17.12.1970
Sameinað þing: 18. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 539 í B-deild Alþingistíðinda. (360)
1. mál, fjárlög 1971
Frsm. meiri hl. (Jón Árnason):
Herra forseti.
Fjvn. hefur á milli umr. haldið áfram athugun sinni á fjárlagafrv. og tekið einnig til athugunar og afgreiðslu ýmis erindi önnur, sem hjá n. voru óafgreidd við 2. umr. málsins. Stærsti málaflokkurinn, sem hér um ræðir, voru fjárveitingar til byggingar nýrra barnaskóla, gagnfræðaskóla og skólastjóraíbúða, og mun ég síðar gera grein fyrir till. n. þar um. Þá hefur n. gert allmargar till. um aðrar fjárveitingar, svo sem fram kemur á þskj. 268. Er þar um till. að ræða, sem ýmist fela í sér skiptingu á milli aðila á fjármagni, sem í frv. er, eða um er að ræða nýjar brtt. til hækkunar á útgjöldum.
Svo sem fram hefur komið í umr. um fjárlagafrv., hafði stjórnarandstaðan það helzt við frv. að athuga, hve hér er um stórfellda hækkun fjárl. að ræða. Að sjálfsögðu væri æskilegt, að unnt væri að færa niður útgjöld og spara allt í ríkisrekstrinum, en því miður hefur hvorki fjvn. né öðrum hv. þm. tekizt að benda á raunhæfar leiðir, sem leitt gætu til þess, að svo mætti verða. Við athugun n. á frv. og með hliðsjón af þeim brtt., sem n. leyfði sér að flytja við 2. umr. málsins og aftur nú þær brtt., sem n. flytur við endanlega afgreiðslu fjárlagafrv. á þskj. 268, hefur komið í ljós, að n. hefur talið óhjákvæmilegt að flytja fjölmargar till., sem fela í sér stóraukin útgjöld úr ríkissjóði. Ég tel, að hjá þessu hafi ekki verið komizt nema þá með þeim afleiðingum að draga úr fjárveitingum til nauðsynlegra framkvæmda eða þjónustu við þegnana í einni eða annarri mynd. g hygg, að þessi sé einnig raunveruleg skoðun stjórnarandstöðunnar almennt. Enn sem komið er hefur hún ekki treyst sér til þess að bera fram till. um niðurskurð eða lækkun á einstökum liðum fjárlagafrv. Stjórnarandstaðan hefur aftur á móti flutt fjölmargar brtt. til viðbótar, sem allar eiga það sammerkt að fela í sér stóraukin útgjöld úr ríkissjóði. Það vakti athygli mína við afgreiðslu brtt. frá einstökum þm. úr liði stjórnarandstöðunnar við 2. umr. málsins, að þær af þeim till., sem hæstar voru og lengst gengu í þá átt að auka útgjöld úr ríkissjóði, hlutu mest fylgi þeirra stjórnarandstöðuþm. Ég hygg því, að hv. þm. sé ljóst, að horfast verður í augu við þær staðreyndir, að allt verðlag í landinu, launagreiðslur sem ýmis annar kostnaður, hefur stórhækkað og af því hefur leitt, að fjárlög nú verða mun hærri en dæmi eru til um áður. Það er hins vegar von mín, að með tilkomu þeirrar verðstöðvunar, sem nú hefur verið lögfest, muni skapast meiri festa og jafnvægi í ríkisbúskapnum og að loknu því tímabili, sem verðstöðvuninni nú er ætlað að ná til, hafi skapazt sá grundvöllur, sem nauðsynlegur er til þess að áframhaldandi jafnvægi og atvinnuöryggi megi haldast.
