17.03.1971
Efri deild: 66. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 624 í C-deild Alþingistíðinda. (3248)
95. mál, sauðfjárbaðanir
Frsm. minni hl. (Steinþór Gestsson) :
Herra forseti. Það kann nú að vera, að einhverjum ókunnugum þyki það vera með ólíkindum, að ein n. skuli geta klofnað um ekki stærra mál en það, sem hér er til umr. Ég segi þetta af því, að ég hef orðið var við það, að ýmsir þeir, sem ekki hafa nána og glögga þekkingu á þeim málum, sem hér er um að ræða, sem sagt sauðfjárböðunum, líta á þær smærri augum heldur en ég tel ástæðu til að gera. Það er almennt viðurkennt, að við höfum nú þau lyf til nota við sauðfjárbaðanir, sem mega teljast næsta trygg eins og nú horfir. Eigi að síður höfum við orðið að viðurkenna það, að víða um land gætir óþrifa í sauðfé, og þó leitazt hafi verið við að einangra landssvæði og hefta samgang fjár milli stærri byggðarlaga, þá hefur það ekki heppnazt og smitanir átt sér stað á óþrifum milli svæða, og oftast nær verið hægt að rekja samgang yfir varnarlínur, þegar svo hefur átt sér stað.
Þegar ég fór að ræða um þetta málefni, þá undanþágu, sem farið er fram á hér í þessu frv., við yfirdýralækni, þá sagði hann mér t. d. þá sögu, að það hefði mjög lítið orðið vart við óþrif í Árnessýslu austanverðri, en svo hefði viljað til núna fyrir tveim árum, að allt í einu varð vart við óþrif á næsta bæ við mig. Þegar var farið að athuga, hvað þarna hafði skeð, þá var það vitað, að fé frá þessum bæ sækir inn í Arnarfell austan undir Hofsjökli. En það hafði líka orðið vart óþrifa norður í Skagafirði, og má segja, að það sé nærri eini vegurinn til þess að óþrif hafi borist þarna á milli, að þar hafi orðið samgangur. Það er þess vegna að mínum dómi, ekki eingöngu af þessu dæmi einu, heldur af þekkingu minni af þessum málum í lengri tíma, að ég tel, að það sé vissara að fara vægilega og hægt í það að veita undanþágu frá þeim böðunum, sem nú eru ráðgerðar. Og það er eitt, sem ég hygg að allir þeir hafi orðið varir við, sem þurfa að sjá um, að þessi lög um sauðfjárbaðanir séu framkvæmd, þeir hafi allir orðið þess varir, að ef einn fær undanþágu, þó réttlát sé, þá vill annar fá hana, sem alls ekki á að fá undanþágu með réttum hætti. Eins og nál. minni hl. á þskj. 507 greinir frá, þá vitnum við hér til ummæla yfirdýralæknis varðandi þetta málefni, og minni hl. fellst á þetta álit yfirdýralæknis og leggur því til, að frv. verði fellt.
Ég sé ekki ástæðu til þess að hafa fleiri orð um þetta frv. Ég held, að þetta skýri sig nægilega greinilega og ekki fari fram hjá neinum, hvað yfirdýralæknir segir um þetta efni. Að athuguðu máli tel ég, að umrædd till. yrði til þess að auka á vanda þann, sem fylgir framkvæmd sauðfjárbaðana, og er hann þó nægur fyrir.