05.03.1971
Sameinað þing: 31. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 101 í D-deild Alþingistíðinda. (3571)

194. mál, ráðstafanir vegna skorts á hjúkrunarfólki

(Einar Ágústsson):

Herra forseti. Ég vil nú leyfa mér að bjóða hæstv. heilbr.- og félmrh. sérstaklega velkominn í salinn. Það sannast á honum í tilefni af því, sem sagt var hér áðan, að oft kemur góður þá getið er, og ég a.m.k. varð feginn að sjá hann, því að þetta mál, sem ég ætla að hafa hér örstutta framsögu um, lýtur að hans rn. Munu koma fram frá mér nokkrar spurningar um það.

Ég flyt hér ásamt hv. 1. þm. Vestf., Sigurvin Einarssyni, till. til þál. um ráðstafanir vegna skorts á hjúkrunarfólki. Till. er stutt. Hún er svona:

„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að gera þegar í stað raunhæfar ráðstafanir til þess að ráða bót á þeim skorti hjúkrunarfólks, sem nú veldur því, að sjúkrahúsin í landinu geta ekki veitt fulla þjónustu.“

Í okt. s.l. gerði ég nokkra könnun á því, hvernig ástatt væri með hjúkrunarlið á Borgarspítalanum og ríkisspítölunum, og ég greindi frá því hér á Alþ. Ástæðan til þess var sú, að þá hafði ég nýlega farið í kynnisferð sem borgarfulltrúi hér í Reykjavík á Borgarspítalann og orðið þess vísari, að tvær nýjar deildir voru þar óstarfhæfar, vegna þess að engin hjúkrunarkona fékkst til að starfa á þeim. Enn fremur var mér þá sagt, að álagið á öllu hjúkrunarliðinu væri allt of mikið og þó alveg sérstaklega á skurðstofunni, því að þar væru aðeins 5 hjúkrunarkonur, sem störfuðu að verkefnum, sem 12 hjúkrunarkonum væri ætlað samkv. fjárhagsáætlun spítalans. Svo koma sumarleyfin, sögðu menn þar suður frá, og þeir hugsuðu til þeirra með kvíða, því að svo erfitt sem það er að halda spítalanum gangandi við venjulegar aðstæður, keyrir þó fyrst um þverbak, þegar hjúkrunarliðið þarf að fá sitt eðlilega og raunar lögboðna sumarleyfi.

Á ríkisspítölunum var ástandið þannig í okt. að af leyfilegum fjölda hjúkrunarkvenna, sem samkv. fjárlögum 1970 og raunar fjárlögum 1971 líka eru 190.5, voru 155.5 í starfi, og vantaði þar með 35. Rétt um þetta leyti, sem þessar upplýsingar fengust, var verið að útskrifa úr Hjúkrunarskólanum 39 stúlkur, og þá hefði mátt ætla, að vandinn væri leystur að verulegu leyti, en svo mun þó ekki vera, eins og þær tölur, sem ég mun nefna nú, sýna. Þær upplýsingar, sem ég ætla að greina frá hér nú, eru nýlegar. Þær eru að vísu ekki alveg nýjar, því að ég hef átt von á því, að þessi till. kæmist fyrr á dagskrá og var vanbúinn að afla alveg nýrra upplýsinga, en þær eru frá 15. febr. Þá er ástandið svona: Á Borgarspítalanum eru hjúkrunarstöðurnar 107 samkv. fjárhagsáætluninni. Það er skipað í 102, og vantar þar af leiðandi ekki nema 5 til þess að fjárhagsáætluninni sé fullnægt. Ég vil greina frá því, af því að ég minntist á þær deildir, sem lokaðar voru í okt., að þær hafa nú tekið til starfa og eru innifaldar í þessum tölum. Forstjóri spítalans sagði þó, að álagið væri enn þá allt of mikið og algerlega óséð, hvernig hægt yrði að koma við sumarleyfum starfsfólksins. Það væri alveg óleyst verkefni, sem einhvern veginn yrði að finna lausn á. Á ríkisspítölunum eru tölurnar hins vegar þessar: Landsspítali, þar er heimilaður fjöldi 122.5, í starfi 102, vantar 20.5. Fæðingardeild, þar er heimilaður fjöldi 18, í starfi aðeins 7, vantar 11 . Á Vífilsstaðahæli er ástandið bezt. Þar er heimilaður fjöldi 12, í starfi eru 11, vantar aðeins eina, og á Kleppsspítala eru 38 stöður, en í starfi 36, vantar tvær. Alls er þetta 190.5 á fjárlögum yfirstandandi árs, eins og við vitum, og í starfi eru 156, vantar 34.5, þannig að þetta hefur lagazt um hálfa hjúkrunarkonu á ríkisspítölunum á þeim fimm mánuðum, sem liðnir eru síðan þessar tölur voru síðast nefndar hér. Og í þessu sambandi vil ég þó líka bæta því við, sem við vitum og hér hefur verið rætt á Alþ., að mjög fer fjarri því, að í fjárlögunum hafi verið fallizt á allar þær till., sem yfirmenn sjúkrahúsanna gerðu og telja nauðsynlegar, eins og t.d. á Kleppsspítala, sem hér var rækilega rætt um í sambandi við afgreiðslu fjárlaga og fékkst ekki lagfært, þannig að raunverulega er vandinn miklu meiri en þessar tölur sýna.