Eitt er það mál, sem fjvn. hefur ekki haft aðstöðu til að fjalla um, en það er, hvaða áhrif til aukinna útgjalda á ríkissjóð samningarnir við opinbera starfsmenn muni hafa. Öllum er ljóst, að hér er um allmikla upphæð að ræða, en það er von mín, að fjárlagafrv. verði nú afgreitt með það miklum tekjuafgangi, að ríkissjóður verði fær um að mæta þeim auknu útgjöldum, sem af samningunum muni leiða. Ég mun nú gera grein fyrir þeim brtt., sem fjvn. hefur leyft sér að flytja við þessa umr. málsins. Eins og ég hef áður greint frá, er hér um málefni að ræða, sem n. hafði ekki haft aðstöðu til þess að fullljúka athugun sinni á. Þá hefur n. einnig tekið til sérstakrar athugunar brtt, einstakra þm., sem fluttar voru við 2. umr., en voru teknar aftur til a. umr. Í sumum tilfellum hefur n. séð sér fært að koma til móts við till. flm., en í öðrum tilfellum hefur n. hins vegar ekki séð sér fært að fallast á umheðnar fjárveitingar.
Við tekjuhlið frv. er lagt til, að gerð verði sú breyting, að söluskattur hækkar um 5 millj. 400 þús. kr. Þar af renna 5 millj. til Vegasjóðs, en til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga hækkar liðurinn um 400 þús. kr., en það er hluti sveitarfélaganna, vegna þess að hækkun þessi stafar af hækkuðu bensínverði svo sem fyrirhugað er. Þá koma næst till. n., sem falla undir gjaldalið frv. Er þá fyrst till. n., að inn komi nýr liður, hús Jóns Sigurðssonar, að upphæð 2 millj. 50 þús. kr. Verulegur hluti af þessari upphæð eða um 1 millj. 650 þús. kr. er vegna greiðslu vaxta og afborgana af láni, sem tekið var vegna endurbóta, sem gerðar voru á þessu húsi.
Þá er næst till. um 100 þús. kr. lækkun við forsrn., en þar er nánast um millifærslu að ræða við utanrrn., en þar kemur upphæð þessi til gjalda á liðnum „önnur rekstrargjöld“, en það er vegna kostnaðar af rekstri bifreiðar.
Við ráðherrabústaðinn við Tjarnargötu er fyrirsjáanlegt, að ekki verður unnt að komast hjá að leggja í verulegan kostnað vegna viðhalds og umbóta á bústaðnum. Sem byrjunarfjárveiting í því skyni leggur n. til, að viðhaldskostnaður hækki um 927 þús. kr., og er þó aðeins um byrjunarfjárveitingu að ræða vegna þeirra framkvæmda, sem fyrirhugaðar eru á árinu 1971. Þá er næst till. um að hækka launalið við tilraunastöðina á Keldum um 572 þús. kr. Það er í fyrsta lagi vegna vanáætlunar við fjárlagagerðina, en einnig er hér um að ræða ráðningu á nýjum meinatækni við stofnunina og þess utan aukinn kostnað við rannsóknirnar. Við endurskoðun, sem átt hefur sér stað, kom í ljós, að ekki yrði hjá því komizt að veita nokkru fé til Æfinga- og tilraunaskóla Kennaraskólans, vegna byggingarframkvæmda, en till. þar um var við 2. umr. málsins felld niður. Leggur n. nú til, að fjárveiting til þessa skóla verði 1 millj. kr.
Til Íþróttakennaraskóla Íslands, gjaldfærður stofnkostnaður, er lagt til, að liðurinn hækki um 400 þús. kr. og verði þá alls 1 millj. 650 þús. kr. Svo sem ég hef áður um getið, hafði n. við 2. umr. málsins ekki að fullu lokið till. sínum varðandi fjárveitingar til byggingar barna- og gagnfræðaskóla og íbúða fyrir skólastjóra. Leggur n. nú til, að þessi fjárlagaliður, sem er í frv. eins og það er eftir 2. umr. 234 millj. 560 þús. kr., hækki um 53 millj. 531 þús. kr. og verður þá heildarfjárveiting til þessara skólabygginga 288 millj. 9Í þús. kr. Nemur þá hækkun alls á þessum fjárlagalið frá því, sem er í fjárl. yfirstandandi árs um 81 millj. 285 þús. kr. Um skiptingu milli einstakra framkvæmda vísast til þess, sem fram kemur á þskj. 268.
