17.11.1970
Sameinað þing: 10. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 52 í D-deild Alþingistíðinda. (3448)

45. mál, skelfisk- og rækjuveiðar á Breiðafirði

Flm. (Ásberg Sigurðsson):

Herra forseti. Ég hef leyft mér ásamt 2. og 4. þm. Vesturl. að flytja till. til þál. á þskj. 45 um rannsókn og skipulag skelfisk- og rækjuveiða á Breiðafirði. Tillgr. hljóðar svo:

„Alþingi ályktar að skora á sjútvrh. að beita sér fyrir því, að settar verði nú þegar reglur um skelfiskveiðar á Breiðafirði. Jafnframt verði áherzla lögð á aukna leit að rækju, skelfiski og öðrum slíkum verðmætum á þessum slóðum með skynsamlega hagnýtingu fyrir augum.“

Skelfisksveiðar er nýr atvinnuvegur á Íslandi. Það eru aðeins tvö ár síðan hafin var hörpudiskaveiði í Jökulfjörðum, og það var gert frá Bolungarvík af þeim feðgum Einari Guðfinnssyni og sonum. Í sumar fundust mjög mikil hörpudiskamið í Breiðafirði, og nýting þeirra var hafin nú í haust. Það byrjuðu nokkrir bátar mjög nálægt Stykkishólmi, en fljótlega voru komnir þarna 12–13 bátar af ýmsum stærðum, allt frá 30 og upp í 70 tonn. Þegar maður lítur á eðli skelfisksveiðanna, þá er hér um náttúruauðlind að ræða, sem mjög auðvelt er að eyða. Skelfiskurinn vex upp á tiltölulega takmörkuðum svæðum, og hann hreyfir sig lítið eða ekki. Kúfiskurinn grefur sig mjög niður í sandbotninn, en hörpudiskurinn er hins vegar meira á yfirborðinu og hreyfir sig, að vísu aðeins örfáa faðma. En ef á að nýta þessi svæði á skynsamlegan hátt, verður að taka þau fyrir samkv. skipulagi. Það er talið, að hörpudiskur vaxi upp í fulla stærð á um 8 árum. Þannig verður að fyrirbyggja það, að þessi mikla auðlind verði rányrkt með því að taka ákveðin svæði fyrir og gefa þeim tóm til þess að vaxa upp að nýju. En eins og veiðin er stunduð í dag af mjög mörgum bátum, sem fara í svæðin þvers og kruss, þá á sér stað gífurleg eyðilegging á skelfiskinum, og þessi svæði verða meira og minna óvirk og ónýt í framtíðinni. Þetta má ekki eiga sér stað. Það verður að komast á fast skipulag, að taka ákveðið svæði fyrir, taka það fyrir helzt þannig, að sneiða þetta eins og rúgbrauð og tæma það og hvíla það síðan í 7–8 ár. Þá má gera ráð fyrir, að nýr stofn sé kominn upp.

Það er líka dálítið slæmt að veiða hörpudiskinn alveg uppi í landsteinum fyrir framan íbúa fátækra byggðarlaga og keyra hann síðan burt langar leiðir, vegna þess m.a., að geymsluþol skelfisks er mjög takmarkað. Víða erlendis eru gífurleg mið hörpudisks, t.d. við Bretlandseyjar, við Nýfundnaland, Flórída og núna síðast við Ástralíu, þannig að út af fyrir sig er markaðurinn stór. En það er erfitt að vera að fiska þetta af aðkomubátum uppi við landsteina, eins og gert var við Stykkishólm, og það var raunar ástæóan til þess, að við hreyfðum þessu máli.

Eins og vinnslunni er hagað í dag, nýtum við aðeins vöðvann sjálfan, en það er ekki nema lítill hluti af öllum fiskinum. Auk þess er mikið af hrognum í hörpudiskinum, og þau geta verið allt upp í 5–8% af heildarþunganum, en vöðvinn sjálfur 10–12%. Nú er aðeins vöðvinn hirtur, en öllum hrognunum hefur verið hent, vegna þess að það er gengið að þessu með ofurkappi.

Það hefur komið fram brtt. frá hv. þm. Sigurvin Einarssyni, viðbótargrein, sem hljóðar þannig, með leyfi forseta:

„Jafnframt ályktar Alþingi, að leyfi til þessara veiða á Breiðafirði beri eingöngu að veita þeim útgerðarmönnum, sem búsettir eru við Breiðafjörð og landa aflanum þar til vinnslu.“

Ég er samþykkur þessari viðbótartillögu og tel, að þessar veiðar séu fyrst og fremst fyrir þá, sem búa næst þessum veiðisvæðum. Þetta er eins og með skógrækt, það verður að standa þannig að henni að höggva ekki meira en sáð er til. Þessar veiðar eru alveg við landsteina fólks, sem lifir á sjávarútvegi, og reglurnar hljóta að verða þannig, að bátafjöldinn verði takmarkaður, og þeir, sem búa næst svæðunum og þekkja bezt til þeirra, hljóta að hafa forgangsrétt til þessarar atvinnu. En ég vil vara við, að staðið sé að þessum veiðum eins og gert hefur verið, að leyfa hverjum sem er og hvaðan sem hann er að koma á þessi mið. Ég vil líka vara við því að henda kannske upp undir helmingnum af þessum verðmæta fiski, af því að við höfum ekki tíma til þess í óðagotinu að nýta hann. Ég er sannfærður um það, að hrogn hörpudisksins, þó að þau séu kannske ekki nema 50–60% af þunga vöðvans, eru eins mikils eða meira virði en vöðvinn sjálfur, en það er aðeins hann, sem hirtur hefur verið.

Við flm. treystum því, að ráðh. setji reglur um þetta nú í vetur. Þegar vertíð byrjar, mun ásóknin í hörpudiskinn minnka. Reglurnar þurfa að vera tilbúnar að vori, þegar um hægist eftir vetrarvertíð og hörpudiskaveiði hefst að nýju.