11.12.1970
Neðri deild: 29. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 376 í B-deild Alþingistíðinda. (307)
8. mál, virkjun Lagarfoss
Tómas Árnason:
Herra forseti. Ég vil sérstaklega fagna þeirri yfirlýsingu af hálfu hæstv. iðnrh., að þessu máli verði hraðað og helzt afgreitt frá Alþ. fyrir jólaleyfi. Hann skýrði frá því réttilega, að þm. Austf. hefðu rætt þetta mál við hann á sérstökum fundi fyrir nokkrum dögum, og var það gert í tilefni af því, að þessi brtt. hefur komið fram við lagafrv. og verður efni þess, eftir að hún verður samþ., dálítið annað en í upphafi var gert ráð fyrir. Ég álít, að í sjálfu sér sé ekki óeðlilegt, að slíkt heimildarákvæði verði sett í l., sérstaklega ef það mætti frekar verða til þess, að alger samstaða næðist um málið, og einnig ef það væri tryggt, eins og raunar hæstv. iðnrh. skýrði hér frá, að það hefði ekki nein áhrif á hraða framkvæmda við virkjun Lagarfoss. Í sambandi við brtt. sjálfa er orðalag hennar á þá leið, að gert er ráð fyrir, að samtök sveitarstjórna á Austurlandi geti óskað eftir því að verða eignaraðilar að virkjun Lagarfoss og annarra fyrirtækja á vegum rafmagnsveitnanna á Austurlandi. Að sjálfsögðu kemur frumkvæði að þessu frá sveitarstjórnunum sjálfum og það hefur komið hér fram áður, að engin sveitarstjórn hefur enn þá ályktað eða óskað eftir þessu sérstaklega. En það gæti verið ástæða til að spyrja, ef heimildarákvæði á annað borð verður sett inn í l., hvort ekki væri eðlilegra, að það væru þá sveitarstjórnir á Austurlandi, sem gætu beinlínis óskað eftir þessu vegna þess, að þó að sveitarstjórnirnar geti falið samtökum að koma fram fyrir sína hönd í sambandi við eignaraðild af þessu tagi, þá er það eðlilegra, að slíkt komi beint frá sveitarstjórnunum, ef til þess kæmi síðar meir og þær yrðu sjálfar beinir eignaraðilar að virkjununum. En ég vildi leggja áherzlu á það og fagna því, að hæstv. iðnrh. lýsti yfir þessu tvennu: 1) þeim vilja sínum, að l. yrðu afgreidd á hv. Alþ. fyrir jólaleyfi og 2) að þetta heimildarákvæði mundi á engan hátt hafa bein áhrif á hraða framkvæmda við Lagarfossvirkjun.