09.12.1970
Sameinað þing: 15. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 525 í B-deild Alþingistíðinda. (354)

1. mál, fjárlög 1971

Karl Guðjónsson:

Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja eina brtt. við fjárlagafrv. Hún er á þskj. 227 og merkt þar með tölunni II. Hún fjallar um vatnsveitur, þ. e. a. s. hún fjallar um vatnsveitu Vestmannaeyja. Svo sem hv. alþm. er vel kunnugt, er þessi vatnsveita mesta mannvirki og sérstæðasta, sem á Íslandi hefur verið lagt í, og um leið er hún langdýrust af þeim öllum. Því fer mjög fjarri, að vatnsveitan sé eingöngu gerð fyrir þá íbúa, sem í Vestmannaeyjum eru, hún er það að öðrum þræði, en að hinu leytinu er hún algert nauðsynjamál fyrir þá útflutningsframleiðslu, sem þaðan kemur. Það má segja, að eðlilegt sé, að Vestmanneyingar beri sjálfir kostnað af þeim hluta vatnsveitunnar, sem fyrir bæjarbúa er. Þó tíðkast það nú, að ríkið styrki slíkar vatnsveitur. En að Vestmanneyingar eigi að borga þann hlutann af vatnsveitunni, sem er fyrir útflutningsframleiðsluna, það fæ ég ekki séð að sé réttlætanlegt, þar verður ríkið að leggja hönd á plóginn og vænti ég þess, að engir muni neita þeirri skyldu ríkisins, en eins og sakir standa, þá eru Vestmanneyingar látnir, að öllu óbreyttu, borga einnig þennan kostnað að verulegu leyti. Ekki svo að skilja, að ríkissjóður taki engan þátt í kostnaði við þetta mannvirki, en enn sem komið er þá gerir ríkið það ekki nema í svo smáum stíl, að greinilegt er, að Vestmanneyingar eru ekki einasta látnir borga sína vatnsveitu, heldur einnig vatnsveituna, sem þarf til þess, að framleiðslan þar geti verið í góðu horfi.

Á fjárlagafrv. er gert ráð fyrir 10 millj. kr. fjárveitingu úr ríkissjóði til vatnsveitna. Þar af mun vera fyrirhugað, að vatnsveitan í Vestmannaeyjum fái 5½ millj. Hins vegar liggur það fyrir, að á næsta ári, árinu 1971, munu vaxta- og afborganagreiðslur þær, sem Vestmannaeyjakaupstaður verður að standa undir, verður að inna af höndum, nema 24.3 millj. kr. Tekjur vatnsveitunnar geta hins vegar ekki orðið nema 7 eða rösklega 7 millj. kr. Það er því greinilegt, að einhvers staðar frá, annars staðar en frá fyrirtækinu sjálfu, verða að koma upp í þessar afborganir og vexti 17 eða rösklega 17 millj. kr. Ef nú væri reiknað með því, að þetta yrði að jöfnu greitt úr ríkissjóði og úr bæjarsjóði Vestmannaeyja, þá mundi láta nærri, að hvor aðili um sig yrði að bera 8½ millj. Ég hef gert till. um það, að ríkissjóðsframlagið til vatnsveitna verði hækkað úr 10 í 13 millj. kr. og að hið fyrirhugaða framlag ríkissjóðs til Vatnsveitu Vestmannaeyja verði hækkað um þessar 3 millj.

Þetta er efni þeirrar till., sem ég hef hér lagt fram, og ég vænti þess, að menn sjái, að hér er hvorki farið fram á stórkostlega hluti né heldur ósanngjarna og get ég gjarna, ef fjvn. vildi athuga þetta á milli umr., lofað till. að liggja þar til við 3. umr., ef að svo ber undir, en ég tel augljóst, að hér sé um réttlætismál að ræða, sem ekki gildi einasta þessi fjárlög, heldur hljóti það svo að vera, a. m. k. hin allra næstu ár, að ríkið sjái sóma sinn í því að greiða a. m. k. helming mismunar á vaxta- og afborganagreiðslum og tekjum þeim, sem til þess gætu fallið, úr sjóði vatnsveitunnar sjálfrar. Það er að þessu sinni 17 millj., en mundi auðvitað aukast, þegar fram líða stundir, því næsta sumar er fyrirhugað að bæta við annarri vatnsleiðslu undir sjóinn milli lands og Eyja og verður Vestmannaeyjakaupstaður að sjálfsögðu að leita á náðir ríkisins a. m. k. um ábyrgðarheimildir í því sambandi, en það er nú e.t.v. rétt að lofa því máli að bíða við afgreiðslu þessara fjárlaga í trausti þess, að ríkisvaldið telji það einnig sinn hag að greiða fyrir þessum framkvæmdum, og skal því ekki vantreyst að óreyndu. En þessi till. er þess efnis, að ef ríkið vill ekki hreinlega láta þá íbúa, sem draga á land þann fisk, sem úr landinu er seldur, einnig standa undir kostnaðinum af því að þvo hann almennilega, svo að hann sé hæf markaðsvara, þá verður að taka upp þessa stefnu, að borga a. m. k. til jafns við Vestmannaeyjakaupstað þennan mismun á afborgana- og vaxtagreiðslum, sem ég hef nú nefnt, og að óreyndu vantreysti ég því ekki, að hv. alþm. sjái nauðsyn á því.