23.03.1971
Sameinað þing: 36. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 45 í D-deild Alþingistíðinda. (3434)

287. mál, samstarfssamningur milli Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar

Forsrh. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Ég þarf ekki að eyða löngum tíma þingsins í að gera grein fyrir þessari till. til þál. Í henni felst, að Alþ. álykti að veita ríkisstj. heimild til þess að fullgilda fyrir Íslands hönd samkomulag um breytingu á samstarfssamningi frá 23. marz 1962 milli Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar, sem var undirritaður í Kaupmannahöfn, meðan Norðurlandaráðsfundurinn stóð þar yfir, 13. febr. 1971, og er hann prentaður hér sem fskj. örfá atriði í aðdraganda málsins og hvernig það stendur vil ég nefna.

Á fundi forsrh. Norðurlanda í októbermánuði 1967 var ákveðið að skipa nefnd til þess að athuga árangur af starfi Norðurlandaráðs og öðru norrænu samstarfi, er verða mætti til að efla samstarf Norðurlandanna á grunni þeirrar reynslu, sem fengizt hefði af starfsemi Norðurlandaráðs. Í þessari skipulagsnefnd var fulltrúi frá hverju landi, en Finninn Karl August Fagerholm hefur allan tímann verið formaður nefndarinnar, og þykir starf hans á þessu sviði hafa verið bæði gott og mikið. Það hefur verið góð eining um þessar breytingar, sem í heild sinni eiga að stuðla að nánari tengslum eða samstarfi milli ríkisstjórnanna og Norðurlandaráðsins, sem sumum fannst, að væri að vissu leyti óskipulegt og kannske ekki í nógu traustum böndum. Fljótlega komst nefndin að þeirri niðurstöðu, að rétt væri að setja á svokallaóa fasta norræna ráðherranefnd, og það má segja, að að vissu leyti sé það kannske verulegasta efnisbreytingin í þessum samstarfssamningi, en ákvæðin um ráðherranefnd Norðurlandanna er að finna í 55.-62. gr. samstarfssamningsins.

Þegar þing Norðurlandaráðs var haldið hér í Reykjavík í febrúarmánuði 1970, var samþykkt þar till. skipulagsnefndar um breytingar á hinum svokallaða Helsingforssamningi, og stjórnarnefnd Norðurlandaráðs samþykkti svo á fundi sínum 16. marz 1970 að mæla með till. með óverulegum breytingum, sem embættismannanefndin hafði gert. Síðan var þetta rætt á fundi stjórnarnefndar íslenzku deildarinnar, á fundi Íslandsdeildar Norðurlandaráðsins og utanrmn., sem að minni tilhlutan var kvaddur hér saman í okt., en þá stóð til, að fundur stjórnarnefndarinnar og forsrh. yrði næstu daga í Kaupmannahöfn, og var hann haldinn 2. nóv. Var þá ekki endanlega gengið frá undirskriftum þessa samnings, en gert ráð fyrir að ljúka því, eins og raun varð á, þegar Norðurlandaráðsfundurinn væri haldinn í Kaupmannahöfn nú í vetur.

Það má segja, að ákvæði þessa samnings um ráðherranefndina feli ekki í sér grundvallarbreytingu á stöðu Norðurlandaráðs. Ráðið hefur áfram frumkvæðisrétt og ráðgjafarvald, og ætla má, að með því móti, að einn ráðherra frá hverju landi fjalli sem aðalráðherra, ef við getum sagt svo, um Norðurlandamálefni, þá er ekki ólíklegt, að af því kynni að skapast meiri festa í meðferð þeirra mála. Það er hins vegar gert ráð fyrir því, að áfram haldi hér eftir sem hingað til einstakir ráðherrafundir ráðherra á Norðurlöndum, eins og hv. þm. er kunnugt um, að iðulega eru haldnir. Það er einnig gert ráð fyrir því í ákvæðunum um ráðherranefndina, að það kunni að vera fleiri ráðherrar á nefndarfundi, þegar sérstök málefni eru rædd, sem sérstaklega heyra undir ákveðna fagráðherra. Og einnig er þá hugsanlegt, að fasti ráðherrann, sem á sæti í nefndinni, gæti veitt öðrum fagráðherra umboð til að mæta þar fyrir sína hönd, en séu þeir fleiri en einn frá einu landi, þá er aldrei um að ræða nema eitt atkv., og ályktanir þessarar ráðherranefndar verða að vera einróma, en í því felst, að ráðherranefndin getur ekki tekið ákvörðun á móti vilja neinnar ríkisstjórnar. Mér er ekki kunnugt um, hvaða ráðherrar í hinum löndunum koma til með að sitja í þessari ráðherranefnd, en get látið þess getið, að samkv. reglugerðinni um Stjórnarráð Íslands, sem samþ. var á grundvelli laga, sem sett voru 1969, en gengu í gildi um áramótin 1969–1970, þá heyra þessi málefni hjá okkur undir forsrh.

Að svo mæltu vil ég leyfa mér að leggja til, að þessu máli verði vísað til meðferðar utanrmn. Ég legg á það áherzlu, að við getum afgreitt það, áður en þingi lýkur, en það geri ég m.a. vegna þess, að mér er ekki kunnugt um, að það sé neinn ágreiningur um þetta mál. Það er gert ráð fyrir, að þjóðþingin staðfesti samninginn, þannig að hægt sé að fullgilda hann eigi síðar en l. júlí 1971.