Þá er næst till. um, að liðurinn viðhald á vistheimilinu Breiðavík hækki um 300 þús. kr., og verður sá liður þá samtals 700 þús. kr. Að tilhlutan ríkisstj. leggur fjvn. til, að ákveðið verði, að til minningar um forsætisráðherrahjónin, dr. Bjarna Benediktsson og frú Sigríði Björnsdóttur ásamt ungum dóttursyni þeirra, sem fórust svo sem kunnugt er í eldsvoða á Þingvöllum á s. l. sumri, verði gefið andvirði 10 eininga í væntanlegum hjónagarði, sem reisa á við Háskóla Íslands. Samkv. upplýsingum, sem n. aflaði sér, er gert ráð fyrir, að verðgildi hverrar einingar miðað við núverandi verðlag verði um 810 þús. kr. Leggur því n. til, að inn verði tekin í þessu skyni sem fyrsta greiðsla fjárveiting að upphæð 3 millj. kr.
Í fjárl. yfirstandandi árs voru veittar 250 þús. kr. til Örnefnastofnunar. Kemur fjárhæð þessi fram í heildarfjárveitingu til Þjóðminjasafns Íslands samkv. sundurgreiningu í viðfangsefnum þeirrar stofnunar. Í ljós hefur komið, að umræddur fjárlagaliður í frv. hefur af vangá fallið niður. Leggur því n. til, að inn verði tekin fjárveiting til Þjóðminjasafnsins að upphæð 300 þús. kr., sem er ætlað að standa undir kostnaði vegna Örnefnastofnunarinnar.
Þá er lagt til, að framlag til bæjar- og héraðsbókasafna hækki um 2 millj. kr., og er þá gert ráð fyrir, að unnt verði að auka verulega bókakaup til hinna ýmsu bókasafna víðs vegar um landið. Við liðinn heiðurslaun listamanna er lagt til, að heiðurslaun listamanna samkv. ákvörðun Alþ. hækki um 239 þús. kr., og verður þá sá liður samtals að upphæð Í millj. 925 þús. kr., og skal þeirri upphæð skipt milli 11 tiltekinna listamanna þannig, að í hlut hvers koma 175 þús. kr. Þá er einnig lagt til, að liðurinn 982 19 listamannalaun hækki um 500 þús. kr. og verði þá samtals 5 millj. 630 þús. kr. Til Náttúrugripasafns Neskaupstaðar hækkar fjárveiting um 25 þús. kr., og er það til samræmis við það, sem veitt er til annarra sambærilegra safna. Hjálparsveitir skáta, sem nú eru orðnar 10 talsins, höfðu í fjárl. yfirstandandi árs fjárveitingu að upphæð 300 þús. kr. Hvort tveggja er, að starfsemi hjálparsveitanna, sem fyrir voru, hefur aukizt verulega og einnig hafa nýjar hjálparsveitir bætzt við. Það, sem mest háir starfsemi hjálparsveitanna er, að þær búa við ófullnægjandi útbúnað til starfsemi sinnar. Slíkur útbúnaður, sem hér þarf til að koma, eru margs konar tæki, sem kosta verulega fjármuni. N. leggur því til, að liðurinn til hjálparsveita skáta hækki um 100 þús. kr. og verður þá samtals 400 þús. kr.
Þá hefur n. gert till. um skiptingu á fjárupphæð, sem er í fjárlagafrv., 600 þús. kr., en það eru byggingarstyrkir til dagheimila. Um skiptinguna vísast til þess, er fram kemur á þskj. 268.
