02.04.1971
Sameinað þing: 40. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 93 í D-deild Alþingistíðinda. (3545)

129. mál, útflutningur á framleiðluvörum gróðurhúsa

Steinþór Gestsson:

Herra forseti. Ég finn hvöt hjá mér til þess að þakka hv. allshn. fyrir afgreiðslu þessarar till. og er ánægður yfir því, að þær umsagnir, sem bárust um hana, hafa allar átt það sameiginlegt að vera mjög jákvæðar og hvetjandi til þess, að till. yrði samþ. Sjálfur hef ég aldrei verið í vafa um það, að þessa rannsókn bæri að gera, og er enn sannfærðari um það eftir en áður, að af þeirri rannsókn gæti orðið miklu meira og stærra mál en margur áttar sig á enn. Ég þakka n. kærlega fyrir.