum eða umbótum á jörðum sínum. Þegar slík áföll dynja svo yfir, að verulegur fóðurskortur verður á slíkum heimilum, jafnvel ár eftir ár, eins og skeð hefur, þá fyrst hlýtur að syrta í álinn fyrir alvöru, nema forusta stjórnarvalda komi til með einhverjum hætti.

Eins og ég vék að áður, hefur það sýnt sig, að efnaminni bændurnir, þeir, sem minnst áföll þola, hafa meira orðið út undan með að fá keypt hey, þegar lítið framboð hefur verið á því og þar af leiðandi orðið að skerða bústofn sinn og það verulega, sumir a. m. k. Hafi nú bústærðin verið í lágmarki, til að fjölskyldan hafi viðunandi lífskjör, áður en skerðingin átti sér stað, er þá ekki hætt við, að í þvílíkum sporum fyllist menn vonleysi, missi e. t. v. kjarkinn alveg og yfirgefi jarðir sínar, flestir slyppir og snauðir, því að ekki er líklegt, að auðvelt sé að koma bústofni í verulegt verð eða a. m. k. eðlilegt verð, þegar almennur fóðurskortur er í landinu. Og sé verulegur gróðurdauði í túninu, eins og algengast mun vera í þeim tilfellum, sem að framan er lýst, þá er ekki líklegt, að mikið fáist fyrir slíkar jarðir, nema endurbætur séu gerðar á þeim áður en til sölu kemur.

Nú er það mikið vafamál, hvort ekki sé þjóðhagslega hagkvæmara að skerða bústofninn og veita þeim bændum fjárhagslega aðstoð til að koma búinu upp aftur, þegar betur árar, eins og lagt er til í þessu frv., heldur en að stuðla að miklum heyflutningum um mjög langan veg með miklum tilkostnaði eða þá að fóðra bústofninn að miklu leyti á erlendu kjarnfóðri eins og gert hefur verið. Bændur hafa ekki átt þess kost að velja þarna á milli. Þeir hafa fengið aðstoð til þess að kaupa hey og kjarnfóður, en gerðu þeir það ekki, þá hefur þeim ekki staðið til boða nein önnur aðstoð í neinu formi. Ég vil ekki vanmeta þá aðstoð, sem fengizt hefur til að kaupa hey og kjarnfóður, hún hefur komið sér mjög vel í mörgum tilfellum, þó að hún hafi verið ónóg og handahófskennd að margra dómi.En þessi aðstoð leysir engan veginn það vandamál, sem þarna er við að stríða, heldur er hún bráðabirgðaúrræði til að fleyta bústofninum áfram yfir einn vetur í senn, en sjálft vandamálið, gróðurdauðinn, ógnar bændastéttinni og allri þjóðinni jafnt eftir sem áður, og of lítið hefur verið gert til þess að komast fyrir rætur meinsins eða mæta því vandamáli með haldbetri og árangursríkari úrræðum en heykaupum og erlendum kjarnfóðurkaupum í stórum stíl, eins og átt hefur sér stað fram að þessu. Það hljóta að vera einhver takmörk fyrir því, hvað raunhæft það er að hlaða lánum ofan á lán á sömu bændurna ár eftir ár. Undir slíku getur enginn risið, og verður því ekki hjá því komizt að gefa eftir þessi harðærislán hjá þeim, sem hafa búið við slík áföll ár eftir ár.

Við framsóknarmenn höfum mótað þá stefnu, sem við teljum að eigi að fylgja í þessu máli. Hún hefur komið fram í frumvarpsflutningi hér á hv. Alþ. Í fyrsta lagi fluttum við frv. um breyt. á lögum um framleiðnisjóð landbúnaðarins. Lögðum við til, að hann yrði efldur mjög frá því, sem hann er, en ekkert framlag kom í hann á síðasta ári eða er fyrirhugað í ár, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir okkar framsóknarmanna og Stéttarsambands bænda til að fá í hann fjárframlög. Við lögðum til, að í þennan sjóð yrðu lagðar a. m. k. 25 millj. á ári með hliðsjón af því, að við stóðum í þeirri trú, að búið væri að semja við hæstv. ríkisstj. um endurbyggingu sláturhúsanna í landinu og í því samkomulagi fælist, að úr þessum sjóði ættu að koma á ári hverju í næstu 5 ár 12–14 millj. í þetta verkefni. Síðan lögðum við til, að tilraunir með innlenda fóðuröflun og heyverkun sitji fyrir öðrum verkefnum með fyrirgreiðslu. Við teljum, að hér sé svo mikið í húfi og svo aðkallandi verkefni, sem leysa þarf, að það sé engan veginn verjandi að sýna þessum verkefnum tómlæti, eins og hv. Alþ. og hæstv. ríkisstj. hafa því miður gert fram að þessu.

