19.03.1971
Sameinað þing: 35. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 132 í D-deild Alþingistíðinda. (3631)
251. mál, vegáætlun fyrir árin 1971 og 1972
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Með hækkun á benzíngjaldi og þungaskatti, sem samþ. var á Alþ. fyrir lok síðasta árs, voru tekjur Vegasjóðs áætlaðar hækka um 255.3 millj. kr. Samkv. því er gert ráð fyrir, að tekjur af benzíngjaldi á árinu 1971 nemi 613.1 millj. kr., á þungaskatti 197.7 millj. kr. og af gúmgjaldi 44 millj. kr. Ríkisframlag er 47 millj. kr. Brúttótekjur verða því 901.8 millj. kr. Gert er ráð fyrir endurgreiðslu á benzíngjaldi, 14 millj., og þungaskatti, 4 millj. kr. Nettótekjur á árinu 1971 eru því áætlaðar 883.8 millj. kr., en á árinu 1972 943.1 millj. kr. Auk þess verða tekin framkvæmdalán til vegagerðar á þessu ári að upphæð 328.8 millj. kr. Á árinu 1972 er einnig gert ráð fyrir að taka framkvæmdalán til hraðbrauta og fleiri framkvæmda. Meiri hlutinn af þeim lánum, sem tekin verða til vegaframkvæmda, er vegna hraðbrautagerðar og einnig vegna Austfjarðaáætlunar og til vegaframkvæmda á Norðurlandi. Hraðbrautaframkvæmdir þær, sem nú standa yfir, munu kosta rúmlega 800 millj. kr. Eru þær fjármagnaðar með framlögum frá Vegasjóði og lánum, mest frá Alþjóðabankanum. Árið 1971 og 1972 verða þessar framkvæmdir því fjármagnaðar að hálfu úr Vegasjóði og að hálfu með láni úr Alþjóðabankanum.
Á árinu 1971 mun ríkissjóður greiða auk afborgana 59.4 millj. í vexti af vegalánum, en Vegasjóður 13.1 millj. Til nýbygginga þjóðbrauta verður varið á árinu 66.1 millj. kr., til landsbrauta 79.6 millj. kr. Þá verður nokkru fé varið til girðinga og uppgræðslu, byggingargjalda, orlofs og til rannsókna á Skeiðarársandi. Til viðhalds þjóðvega er gert ráð fyrir að verja á þessu ári 250 millj. kr. Þá er einnig til vegmerkinga 1.8 millj. kr. Til fjallvega, aðalfjallvega og annarra fjallvega, reiðvega og tryggingargjalda er varið 3.3 millj. kr. Til brúa 10 metra og lengri er gert ráð fyrir að verja 49 millj. kr., til smábrúa 8.2 millj., til tryggingargjalda, orlofs o.fl., sem leggst við þennan kostnað, 2.1 millj. kr. Til sýsluvegasjóða og vega í kaupstöðum og kauptúnum verður varið 85.5 millj. kr., til véla- og áhaldakaupa 15 millj., til byggingar áhaldahúsa 4 millj., til tilrauna í vegagerð 4.5 millj., til greiðsluhalla á vegáætlun ársins 1969 25.2 millj. kr. Hallinn frá árinu 1970 reyndist vera 73.8 millj. kr., sem stafar af því, sem áður hefur verið greint frá, þegar rætt var um framkvæmdaskýrslu ársins 1970. Gert er ráð fyrir, að hallinn 1971 verði 29.8 millj. kr., og er þá greiddur rúmlega helmingurinn af halla ársins 1970. En þegar gerð verður áætlun á næsta hausti fyrir árin 1972–1975, verður vitanlega tekið til athugunar, hvernig megi brúa þetta bil. Eins og fram er tekið, er till. til vegáætlunar fyrir árið 1972 aðeins bráðabirgðaáætlun, og þykir því ekki eðlilegt á þessu stigi málsins að ræða áætlun fyrir það ár frekar að sinni.
