29.10.1970
Neðri deild: 8. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 41 í B-deild Alþingistíðinda. (33)
74. mál, kjarasamningar opinberra starfsmanna
Fjmrh. (Magnús Jónsson):
Herra forseti. Hv. 2. landsk. þm. beindi til mín, að því er mér skildist, fsp. um það, hvort ég gæti gefið nánari upplýsingar um það, hvernig kjarasamningar opinberra starfsmanna og ríkisins stæðu. Ég veit nú, að hann er margreyndur verkalýðsleiðtogi og þekkir mætavel, hvernig kjarasamningar ganga fyrir sig, og þó að sagt sé í grg. frv., að samkomulag sé orðið um ýmis veigamikil atriði, þá er það samkomulag bundið því skilyrði, að það takist samkomulag um önnur veigamikil atriði, sem ekki er enn orðið endanlegt samkomulag um. Og málið stendur á því stigi nú, að báðir samningsaðilar hafa orðið sammála um það, að það væri mjög óheppilegt, ef væri farið að ræða einstök atriði þessa máls. Að vísu hafa opinberir starfsmenn eða kjararáðið ekki komizt hjá því í trúnaði að ræða það við sína nánustu samstarfsmenn, en það hefur verið um það algert samkomulag, að það gæti teflt málinu öllu í hættu, ef farið yrði að ræða einstök atriði þess. Og ég get ekki hér þess vegna sagt frá neinum einstökum þætti, sem orðið hafi samkomulag um, né hvað rætt hafi verið á fundum nú að undanförnu varðandi málið, enda vona ég, að hv. þm. í rauninni skilji, að það er ekki mögulegt.
Varðandi hitt atriðið, hvaða áhrif samningar opinberra starfsmanna og ríkisins kunni að hafa á kjarabaráttu annarra starfsstétta í þjóðfélaginu, þá skal ég ekki um það segja, en aðeins vekja athygli á þeirri meginstaðreynd, að það er gert ráð fyrir því í l. um kjarasamninga opinberra starfsmanna, að það beri að miða laun þeirra við laun sambærilegra stétta í þjóðfélaginu, sem þegar eru í gildi, þegar samið verður, og hvort sem launahækkanir opinberra starfsmanna verða hærri eða lægri, þá verður það byggt á þeirri grundvallarforsendu, að aðrar sambærilegar stéttir hafi þegar fengið þessi laun, og það finnst mér vera kjarni málsins. Það er sú meginlína, sem farið er eftir í þessum samningum. Að vísu kann í einstaka tilfellum að verða erfitt að meta þetta, því að það eru til starfshópar, þar sem ekki eru til sambærilegir hópar á hinum frjálsa vinnumarkaði, en þó er hægt að fá samanburð í langflestum tilfellum. Það skal einnig jafnframt tekið fram, að þar sem hér er um ákveðið starfsmat að ræða, þá kann svo að fara, að einhverjar breytingar verði þarna, því að á hinum frjálsa vinnumarkaði hefur það verið harla tilviljanakennt, hvernig menn flokkast í launaflokka, þar sem einstök stéttarfélög hafa sótt málið hvert fyrir sig, þannig að hér kann að einhverju leyti af þessari ástæðu að verða brotið út af þessari reglu, en meginreglan er sú og sú regla, sem heimilt er að fara eftir og sem ég, sem ber ábyrgð fyrir hönd ríkisstj. á þessum samningum, hef lagt áherslu á í samninganefnd ríkisins, að fara bæri eftir, væri að gera samanburð á þeim kjörum, sem þegar eru fengin af hálfu annarra stétta á hinum frjálsa launamarkaði í þjóðfélaginu.