Þann 1. jan. 1970 voru í landinu 922 lærðar hjúkrunarkonur og 196 nemendur. Þá voru starfandi 483 hjúkrunarkonur, en þar af 135, sem aðeins voru í starfi að hluta, en það þýðir, að 348 voru þá í fullu starfi. Athugun hefur verið gerð fyrir nokkrum árum á starfsaldri og fleiru, sem hjúkrunarkonum viðkemur. Við þá athugun kom það í ljós, að 34 af 100 útskrifuðum hjúkrunarkonum hverfa frá starfi sama ár og þær eru kaupskráðar. Að tveimur árum liðnum hafa 60% þessa hóps horfið frá störfum, og aðeins 23% starfa að loknum námstíma og þangað til þær hætta sökum aldurs.

Hæstv. heilbrmrh. upplýsti hér fyrr í vetur, að í sambandi við stækkun sjúkrahúsanna í landinu og þá alveg sérstaklega hér á höfuðborgarsvæðinu hafi ekki samtímis verið gerð áætlun um það, hvernig skyldi manna þessar stofnanir, hvorki hvað snertir lækna, hjúkrunarlið eða annað starfslið, og ráðh. bætti við orðrétt, að ég held, með leyfi forseta:

„Þetta er raunar í samræmi við það, að engin heildaráætlun hefur enn verið gerð um störf sjúkrahúsa eða heilbrigðisstofnana, hvorki fyrir landið allt eða einstök byggðarlög.“

Já, það vantar ekki samræmið í hlutina. Það hefur hvorki verið gerð áætlun um eitt né annað.

Í skýrslu um sjúkrarúmaþörfina í Reykjavík, sem borgarlæknirinn, Jón Sigurðsson, tók saman og ég hef raunar áður gert hér að allrækilegu umtalsefni af öðru tilefni, þá benti hann á, að vegna skorts á heildaryfirstjórn sjúkrahúsamálanna værum við þannig á vegi staddir, að í ýmsum þáttum stæðumst við þær kröfur, sem annars staðar eru gerðar um fjölda sjúkrarúma, það væri rétt að gleðjast yfir því. En hins vegar vantaði algerlega aðrar deildir, ég held, að hann hafi nefnt bæði augnlækningadeild og heyrnardeild og háls-, nef- og eyrnadeild, og mjög skorti á rúm fyrir geðsjúklinga. Þetta var auðvitað alvarlegt umhugsunarefni. Nú hafa þau ánægjulegu tíðindi gerzt, að heilbrmrn. hefur fyrir margítrekuð tilmæli borgarstjórnar Reykjavíkur, vil ég segja, ákveðið að koma á fót samstarfsnefnd í sjúkrahúsamálum, og þá fer kannske að verða einhver von til þess, að vinstri höndin hafi a.m.k. hugboð um það, hvað sú hægri er að gera. En það hefur hún ekki vitað hingað til, og það er svo sem ekki vonum fyrr, að sú skipan komist á. En engu að síður ber að fagna þessu skrefi, sem stigið hefur verið undir forustu núv. hæstv. heilbrmrh.

