02.04.1971
Sameinað þing: 40. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 85 í D-deild Alþingistíðinda. (3526)

112. mál, kalrannsóknir á Akureyri

Frsm. (Jónas Pétursson):

Herra forseti. Allshn. hefur haft þessa till., sem er 112. mál á þskj. 121, til athugunar. Hún sendi þessa till., sem er um eflingu kalrannsókna á Akureyri, nokkrum aðilum til umsagnar: Búnaðarfélagi Íslands, Ræktunarfélagi Norðurlands og Rannsóknastofnun landbúnaðarins. Það komu umsagnir frá þessum aðilum öllum. Búnaðarfélag Íslands mælir með samþykkt till. í stuttri grg. Ræktunarfélag Norðurlands eða framkvæmdastjóri þess, Jóhannes Sigvaldason, sendir einnig umsögn, sem er meðmælt, en bendir þó einnig á, að það muni e.t.v. verða til bóta, að nokkur breyting á starfsemi tilraunastöðvarinnar eða framkvæmd starfseminnar megi eiga sér stað.

Eins og fram kemur í áliti allshn., leggur hún til, að till. verði samþ. með breytingu, eins og segir á þskj. 685. Þessi breyting er í raun og veru mjög í samræmi við þá umsögn, sem barst frá Ræktunarfélagi Norðurlands. Hins er rétt að geta, að í umsögn Rannsóknastofnunar landbúnaðarins er bent á það, að einmitt nú á s.l. vetri var aukið verulega fjármagn til hennar til kalrannsókna og þar er nú verið að efla þær með frystiskápum innanhúss. Enda þótt í umsögn Rannsóknastofnunar landbúnaðarins megi fremur teljast lagzt á móti því, að þessi till. verði samþ., þá var n. nær þeirri skoðun, sem kom fram í umsögn Ræktunarfélags Norðurlands, og þess vegna er till. eða breytingin orðuð á þá leið sem segir á þskj. 685. Með leyfi forseta ætla ég að lesa hana:

„Alþingi ályktar að beina því til ríkisstj. að láta endurskoða rannsóknakerfi landbúnaðarins, sérstaklega með það í huga, að vænlegra sé til árangurs að efla sjálfstæði tilraunastöðvanna í landsfjórðungunum um staðbundin verkefni og dreifðar tilraunir og að höfuðstöðvar kalrannsókna verði á Akureyri.“

Því er sem sagt skotið undir frekari athugun, hvort þessi stefna, sem n. telur, að eigi að fylgja, muni vera rétt.

Ég vil taka það fram hér, að ég var um rösklega fjögurra ára skeið formaður í stjórn Rannsóknastofnunar landbúnaðarins, allt frá byrjun þeirrar starfsemi og fram til ársloka 1969, og ég verð að játa það, að sá lærdómur, sem ég fékk af því, hann hneig í þá átt, sem þessi breyting á þáltill., sem allshn. leggur til, beinist að, en það er, að það muni síður en svo hafa verið til bóta að reyna að þjappa svo saman í kerfi sem gert var með lögum um rannsóknastofnanirnar. Það muni síður en svo hafa verið til bóta. Það eru, eins og menn vita, búnar að starfa um fjöldamörg ár tilraunastöðvar í öllum landsfjórðungum, og þó að ýmsir muni nú telja, að Ísland sé ekki stórt, þá eru ákaflega breytilegar aðstæður í landshlutunum, bæði hvað snertir jarðveg og gróður og þó sérstaklega kannske veðurfar, eins og mjög oft hefur komið fram nú síðustu árin. Þetta kalvandamál, sem hérna er sérstaklega tekið til meðferðar, hefur verið eitt mesta vandamál landbúnaðarins núna þessi síðustu köldu ár, en miklu stórfelldara um landið norðanvert en hér um Suðurland, og það leiðir af þessu, að það eru dálítið mismunandi viðfangsefni, sem mönnum sýnist, að séu mest áríðandi á hinum ýmsu landsvæðum. Enda þótt það ætti ekki að hindra á nokkurn hátt, að þessi mál væru rædd og ákvörðuð af einni yfirstjórn, þá finnst mér, að reynslan hafi staðfest það, að við njótum betur starfskrafta ýmissa ágætra búfræðinga, ágætra manna, sem hafa numið búfræði og starfað í ýmsum rannsóknarmálum, ef þeir hafa sem mest sjálfstæði og sjálfsákvarðanir til starfa, og það er á grundvelli þessara raka, sem breytingin á þáltill. er gerð, sem hér liggur fyrir á þskj. 685. Allshn. mælir sem sagt einróma með því, að þessi till. verði samþ. með þeirri breytingu.