Til samtaka íslenzkra kennaranema hækkar fjárveiting í 30 þús. kr. Frá nemendaráði Stýrimannaskólans í Reykjavík barst n. erindi, þar sem þess er farið á leit, að Alþ. veitti nokkurri fjárupphæð til Styrktarsjóðs nemenda Stýrimannaskólans í Reykjavík. Sjóður þessi var upphaflega stofnaður af nemendum Stýrimannaskólans árið 1921. Er hlutverk sjóðsins að styrkja nemendur vegna veikinda og enn fremur að styrkja efnalitla nemendur, sem vegna fjárskorts áttu erfitt með að ljúka námi. Þrátt fyrir það, að sjóðurinn er á næsta ári um hálfrar aldar gamall, er höfuðstóll hans í dag aðeins 400 þús. kr. Það er till. n., að inn verði tekinn nýr liður sem framlag til þessa sjóðs að upphæð 300 þús. kr. Ég tel hins vegar rétt að láta það koma fram í þessu sambandi, að það er skoðun fjvn., að nemendur Stýrimannaskólans og Vélskóla Íslands eigi að eiga aðgang að námslánum úr hinum almenna lánasjóði islenzkra námsmanna. Það verður að teljast eðlilegt, að þessir nemendur, svo mikið sem öll íslenzka þjóðin á undir starfi þeirra komið, sitji ekki við skarðari hlut í þessum efnum en nemendur annarra skóla. Að vísu er hér ekki um langskólanám að ræða, en á hitt má aftur benda, að nemendur þessir eru í flestum tilfellum búnir að stofna heimili og hafa af þeim sökum erfiðari fjárhagsgrundvöll, og þeir eru einnig að venju nokkru eldri heldur en nemendur annarra framhaldsskóla.
Þá kemur næst till. n. um 250 þús. kr. fjárveitingu til safnahúss á Húsavík. Er þessi fjárveiting í tilefni af sérstöku afmæli, sem haldið var upp á í tilefni af því að talið er, að liðin séu um 11 hundruð ár frá fyrstu byggð á Húsavík.
Við utanrrn. hækka önnur rekstrargjöld um 100 þús. kr., en það er í samræmi við það, sem ég greindi áðan frá varðandi rekstur bifreiðar. Þá er lagt til, að inn verði teknir tveir nýir liðir við þetta rn. Það er til Flóttamálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, 800 þús. kr., og tillag til Eftirlitsnefndar Sameinuðu þjóðanna með alþjóðasamningi um afnám kynþáttamisréttis, 88 þús. kr.
Til Búnaðarfélags Íslands er lagt til, að liðurinn önnur rekstrargjöld hækki um 500 þús. kr. Var hér um vanáætlun að ræða. Tilraunastöðin á Skriðuklaustri. Lagt er til, að framlag vegna viðhalds hækki um 300 þús. kr. og til byggingar dýralæknisbústaða er lagt til, að fjárveiting hækki um 300 þús. Liðurinn fyrirhleðslur er lagt til, að hækki um 150 þús. kr. Er hér um nokkrar smærri framkvæmdir að ræða, sem ekki var lokið athugunum á við 2. umr. Þá er till. í 6 liðum varðandi landþurrkun að upphæð samtals 380 þús. kr. og vísast til þess, er fram kemur á sérstöku yfirliti á þskj. 268. Þessu næst er lagt til, að inn verði teknir nýir liðir, þ. e. til veðdeildar Búnaðarbanka Íslands 2½ millj. kr. og til súgþurrkunar einnig 2½ millj. kr. Varðandi veðdeild Búnaðarbanka Íslands er það að segja, að veðdeildin hefur um langt tímabil haft erfiðan rekstrargrundvöll. Byggist það sérstaklega á því, að veðdeildin hefur haft til starfsemi sinnar lánsfé, sem greiddir hafa verið af hærri vextir en gildir um útlán veðdeildarinnar. Það má raunar segja, að hér gegni svipuðu máli og áður átti sér stað um aðra lánasjóði landbúnaðarins, meðan stöðugt gekk á höfuðstólinn í starfsemi þeirra. Gera má ráð fyrir, að þessi fjárveiting til veðdeildar Búnaðarbankans, sem væntanlega verður þá framvegis fastur liður í fjárlögum, verði til þess að rétta nokkuð við rekstrarafkomu deildarinnar.
Til Efnarannsóknastofu Norðurlands er lagt til, að fjárveiting hækki um 100 þús. kr. Til félagssamtakanna Landvernd er lagt til, að fjárveiting verði 150 þús. kr., en í því sambandi er rétt að geta þess, sem ég tók fram við 2. umr. málsins, að starfsemi þessi fái ókeypis fræ og áburð til landgræðslustarfsemina frá Landgræðslustofnuninni, enda verði allt það starf, sem hér um ræðir, skipulagt í samræmi við heildarframkvæmdir Landgræðslunnar.