Allir hljóta að geta verið sammála um það, að algerlega þýðingarlaust er að byggja dýr sjúkrahús með nýjustu og fullkomnustu tækjum til þess að láta þau standa ónotuð, og það er óverjandi sinnuleysi að ráðast í byggingu slíkra húsa, án þess að fyrst sé tryggt, að starfskraftar fáist, til þess að húsin og tækin komi að fullum notum. Þess vegna hljóta alþm. að krefjast þess, að úr hjúkrunarkvennaskortinum verði bætt með öllum tiltækum ráðum. Til þess sýnist vera hægt að gera tvennt: Annars vegar að auka þann fjölda, sem lærir hjúkrun, og fá þannig fleira fólk til starfa, hins vegar að gera ráðstafanir til þess, að fleiri, sem þegar hafa lært starfið, vinni við það og þeir, sem vinna við það að hluta, vinni við það meira. Og ég ætla að leyfa mér að fara örfáum orðum um hvorn þessara liða fyrir sig.

Það er þá fyrst um það, hvernig hægt sé að auka þann fjölda, sem lærir hjúkrun. Á árinu 1967 var Hjúkrunarskólinn stækkaður upp í það að geta tekið á móti 80–90 nemendum í einu. Og það stóð ekkert á því, að hann fylltist því að árið 1968 voru nýir nemendur þar yfir 80. En í tímariti Hjúkrunarfélags Íslands, 2. og 3. hefti á s.l. ári, segir skólastjórinn svo um þetta, með leyfi forseta:

„En á síðasta ári neyddumst við til að skera töluna niður í 60 þrátt fyrir mikla aðsókn. Útskrifaðir nemendur í ár og næsta ár verða ca. 85 1970 og um 80 1971, en tæpast útskrifast fleiri en 50–60 nemendur 1972, og þetta dugar tæpast til að mæta þeirri miklu eftirspurn eftir hjúkrunarkonum, sem nú er fyrir hendi.“

