25.11.1970
Efri deild: 21. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 637 í C-deild Alþingistíðinda. (3273)
113. mál, dýralæknar
Flm. (Björn Jónsson) :
Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja á þskj. 122 frv. til l. um breyt. á l. um dýralækna. Í 2. gr. laga um dýralækna er ákvæði um dýralæknisumdæmi í landinu og varðandi Eyjafjarðarsvæðið er svo ákveðið í lögunum, að þar skuli vera tvö umdæmi, í fyrsta lagi Vestur-Eyjafjarðarumdæmi, sem nær yfir Akureyri, Ólafsfjörð, Hrafnagilshrepp, Glæsibæjarhrepp, Öxnadalshrepp, Skriðuhrepp, Arnarneshrepp, Árskógsstrandarhrepp, Svarfaðardalshrepp, Dalvík og Hrísey. Reynslan af þessari umdæmaskipan hefur á undanförnum árum orðið sú, að alveg sérstaklega Vestur-Eyjafjarðarumdæmi er allt of annasamt til þess að einn maður geti sinnt því með viðunandi hætti, og hefur farið svo, að Ólafsfirðingar, Dalvíkingar, Svarfdælir, og einnig gildir það sama um Árskógsstrandarhrepp, hafa orðið út undan og yfirleitt hefur ekki verið hægt að sinna þeim með þjónustu þess embættislæknis, sem hefur setið á Akureyri og á að þjóna þessu umdæmi. Hefur verið reynt að bæta úr þessu, a. m. k. hvað Svarfaðardalshreppi við kemur, með því að ráða ólærðan mann til dýralæknisstarfa, og þannig hefur verið reynt að bjarga málum ofurlítið, en öllum er auðvitað ljóst, að slík lausn mála er allsendis ófullnægjandi. Auk þess stendur hér svo á, að þar sem læknir er starfandi í umdæminu, getur þessi hluti þess ekki notað sér ákvæði 16. gr. laganna, en þar er heimilað að ráða menn, sem ekki eru lærðir dýralæknar, til starfa, og er þá heimilt með leyfi landbrh. og meðmælum yfirdýralæknis, að kostnaður við slíkt sé greiddur úr ríkissjóði. En hér stendur sem sagt svo á, að það er starfandi dýralæknir í umdæminu, og verða því þessar sveitir, sem hér eiga hlut að máli, ekki aðnjótandi þeirra hlunninda, sem í þessari gr. felast, og verða að kosta þá dýralæknisþjónustu, sem þær geta aflað sér, algerlega sjálfar.
Það er kunnugt, að dýralæknar útskrifast of fáir eða hafa gert á undanförnum árum og þess vegna hefur öllu verið til skila haldið, að dýralæknar fengjust í umdæmi eins og þau nú eru. Er því eðlilegt, að menn spyrji um það, hvort menn séu nokkru bættari, þó að það sé ákveðið að stofna hér nýtt umdæmi, og auðvitað kemur það ekki að fullu haldi nema dýralæknar fáist. En mér er kunnugt um það, að taldar eru líkur á, að hægt muni að fá lækni í þetta umdæmi, ef stofnað verður, a. m. k. innan skamms. En alla vega mundi þessi breyting, sem gerð er hér till. um í frv. mínu, hafa það í för með sér, að búfjáreigendur og bændur við utanverðan Eyjafjörð mundu geta notað sér ákvæði 16. gr. til þess að fá uppi borinn þann kostnað, sem þeir hafa af þeirri þjónustu, sem þeir reyna að afla sér utan þess, sem embættið getur sinnt, en það er mjög lítið eða ekkert.
Ég ætla, að að athuguðu máli þyki það vera sanngjarnt, að þessi breyting sé gerð og stofnað til þessa sérstaka umdæmis. Með því mundi Vestur-Eyjafjarðarumdæmi minnka allverulega, og einnig er gert ráð fyrir því í frv. mínu, að Grímsey verði tekin út úr Vestur- Eyjafjarðarumdæmi og látin tilheyra Dalvíkurumdæmi. Ég játa, að það má vel vera við frekari athugun málsins í n. og hugsanlega eftir að leitað hefur verið álits yfirdýralæknis, sem ég tel sjálfsagt, þá þyki e. t. v. eins heppilegt, að þessi breyting sé eitthvað öðruvísi, t. d. gæti það vafalaust komið til greina, að Siglufjörður og Fljót fylgdu þessu dýralæknisumdæmi, þó að ég hafi ekki gert till. um það. Það má vel vera, að þar standi ekki alveg ósvipað á og með bændur við utanverðan Eyjafjörð. Þar er um stórt umdæmi að ræða, Skagafjarðarumdæmi, og kynni vel að vera, að önnur skipan þætti þarna henta um skiptiagu sveita í dýralæknisembættin. En um það ætla ég ekki að fjalla. Ég tel sjálfsagt, að það verði athugað í n., hvort þetta, sem ég legg til, er bezta lausnin á málinu eða hvort bægt er að haga þessu með öðrum hætti. En hitt er alveg auðsætt, að þau vandamál, sem þarna er við að etja fyrir bændur, verða ekki leyst nema með stofnun nýs umdæmis á þessum slóðum.
Ég vil svo leggja til, herra forseti, að málinu verði að þessari umr. lokinni vísað til 2. umr. og hv. landbn.