Þá er till. um 150 þús. kr. fjárveitingu til eftirlits með rækjuveiði. Svo sem kunnugt er, hafa veiðar þessar nú að undanförnu vakið almenna athygli, vegna þess að í ljós hefur komið, að um verulega rányrkju annarra fiskistofna getur verið að ræða og því brýn nauðsyn, að strangt eftirlit sé haft með veiðunum. 150 þús. kr. eru að sjálfsögðu ekki stór fjárupphæð til þess að verja í þessu skyni. En þess verður þá að vænta, að stofnunin sjái sér fært að verja einhverju til viðbótar af því fjármagni sem hún hefur með höndum, ef þess gerist þörf. Hér er hins vegar orðið við þeirri beiðni um fjármagn, sem fram á var farið.
Til þjóðkirkjunnar er lagt til, að liðurinn kirkjubyggingasjóður hækki um 1 millj. kr. og verði þá alls 3 millj. kr. til kirkjubyggingasjóðs. Til vatnsveitna samkv. l. er lagt til, að fjárveiting hækki um 2½ millj. Þar af er til þess ætlazt, að til Vatnsveitu Vestmannaeyja gangi 2 millj. kr. til viðbótar því, sem áður var ákveðið, en að öðru leyti hækkar þá liðurinn um 500 þús. kr. Þessu næst er till. um 180 þús. kr. fjárveitingu undir liðnum aðrar vatnsveitur. Hér er um smáupphæðir að ræða til nokkurra býla, sem ekki falla undir hin almennu vatnsveitulög, en sem eiga við sérstaka erfiðleika að stríða varðandi vatnsöflun.
Orlofsheimili verkalýðssamtakanna, þar er lagt til, að fjárveiting hækki um 1 millj. kr. og verði þá liðurinn samtals 2 millj. 800 þús. kr. Til Styrktarfélags vangefinna er till. um 75 þús. kr. hækkun fjárveitingar. Rekstrarstyrkur til sjómannaheimila er lagt til, að hækki um 100 þús. kr. og að inn verði tekinn nýr liður, orlofsheimili húsmæðra í Gullbringu- og Kjósarsýslu og Keflavík, að upphæð 200 þús. kr.
Vegna fyrirhugaðra blóðrannsókna ungbarna er till. um 300 þús. kr. fjárveitingu. Með þeirri upphæð er ætlað að hefja víðtækar rannsóknir allra nýfæddra barna á landinu til þess að komast að því, hvort um sé að ræða vissan hvataskort í blóðinu, sem gæti haft í för með sér andlegan og líkamlegan vanþroska barnanna. Erindi um þetta mál, sem ritað er af prófessor Kristbirni Tryggvasyni, barst n. fyrir fáum dögum. Telur n., að hér sé um mikilsvert mál að ræða og hefur því leyft sér að leggja til, að umrædd fjárveiting verði veitt, enda verði þær rannsóknir, sem hér um ræðir, skipulagðar í samráði við heilbrmrn.
Þá koma næst till. n. um auknar fjárveitingar til byggingar sjúkrahúsa og læknamiðstöðva, en samtals nemur hækkunin 8 millj. 700 þús. kr., en um skiptingu varðandi einstakar framkvæmdir vísast að öðru leyti til þess, sem fram kemur á þskj. 268.