Það er ekki beysið að heyra þetta. Eftir 4–5 ár frá stækkun skólans verður aftur farið niður í sömu tölu og var með útskrifaða nemendur. Og af hverju ætli þurfi nú að skera þessa tölu svona mikið niður? Er þá ekki pláss í skólanum? Jú, jú, hann hefur ekkert minnkað síðan 1967. Hann getur enn þá tekið við 80-90 nemendum. Ætli það sé þá ekkert pláss á sjúkrahúsunum fyrir það nám, sem þarf að fara þar fram? Jú, þau hafa ekki heldur minnkað síðan 1967. Þvert á móti hafa þau stækkað og fleiri deildir komið til skjalanna, og það eru nóg verkefni fyrir alla nemendur, þó að þeir væru 80–90 og sennilega miklu fleiri. Er það þá vegna þess, að enginn vill fara í þennan skóla? Nei, það er alls ekki vegna þess. Aðsóknin er næg. Hún er meira að segja svo mikil, að skólinn er hættur að afhenda umsóknareyðublöð, af því að það er þýðingarlaust að sækja um skólavist eins og sakir standa. Það er bara tímaeyðsla að vera að fylla út þessi eyðublöð. Og inntökuskilyrðin eru alltaf að þyngjast, en það eru nægir nemendur fyrir því. Nú er búið að gera það að skilyrði, eftir því sem ég bezt veit, að hafa tveggja ára nám eftir gagnfræðapróf í framhaldsdeildinni við Lindargötuskólann. Fyrir fáum árum dugði eitt ár þar, örfáum árum, og fyrir nokkru fleiri árum, en þó ekki mörgum, þurfti ekkert viðbótarnám eftir gagnfræðaprófið. Það er ágætt að auka menntun hjúkrunarfólks. En þessar ráðstafanir draga ekkert úr aðsókninni, eftir því sem mér skilst. Stúlkurnar setja það ekkert fyrir sig að hafa lengra nám að baki, áður en þær fara í þennan skóla, þær, sem áhuga hafa á starfinu. Og hvað sem um þetta má annars segja, þá er það alveg vist, að fækkun nemendanna í Hjúkrunarskólanum stafar ekki af því, að engir vilji fara þangað. Þvert á móti þarf árlega að bægja miklum fjölda ungmenna frá skólanum, svo slæmt sem það þó er. En hver er þá ástæðan fyrir þessari lokun skólans? Hún er sú, eftir því sem næst verður komizt, að skólinn getur ekki tekið við fullri nemendatölu vegna kennaraskorts. Það fást, eftir því sem mönnum skilst, ekki kennarar til að kenna nema 60 nemendum, en alls ekki 80. Það er hart að þurfa að trúa því, að þetta sé raunverulega svona. Og í tilefni af því. er þá kannske ástæða til þess að spyrja: Hvað hafa heilbrigðisyfirvöldin gert til þess að útvega þá kennara, sem okkur vantar? Hefur hið opinbera til að mynda tekið upp þá tilhögun að styrkja fólk til þess að verða þarna kennarar? Skólastjóri Hjúkrunarskólans benti á þetta sem hugsanlega leið til úrbóta í áðurnefndri grein, sem ég minntist á. Hefur þetta verið reynt? Ég veit það ekki. Væri ekki hægt að fá útlenda kennara að skólanum, ef enginn Íslendingur er til, sem vill gera þetta eða getur það? Væri ekki hreinlega hægt að mennta fólk til þessara starfa? Mér skilst, að t.d. í Noregi standi hjúkrunarkonum til boða eins og hálfs árs framhaldsnám í kennslu og kennslufræðum. Gætum við ekki komið því upp hér á sjúkrahúsunum, svo að við hefðum þá eftir 1 eða 11/2 ár næga kennara til þess að stunda þessi störf? Jafnvel kemur til greina að setja upp deild í Háskólanum fyrir hjúkrunarkennara, því ekki það? Allt kennaranám er að fara á háskólastig, og ég sé ekki annað en það sé fyllilega til athugunar að setja hjúkrunarkennarana þar með. En þangað til verður að bjargast við eitthvað annað, og mér dettur í hug: Getur ekki hjúkrunarkona með t.d. mikla alhliða starfsreynslu kennt hjúkrunarnemum, kennt því fólki, sem okkur vantar svona sárlega, því að eitthvað verður að reyna? Það dugar ekki að halda að sér höndum og taka því eins og óumbreytanlegu náttúrulögmáli, að enginn kennari fáist, ef það er þá raunverulega ástæðan fyrir því, að skólinn getur ekki tekið fleiri nemendur en hann gerir nú, sem ég skal út af fyrir sig ekki leggja dóm á.

Ég álít, að það sé fullkomlega óverjandi að horfa á það, að ekki sé hægt að veita viðtöku fullri tölu nemenda í þessum skóla, eins og ástandið í sjúkrahúsunum er og eins og það hlýtur að verða í vaxandi mæli í framtíðinni. Ég held, að það væri miklu fremur ástæða til þess að stækka þennan skóla eða stofna annan, t.d. í sambandi við Borgarspítalann, eins og sumt fólk, sem að þessum málum starfar, hefur hugmyndir um, að gæti verið heppilegt. En það er náttúrlega alveg þýðingarlaust, ef enginn fæst til þess að kenna. Það segir sig sjálft. Þetta mundi þá verða annað atriðið, sem væntanlega kæmi til athugunar, ef þessi þáltill. yrði samþ.

