02.04.1971
Sameinað þing: 40. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 97 í D-deild Alþingistíðinda. (3553)
141. mál, flöskuverksmiðja á Íslandi
Frsm. (Bragi Sigurjónsson):
Herra forseti. Allshn. hefur haft þáltill. um athugun möguleika á byggingu og rekstri flöskuverksmiðju á Íslandi til könnunar og sendi hana m.a. til umsagnar Iðnaðarmálastofnun Íslands, sem mælti með, að slík könnun, sem till. gerir ráð fyrir, færi fram. Að athuguðu máli leggur allshn. til, að tillgr. verði örlítið breytt, eða eins og stendur á þskj. 684, að hún orðist þannig:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að kanna, hvort tiltækilegt sé að stofna og reka flöskuverksmiðju á Íslandi. M.a. sé haft í huga við þá könnun, hvort unnt sé að nýta fyrir starfsemi slíkrar verksmiðju að einhverju eða öllu leyti eitthvað af byggingum Síldarverksmiðja ríkisins, sem nú standa ónotaðar víða um land.“