Til viðbótar því leggur n. til að byggingarstyrkur til St. Jósefsspítala i Landakoti hækki um 2 millj. kr. Þá leggur n. til, að til að bæta héraðslæknisþjónustu hækki fjárveiting um 250 þús. kr., til lækningatækja um 75 þús. kr. og liðurinn vegna héraðshjúkrunarkvenna er lagt til, að hækki um 200 þús. kr. Liðurinn elliheimili, þ. e. rekstrarstyrkur til elliheimilanna er lagt til, að hækki um 240 þús. kr. og verður þá heildarfjárveiting 1 millj. 440 þús. kr. Mun það svara til þess, að í hlut hvers elliheimilis, sem rekstrarstyrks nýtur komi um 100 þús. kr. Þá leggur n. til, að framlag til gæzluvistarsjóðs hækki um 2 millj. kr. og verði þá 12 millj. kr. Hér er hins vegar um 3 millj. 700 þús. kr. hækkun að ræða frá því, sem er í fjárl. yfirstandandi árs.
Næst er till. n. um styrktarfé og eftirlaun embættismanna og styrktarfé og ýmis eftirlaun ekkna og vísast í því sambandi til þess, er fram kemur á sérstöku yfirliti á þskj. 268.
Þá leggur n. til, að inn verði tekinn nýr liður til styrktar dagblöðum að upphæð 1.2 millj. kr. Til orlofsheimilis Bandalags starfsmanna ríkis og bæja er till. um 2 millj. kr. hækkun fjárveitingar, sem verður þá samtals 4.5 millj. kr. Varðandi liðinn 999 03 er lagt til, að liðurinn orðist svo: „Til kaupa á 300 eintökum af hverju dagblaði og aðalmálgagni Samtaka frjálslyndra og vinstri manna.“ En till. n. er, að þessi fjárlagaliður hækki um 350 þús. kr. og verði þá samtals 3½ millj. kr.
Þá er næst brtt. varðandi vegagerð. Þar hækkar gjaldfærður stofnkostnaður um 5 millj., en það er, eins og ég hef áður skýrt frá, vegna hækkunar á tekjum í sambandi við söluskatt af bensíni.
Til viðhalds vita er till. um hækkun, sem nemur 400 þús. kr. og liðurinn hafnarmannvirki og lendingarbætur er lagt til, að hækki um 2 millj. kr., en það er fjárveiting vegna fyrirhugaðra dráttarbrautarframkvæmda í Hafnarfirði. Þá er lagt til, að liðurinn sjóvarnargarðar hækki um 100 þús. kr., en það er vegna framkvæmda í Borgarfirði eystra og Grenivík, 50 þús. kr. á hvorum stað.
Að lokum koma brtt. n. við 6. gr. frv. Það er fyrst við III, að í stað „Blindravinafélags Íslands“ komi: Blindrafélagsins í Reykjavík, en hér er aðeins um leiðréttingu að ræða. Við VII: Í stað „25 aura“ komi: 40 aura, en það eru tekjur þær, sem Krabbameinsfélag Íslands fær af hverjum seldum vindlingapakka. Þá er lagt til, að inn komi eftirtaldir nýir liðir á 6. gr. frv.:
a. Að greiða á matsverði öll hlutabréf í Áburðarverksmiðjunni hf., enda semjist við þá aðila, sem þegar hafa gert samning um sölu bréfa sinna, að andvirðið greiðist á 5 árum.
b. Að endurgreiða aðflutningsgjöld af snjóbifreið, sem Hellulæknishérað hyggst kaupa.
c. Að ábyrgjast allt að 10 millj. kr. lán fyrir Orkusjóð til jarðborana á Krýsuvíkur- og Trölladyngjusvæðinu.
d. Að ábyrgjast allt að 15 millj. kr. lán fyrir félagið Heilsuræktin, Reykjavík, enda gefi félagið yfirlýsingu um það, að ef félagið verður lagt niður, þá skuli eignum félagsins ráðstafað af heilbrigðisstjórn ríkisins til félags eða stofnunar, samkv. 17. gr. núgildandi laga félagsins. Hér er um starfsemi að ræða, sem n. skipaði í sérstaka undirnefnd til þess að kanna þetta mál. Félagsskapur þessi hefur með höndum víðtæka starfsemi á sviði heilsuræktarmála. Þarna starfa nú um 16 læknar, sem vinna störf sín öll í sjálfboðavinnu, og þeir, sem verða aðnjótandi þess, sem þarna fer fram til heilsuræktar og heilsubótar, fá sína fyrirgreiðslu með mjög vægu verði. En eins og kemur fram í till. n., þá er sá fyrirvari, sem hér er um, að fari svo, að þessi félagsstofnun hætti störfum, renna allar eignir félagsskaparins til ríkisins, og er það í samræmi við núgildandi lög þessa félagsskapar. Það er beinlínis gert ráð fyrir því, ef til þessa kæmi, og var að sjálfsögðu grundvöllur fyrir því, að hægt væri að verða við þessari umsókn þeirra um þessa ríkisábyrgð.