Utan úr hinum stóra heimi berast annað slagið fréttir um nýja sigra á sviði ræktunarinnar, ný og ný afbrigði hafa verið framleidd, harðgerðari og uppskerumeiri en þau, sem áður þekktust. Það má segja, að þetta sé á öllum sviðum jarðræktar. Það væri fáránlegt að halda því fram, að í okkar landi gætu ekki verið svipaðir möguleikar til framþróunar á þessu sviði eins og í öðrum löndum, en að þessu leyti erum við gersamlega vanþróuð þjóð, og er því mál til komið, að við förum að rumska og gera eitthvað raunhæft, ekki sízt vegna þeirra áfalla, sem landbúnaðurinn hefur orðið fyrir að þessu leyti á liðnum árum, þar sem fóðuröflunin og nýting þess er undirstaðan undir þessum atvinnurekstri. Það er einnig mjög aðkallandi að gera tilraunir með heyverkun og geymslu þess, til þess að það tapi sem minnstu af fóðurgildi sínu, því að við hljótum að stefna að því að fóðra bústofn okkar að langmestu leyti á innlendu fóðri, en til þess þarf að tryggja fóðuröflunina og að fóðrið sé verkað á þann hátt, að það tapi sem minnstu af fóðurgildi. Hvorugt verður gert nema með myndarlegri forustu ríkisvaldsins.

Í öðru lagi lögðum við fram frv. um breyt. á jarðræktarlögum, fyrst og fremst til þess að stuðla að meiri grænfóðursræktun og votheysgerð, en á meðan við getum ekki komið í veg fyrir kalskemmdir að mestu leyti, teljum við eina úrræðið að auka að miklum mun grænfóðursræktun og ræktun einærra jurta. Til þess að tryggja almenna breytingu í þessa átt og gera hana mögulega leggjum við til að hækka verulega styrk til þessara framkvæmda. Búnaðarþing og Stéttarsamband bænda hafa lagt mikla áherzlu á þessi mál að undanförnu.

Í þriðja lagi höfum við lagt fram frv. um breyt. á lögum um Stofnlánadeild landbúnaðarins, landnám, ræktun og byggingar í sveitum. Þar leggjum við til, að Landnámið beri að verulegu leyti kostnað við endurvinnslu þess lands, sem gróður hefur dáið í, eða þá við að vinna land í þess stað, ef kunnáttumenn telja, að það sé betra til árangurs, þó að vissu marki, sem er tiltekið í þessu frv.

Þessi frumvarpsflutningur og sú stefna, sem í frv. felst, er við það miðuð að gera nú ráðstafanir til þess að reyna að komast fyrir rætur meinsins, en á meðan það tekst ekki að gera aðrar ráðstafanir til þess að draga sem mest úr áföllum og raska sem minnst búskaparaðstöðu hjá þeim, sem fyrir kalskemmdunum verða, og koma í veg fyrir, að jarðir, sem eru með sæmilega búskaparaðstöðu að öðru leyti, fari í eyði. En þegar slík áföll steðja að eins og að landbúnaðinum nú, verður forusta hins opinbera að koma til, ef ekki á illa að fara. En hvernig er þessi forusta, sem hæstv. landbrh. var að guma af hér um daginn? Hvernig hefur hún reynzt landbúnaðinum í þeim þrengingum, sem að þessum atvinnurekstri hefur steðjað á liðnum árum? Vilja ekki hv. alþm. hugleiða það, hvernig hin opinbera forusta hefur verið í þessum málum? Jú, þeir geta bent á það að vísu, að fóðurlausir eða fóðurlitlir bændur hafi fengið einhver lán úr Bjargráðasjóði og styrk upp í flutningskostnað á heyi, sem flutt hefur verið langan veg, sem sagt bráðabirgðaúrræði af skornum skammti, sem gripið er til á síðustu stundu, en þá er líka allt upp talið. Nema menn vilji telja böðunarfrv. og frv. um breyt. á lögum um framleiðnisjóð landbúnaðarins, sem e. t. v. sýnir bezt, hvernig sú forusta er, sem landbúnaðurinn býr við, því að þar er lagt til að leggja ekkert — ég sagði ekkert — fjármagn í þann sjóð á þessu ári, enda þótt sjóðurinn sé einskis megnugur til að leysa þau vandamál, sem fyrir liggja. Það er þýðingarlaust fyrir hæstv. landbrh. að reyna að skjóta sér á bak við Búnaðarþing og Stéttarsamband bænda með því að segja, að hann hafi farið í einu og öllu eftir tilmælum þessara aðila í þessum málum. Það væri hægt að telja ýmislegt fleira af óskum og samþykktum þessara aðila, sem ekki hefur verið farið eftir, eins og t. d. þau mál, sem hér hafa verið rædd, og það má minna á fleira, svo sem rekstrarlánin, lausaskuldamálin, eflingu veðdeildar Búnaðarbankans og margt fleira. Og hvað með endurbyggingu sláturhúsanna, sem bændasamtökin töldu, að samkomulag væri komið um við hæstv. landbrh. og í trausti þess er búið að setja gjald á kjöt til þess að framkvæma þann hluta samkomulagsins, sem snýr beint að bændasamtökunum? Og það sýnir, að bændasamtökin stóðu í þeirri trú, að fullt samkomulag væri komið á um framkvæmd þessa máls við stjórnarvöld. En ekki var hægt að heyra það á hæstv. landbrh. hér í umr. um framleiðnisjóð landbúnaðarins, að nein lausn væri á þessu máli af hendi hæstv. ríkisstj. Það hefur e. t. v. farið með þetta mál eins og frv. hæstv. ráðh. um framleiðnisjóðinn, að einhver hulin hönd hefur komið nærri þessu máli og breytt því frá því, sem ráðherrann ætlaðist til.

