02.04.1971
Sameinað þing: 40. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 86 í D-deild Alþingistíðinda. (3527)
112. mál, kalrannsóknir á Akureyri
Steingrímur Hermannsson:
Herra forseti. Ég get tekið undir það með hv. frsm., að það er áreiðanlega nokkuð vafasamt að draga allar rannsóknir um of inn í eina stofnun, eins og e.t.v. hefur verið gert með lögunum frá 1965. Þó hygg ég, að þetta sé nú fremur framkvæmdaatriði. Ég hygg, að það mæli ekkert gegn því í þessum lögum, að útibú, eða hvað við viljum kalla það, deildir í þessum stofnunum starfi sem víðast um landið. Ég fyrir mitt leyti er mjög hlynntur því, að sú stefna sé upp tekin, að settar séu upp einhverjar stofnanir úti um landið á hinum ýmsu sviðum rannsókna, ekki aðeins landbúnaðar, heldur einnig t.d. fiskiðnaðarrannsókna og þess háttar. Hafrannsóknir mætti einnig nefna. En ég tel, að það sé mjög nauðsynlegt, að gott samband sé á milli þessara stöðva og miðstöðvarinnar, sem verður að öllum líkindum hér í Reykjavík. Við eigum lítinn fjölda vísindamanna á þessu sviði, það er staðreynd því miður, og það er einnig mjög erfitt að dreifa kröftum um of, og það hefur einnig sýnt sig t.d. í sambandi við kalrannsóknir, að þar er mikil þörf á sérfræðingum á mörgum sviðum. Það er mjög margt, eins og hv. alþm. þekkja, sem hefur áhrif á kal, og það eru áreiðanlega engir sérfræðingar á einu sérstöku sviði, sem geta náð til allra þeirra greina. Ég hygg því, að það sé vafasamt, sem lagt er til í þáltill., að höfuðstöðvar kalrannsókna eigi að vera á Akureyri. Ég hygg, að þar eigi að vera sterk rannsóknarstöð í kalrannsóknum, en réttara, að höfuðstöðvarnar séu hjá Rannsóknastofnun landbúnaðarins.
Ég vil einnig vekja athygli á því, að það er kal víðar en í kringum Akureyri. Það er t.d. kal á Vestfjörðum, og var kannske verst þar á s.l. ári, og ég efast mjög um það, að ein stofnun á Akureyri geti sinnt þeim kalrannsóknum eins og skyldi. Sömuleiðis er kal fyrir austan og jafnvel hér fyrir sunnan, eins og kemur fram mjög greinilega í skýrslu, sem bráðlega kemur út, frá þýzka prófessornum Ellenberg, sem hér var á síðasta ári og reyndar tvö sumur.
Ég get tekið undir það, sem mér skildist á hv. frsm., að kalrannsóknir hafi ekki verið eins miklar og þær þyrftu að vera hjá Rannsóknastofnun landbúnaðarins, því miður. Þær þyrfti að efla. Hitt er hins vegar staðreynd, eins og einnig kom fram hjá honum, að nú er verið að byggja þar mjög sérstaka klefa. Það eru ekki aðeins frystiklefar, það eru klefar, sem eiga að geta skapað næstum því hvaða veðuraðstöðu sem hægt er að hugsa sér, og einn slíkur klefi kostar líklega um tvær milljónir. Fjármagn var veitt til þessa klefa fyrir rúmu ári. Það er verið að ljúka við hönnun hans, og ég tel mjög vafasamt vægast sagt, að slíkir klefar verði byggðir víða um landið. Við verðum að hafa þetta í huga. Og við þær rannsóknir eru nauðsynleg mörg önnur afar kostnaðarsöm tæki, þótt þau séu ekki eins kostnaðarsöm og þessi klefi. Ég fyrir mitt leyti fylgi því brtt. í nál., þar sem lagt er til, að ríkisstj. láti endurskoða rannsóknakerfi landbúnaðarins. Það tel ég eðlilegt. Vil ég geta þess í þessu sambandi, að allar rannsóknir í þágu atvinnuveganna eru nú í endurskoðun, og vonandi fær næsta Alþingi að sjá frv. um það mál, og kemur þetta einnig þar að sjálfsögðu til meðferðar.