Þá kemur næst e-liðurinn. Það er að endurgreiða Rafveitu Snæfjallahrepps aðflutningsgjöld og söluskatt af vélum og tækjum til væntanlegrar virkjunar í Blævardalsá í Nauteyrarhreppi.
f. Að selja Rafveitu Vestmannaeyja neðansjávarstrenginn milli lands og Eyja og einnig raflínuna úr Landeyjasandi að Hvolsvelli, ásamt tilheyrandi útbúnaði (spennistöðvum). Enn fremur að selja Andakílsárvirkjun raflínustrenginn, sem liggur frá aðveitustöðinni við Elliðaár til Akraness yfir Hvalfjörð. Söluverð mannvirkjanna verði kostnaðarverð að frádregnum eðlilegum afskriftum.
g. Að selja sendiherrabústaðinn í Kaupmannahöfn og kaupa annað nýrra og hentugra húsnæði, að fengnu samþykki fjvn. Alþ.
h. Að endurgreiða Norræna húsinu í Reykjavík aðflutningsgjöld af einni bifreið, sem nota skal vegna rekstrar hússins.
i. Að endurgreiða aðflutningsgjöld og söluskatt af vélum og efni til stækkunar Andakílsárvirkjunar.
j. Að selja fasteignina Hof á Eyrarbakka.
k. Að selja áhaldageymslu og íveruskála Vegagerðar ríkisins við Upphéraðsveg ásamt tilheyrandi lóðarréttindum.
l. Að gerast fyrir hönd ríkissjóðs hluthafi í hlutafélagi um kaup og rekstur flóabáts, sem þjóni núverandi farsvæði Norðurlandsbáts, og skal hlutur ríkissjóðs vera allt að 50%, enda náist samkomulag um aðild sveitarfélaga eða annarra aðila um viðunandi rekstrargrundvöll.
m. Að taka lán í Seðlabanka Íslands, allt að 10 millj. kr., til þess að greiða aukið framlag til Hinnar alþjóðlegu framfarastofnunar.
n. Að taka lán, að fjárhæð allt að 260 millj. kr. eða jafnvirði hennar í erlendum gjaldeyri, og endurlána fé þetta Vegasjóði, 200 millj. kr. til lagningar hraðbrauta og 60 millj. kr. til vegaframkvæmda samkv. samgönguáætlun fyrir Austurland. Varðandi tvo þessa síðustu liði, um lántökuna í Seðlabankanum og lán vegna vegaframkvæmdanna, mun hæstv. fjmrh. gera nánari grein fyrir þeim till. hér á eftir.
Herra forseti. Ég hef þá lokið við að gera grein fyrir þeim till., sem fjvn. hefur leyft sér að flytja við þessa umr. um fjárlagafrv. Ég vænti, að hv. alþm. veiti till. n. stuðning og samþykki þær, en af því mun leiða, að á greiðsluyfirliti ríkissjóðs munu verða eftirfarandi breytingar.
Gjöld verða 11 milljarðar 18 millj. og 84 þús. kr. Tekjurnar verða 11 milljarðar 534 millj. og 706 þús. kr. Tekjur umfram gjöld verða þá 516 millj. 622 þús. kr. Lánahreyfingar út eru óbreyttar með mismun, sem nemur 241 millj. 75 þús. kr. Greiðslujöfnuður verður þá þannig, að á rekstrarreikningi verða tekjur umfram gjöld 516 millj. 622 þús. og á lánahreyfingum út mismunur upp á 241 millj. 75 þús. kr. og greiðsluafgangur þá 275 millj. 547 þús. kr.