Hv. 11. landsk. þm. (BGuðm) gat ekki lengur setið á sér og lét í ljósi megna óánægju með alla framkvæmd ríkisvaldsins í sambandi við kalskemmdirnar og þá ónógu aðstoð, sem veitt hefur verið, sérstaklega á þeim svæðum, sem búið hafa við þetta harðæri ár eftir ár. Það eru því fleiri en ég, sem hafa hneykslazt á forustunni eða réttara sagt forustuleysinu í landbúnaðarmálum hin síðari árin. Ég hef þegar getið um þá gremju, er hv. 11. landsk. þm. lét í ljósi hér í umr. fyrir skömmu, en það hefur áður komið fram hér í hv. Alþ. gagnrýni á þessa forustu og einnig úr herbúðum hæstv. ríkisstj. Þar á ég við, þegar hv. 9. landsk. þm. (BrS) sagði hér í hv. þd. 18. febr. 1969 eftirfarandi, með leyfi forseta:

„Þetta finnst mér styðja þá skoðun mína, að það vanti yfirstjórn og hagsýni í landbúnaðinum. Það er varla von, að bændur einir út af fyrir sig geti fundið, hvað rétt er í þessu. En þegar yfirstjórnin brestur, þá er hætta á ferðum.“ Ég endurtek: „Þegar yfirstjórnin brestur, þá er hætta á ferðum.“

Og ég vil taka undir þessi orð þm., að þegar yfirstjórnin brestur, er hætta á ferðum. Að vísu gæti hæstv. landbrh. spurt að því, hvar yfirstjórnin hafi ekki brugðizt þessi síðustu ár, og þegar betur er að gáð, mun reynast erfitt að benda á, að fyrirhyggjusöm forusta hafi verið á einhverju sviði íslenzkra þjóðmála á síðustu árum og er sama, hvert litið er. Þjóðin þyrfti því að gera sér grein fyrir því, hvernig þessum málum er komið, að forusta þjóðarinnar, sjálf yfirstjórnin hefur brugðizt. Þar er orsakanna að leita fyrir því, hvernig komið er á mörgum sviðum þjóðmálanna ekki síður en í landbúnaðinum.

Ég vil þá, með leyfi forseta, fara yfir frumvarpsgreinarnar.

1. gr. Bændum, sem fækka ám sínum eða kúm um meira en 10% af bústofni sínum vegna fóðurskorts, sem orsakazt hefur af kali eða grasbresti í túnum eða engjum, — og verði áburðarskorti ekki um kennt, — skal veittur uppeldisstyrkur til að fjölga búfé sínu að nýju, þegar árferði batnar til fóðuröflunar. Veita skal í þessu skyni fé á fjárlögum, þegar ástæða þykir til, og Bjargráðasjóði Íslands falið að annast styrkveitingar og framkvæmd laga þessara samkv. reglugerð, er ráðherra setur, að fengnum tillögum Búnaðarfélags Íslands.

2. gr. Uppeldisstyrkur greiðist, þegar komið hefur verið upp bústofnsauka, sem svarar að einhverju eða öllu leyti til þeirrar búfjárfækkunar, sem átt hefur sér stað, sbr. 1. gr., þó ekki síðar en 5 árum eftir að búfé var fækkað. Skal uppeldisstyrkur vegna þessa bústofnsauka nema hálfu lambsverði fyrir hverja á, eins og það er á þeim tíma, þegar uppeldisstyrkur er greiddur, og 5 lambsverðum, reiknuðum á sama hátt, fyrir hverja kú.

3. gr. Lög þessi taka til búfjárfækkunar á árunum 1969–74.

Í 1. gr. segir: Bændum, sem fækka ám eða kúm um meira en 10% af bústofni sínum vegna fóðurskorts. Í sambandi við þetta atriði tel ég rétt að taka það fram til frekari skýringa, við hvað er átt með þessu ákvæði. Ef bóndi hefur t. d. orðið að fækka bústofni um 10% á hverju ári í 3 ár í röð vegna fóðurskorts, þá á að miða bótaréttinn við heildarfækkunina öll árin að frádregnum 10%, sem falla bótalaust.

Ég vil leggja mikla áherzlu á, að þetta frv. megi ná fram að ganga, en það mundi gefa ýmsum bændum von um, að þeir komist út úr yfirstandandi þrengingum og gefa þeim möguleika á að koma búunum upp aftur, þegar árferði batnar.

Herra forseti. Ég legg til, að eftir þessa umr. verði málinu vísað til 2. umr. og hv. landbn.