Um síðara atriðið, hvað hægt sé að gera til þess að fá lærðar hjúkrunarkonur til þess að starfa við sérgrein sína, fleiri og kannske meira en þær gera nú, get ég e.t.v. ekki gefið miklar bendingar, en þó skal ég leyfa mér að drepa á örfá atriði, sem mér hefur verið sagt af kunnugum, að til greina gætu komið. Það er þá fyrst starfsaðstaðan. Hjúkrunarfólk kvartar undan því, að hún sé hvergi nærri nógu góð víða, vaktherbergin séu fá og lítil og álagið gífurlega mikið, þrengsli og ýmislegt óhagræði, sem dragi úr áhuga á þessu starfi. Launakjörin hafa vissulega mikið að segja. Hjúkrunarkonurnar voru ákaflega óánægðar með starfsmatið. Þeim fannst þær lágt metnar. Í þessu þjóðfélagi okkar, sem gerir ráð fyrir miklum launamismun, enn sem komið er a.m.k., er það auðvitað afgerandi í mörgum tilfellum, hvar í launastiganum fólk lendir, og þetta er eitt af því, sem hlýtur að hafa áhrif á það, hvort fólk fæst til þess að vinna við þetta eða ekki. Þá hefur mér verið sagt, að það væri talið mikils virði að geta haldið þekkingu sinni við. Það væri hægt að glæða áhugann með því að hafa kennsluhjúkrunarkonur, sem veittu alhliða uppfræðslu í þessum fræðum, því að það er alltaf að koma, eins og við vitum hér, ekkert síður og kannske frekar en í mörgum öðrum greinum, nýtt til skjalanna, sem fólk þekkti ekki áður. Þetta er mjög tíðkað á spítölunum erlendis, eftir því sem mér er sagt. Þar eru kennsluhjúkrunarkonur, sem ekkert gera annað en að kenna útskrifuðum hjúkrunarkonum nýja hluti. Það er til vísir að þessu hér að vísu, bæði á Borgarspítalanum og á Kleppi, en það er vist, eftir því sem mér er sagt, bæði of lítið og þó kannske umfram allt of óvíða. Þá er talið líklegt í framhaldi af þessu, að ýmiss konar sérnám, sérhæfing í ákveðnum störfum, sem gefur þá tiltekin réttindi, gæti laðað hjúkrunarfólkið að og gæti orðið til þess, að það vildi fremur starfa. Barnaheimili hafa verið reist við nokkur sjúkrahús. Þau eru, skilst mér, ekki næg. Það er t.a.m. hvergi, held ég, tekið við nema einu barni af hverri móður, en það er í mörgum tilfellum of lítið og veldur því, að þær, sem vildu vinna, komast ekki til þeirra starfa. Það væri kannske hægt að huga að þessu fyrir þær giftu. Fyrir þær ógiftu mætti hugsa sér, að komið yrði upp húsnæði. Það er allt miðað við það, sem gerist erlendis. Það er gert erlendis. Hjúkrunarkonum er útvegað húsnæði í grennd við sjúkrahúsin, þar sem þær vinna, með viðráðanlegum og góðum kjörum, og þær hjúkrunarkonur, sem starfa erlendis, sem eru nokkrar, hafa búið um sig þar, búa við þann aðbúnað, sem þar er veittur, og ég held, að Ísland þurfi að bjóða upp á eitthvað sérstakt til þess að fá þær til þess að taka sig upp og koma heim. Þetta mætti kannske reyna. Mér dettur auðvitað ekki í hug, að ég gæti talið það upp tæmandi, sem hér væri hægt að gera, og það er vafalaust margt enn þá ónefnt, sem til greina kemur. Hæstv. ríkisstj. með sínu starfsliði hefur auðvitað alla möguleika á því að kanna þetta, og það á hún að gera.

Þann 28. okt. s.l., þegar þessi mál voru hér síðast rædd, boðaði hæstv. heilbrmrh., að sett yrði á fót nefnd, sem hefði það hlutverk að semja lög um námstilhögun og starfsréttindi fólks, sem vinnur á sjúkrahúsum, og þess væri vænzt, að slíkt lagafrv. yrði lagt fyrir þetta Alþ. Nú vil ég leyfa mér að spyrja hæstv. heilbrmrh.: Hefur þessi nefnd verið skipuð? Hvenær var hún skipuð? Hvernig miðar hennar störfum? Og hvenær kemur frv. fram? Það er aðeins eftir af þessu þingi um það bil mánuður, eftir því sem við óbreyttir alþm. vitum bezt, og ef hér á að koma frv., sem á að hafa eitthvert raunhæft gildi í þessum málum, þá þarf það að fara að koma.

Ég skal svo ekki, herra forseti, fjölyrða meira um þetta og legg svo til, að umr. verði frestað og till. vísað til allshn.