17.12.1970
Sameinað þing: 18. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 547 í B-deild Alþingistíðinda. (361)
1. mál, fjárlög 1971
Frsm. minni hl. (Halldór E. Sigurðsson):
Herra forseti. Við 2. umr. fjárlagafrv. gerði ég grein fyrir afstöðu minni hl. n. svo og fyrir afstöðu Framsfl. sérstaklega til fjárlagafrv. og stefnu ríkisstj. við fjárlagagerðina og í efnahagsmálum. Ég mun því ekki við þessa umr. fara að endurtaka neitt af því. Um afstöðu okkar minni hl.-manna til þeirra till., sem n. flytur nú sameiginlega, höfum við þann sama fyrirvara, sem við höfðum við afgreiðsluna við 2. umr. fjárlagafrv. Ég tel, að þessar till., sem koma frá n. núna, séu flestar til bóta frá því, sem áður var, og ýmsir málaflokkar hafa nú fengið þar meiri áheyrn heldur en var við 2. umr. fjárlagafrv. T. d. vil ég geta þess, að á heilbrigðismálunum var verklega tekið nú á milli umr., og svo hafa skólamálin einnig komið hér til afgreiðslu hvað nýbyggingar snertir og þær framkvæmdir, sem er hægt að halda áfram að undirbúa. Um einstakar till. ætla ég ekki að fara að ræða sérstaklega, enda ekki ástæða til þess. Hins vegar vil ég geta þess í sambandi við heimildargr., g-liðinn, að ég er enginn áhugamaður fyrir því að selja sendiherrabústaðinn í Kaupmannahöfn, og þegar það mál var til meðferðar hjá undirnefnd fjvn. í sumar og gert ráð fyrir kaupum á húsi, sem þá var ákveðið tilboð um, þá var það stoppað af undirnefndinni, að til þeirra framkvæmda yrði farið. Hins vegar er hér heimild til að gera þetta og sú heimild er þó bundin því, að fjvn. Alþ., þeir, sem í henni verða, þegar þetta mál kann þá að koma til meðferðar, samþykki þessa ráðabreytni og með því fororði var heimildin gefin.
Við þessa umr. munum við í minni hl. flytja sameiginlega aðeins eina till., þar sem við endurflytjum ekki till. í heilbrigðismálunum vegna þeirra breytinga, sem urðu á milli umr. Það verður því að segja, að þessi eina till. okkar sýnir mikla hófsemi og raunar má segja of mikla hófsemi við svo fyrirferðarmikil fjárlög, sem hér er verið að afgreiða. En þessi eina till. er flutt á þskj. 279 og hún gerir ráð fyrir því að hækka styrk þann, sem nemendur úr strjálbýli eiga að fá til framhaldsnáms, úr 12 millj. í 25 millj. kr. Á yfirstandandi ári var þetta 10 millj. og það er kunnara en frá þurfi að segja, að það gekk mjög erfiðlega að skipta þessu og nemendur í heimavistarskólum voru alveg hafðir hér útundan. Þetta mál var til meðferðar eða til umr. á sveitarstjórnaþingi því, sem haldið var í september s. l. Ég var á því þingi og ég minnist þess, að hæstv. menntmrh. hafði orð á þessu eða ræddi þennan þátt, sem var verulega ræddur á þinginu, og gat þess, að þetta hefði verið hækkað um 20%, en mundi ábyggilega verða hækkað í meðferð þingsins meira heldur en fram væri komið, og það var ekki annað að heyra á hæstv. ráðh. en hann væri fylgismaður þess, að það yrði gert. Þegar fram fór fsp. út af framkvæmd þessa máls á árinu 1970, vék ég að því, hvernig með þá nemendur væri farið, sem stunduðu nám í heimavistarskóla, og hæstv. menntmrh. tók undir það, að hann skyldi láta athuga það betur, ef afgangur yrði af fjárveitingunni í ár, nota það til þess að bæta þeirra aðstöðu og ég gat ekki skilið annað en taka ætti það mál til meðferðar síðar. Með þessari fjárveitingu, sem hér er lagt til, að hafa þetta aðeins 12 millj., verður enn þá verra að standa að þessu máli heldur en nú er. Nemendunum hefur fjölgað og verðlagið í landinu hefur hækkað fyrir þetta fólk ekkert síður en aðra þegna þjóðfélagsins. Ég verð því að treysta því í lengstu lög, að þessu máli verði sinnt hér á hv. Alþ. Ég harma það, að það skyldi ekki nást samstaða um þetta mál í hv. fjvn. og veit, að það hefur verið fyrir áhrif frá stjórnvöldum, að svo var ekki. En ég geri og við í minni hl. gerum enn á ný tilraun til þess að fá hlustað á þetta mál, því að hér er sannarlega um réttlætismál að ræða og fyrst það var farið að sinna þessu máli, eins og gert var á þinginu í fyrra, þá er furðulegt, að það skuli ekki vera betur að því staðið en nú er gert. Ég treysti því enn á ný á það, að hv. alþm. láti sig þetta mál skipta og hækki þessa fjárhæð frá því, sem fjárlagafrv. gerir ráð fyrir. Og mig undrar það sannarlega, ef hæstv. menntmrh. virðir ekki meira sínar eigin yfirlýsingar en svo, að þrátt fyrir það, sem hann sagði á sveitarstjórnaþinginu í sumar í áheyrn sveitarstjórnarmanna af öllu landinu, skuli hann ekkert sinna þessu máli. Ég treysti því, að hann geri það, hæstv. ráðh., við afgreiðslu þessarar 3. umr.
Eins og fram kom í ræðu hv. 2. þm. Vesturl., formanns fjvn., er frv. nú til afgreiðslu án þess að vitað sé enn þá, hvað mikla fjárhæð þarf til þess að mæta hækkun á launum opinberra starfsmanna. Þetta er mjög svo mikill ljóður á afgreiðslu fjárlagafrv., að svo veigamikill þáttur í starfsemi ríkisins sem þessi skuli nú liggja utan dyra. Fjárlagafrv. er nú með 235 millj. kr. greiðsluafgangi. Ekki er séð eða vitað, hve mikið þarf af þessu að ganga til þess að greiða þessi laun, og þess vegna er í raun og veru rennt blint í sjóinn með það, hver hinn raunverulegi afgangur fjárlagafrv. er. Hér er um mjög alvarlegan hlut að ræða að afgreiða fjárlagafrv. án þess að svo veigamikill þáttur sem þessi liggi ljós fyrir.
Ég skal ekki orðlengja þetta frekar. En ég vil endurtaka það, sem ég sagði hér áðan, þar sem ég sé, að hæstv. menntmrh. er nú kominn hér í d., að ég treysti því, að hann sé minnugur þess, sem hann sagði á sveitarstjórnaþinginu í sumar, að það mundi í meðförum Alþ. verða hækkuð fjárveiting til að jafna aðstöðu nemenda úr strjálbýli vegna framhaldsnáms. Og ég tel það alveg óviðunandi, að það skuli enn á ný vera stefnt að því að láta nemendur í heimavistarskólum verða alveg utan þess að njóta þessarar aðstoðar. Og ég treysti því hv. Alþ. til þess að samþykkja þessa einu, mjög svo hófsömu till. okkar í jafnmiklu ágætismáli sem þetta er.