Í áætluninni er framlag ríkissjóðs 47 millj. kr. Sú upphæð verður til endurskoðunar á næsta sumri og hausti, þegar fjárlög fyrir árið 1972 verða samin. Liggur ljóst fyrir, að þegar rætt verður um framkvæmdaáætlun ársins 1972, er ekki nema um tvennt að ræða, að ýta hallanum á undan sér og hækka ekki þær fjárveitingar, sem fyrir liggja í bráðabirgðaáætluninni, eða fá auknar tekjur úr ríkissjóði. Ég hygg, að fæstir leggi það til að auka tekjur Vegasjóðs á næsta hausti með því að hækka benzíngjald og þungaskatt. Það væri ekki skynsamlegt. En þetta atriði verður til athugunar og umr., þegar fjárlög verða samin fyrir árið 1972, hvort þá þykir fært að auka tekjur Vegasjóðs með hækkuðu ríkisframlagi, eins og æskilegt væri að gera.
Þótt tekjur Vegasjóðs hafi aukizt mikið og unnið sé nú fyrir margfaldar þær upphæðir, sem miðað var við fyrir fáum árum, þá er þörfin fyrir vegabætur það mikil, að allir geta verið sammála um, að enn sé nauðsynlegt að auka tekjur Vegasjóðs. Eins og áður er sagt, greiðir ríkissjóður vexti og afborganir af meginhluta þeirra lána, sem á Vegasjóði hvíla, auk framlags, sem áður getur, 47 millj. kr.
Lagt er til að breyta nokkuð flokkun vega: á Vestfjörðum Súgandafjarðarvegi, í Norðurlandskjördæmi eystra Svarfaðardalsvegi, Laxárdalsvegi og einnig Fagranesvegi, í Suðurlandskjördæmi Þjórsárdalsvegi; í stað þess, að vegurinn nái að Ásólfsstöðum, komi: að vegamótum að Stöng austan Fossár. Þá er og breyting á aðalfjallvegum, þ.e. Sprengisandsleið; í stað „hjá Haldi, Búðaháls“ komi: hjá Sigöldu, vestan Þórisvatns um brú á Köldukvísl, en eins og kunnugt er, hefur nú verið lagður vegur alla leið þarna inn eftir, og er kominn góður áfangi á leiðinni norður í land. Enn fremur bætist við 2. mgr.: Alma norðan Fjórðungsvatns um Laugarfell yfir brú á Jökulsá eystri á Austari-Bug og Vesturdalsveg hjá Litlu-Hlíð.
Launaliður hefur hækkað af eðlilegum ástæðum í samræmi við hækkað kaupgjald. Auk þess hafa eftirlaunagreiðslur hækkað nokkuð og skrifstofukostnaður, sem stafar mest af verðbreytingum. Gert er ráð fyrir hækkun viðhaldsfjár úr 206.9 millj. kr. í 250 millj. kr. Er það nokkru meira en nemur verðhækkunum, ekki sízt með tilliti til aukinnar hagræðingar í vegagerð og breyttum vinnubrögðum. Í láni því til kaupa á vegagerðarvélum, sem tekið var hjá Alþjóðabankanum jafnhliða láni til hraðbrautaframkvæmda og nemur 45 millj. kr., er einn stærsti liðurinn ætlaður til kaupa á nýrri mulningsvélasamstæðu til vinnslu á slitlagi á malarvegi. Mulningsvélar þessar kosta um 15 millj. kr., og er gert ráð fyrir, að vél þessi verði staðsett á Norðurlandi til vinnslu malar í slitlag frá Holtavörðuheiði til Norður-Þingeyjarsýslu. Sams konar mulningsvélasamstæða hefur verið rekin á Suður- og Vesturlandi frá árinu 1966 með mjög góðum árangri. Það hefur sýnt sig, þegar borið hefur verið ofan í malarvegi mulið grjót úr þessari vélasamstæðu, að ofaníburðurinn hefur reynzt miklu betur en þegar borið hefur verið ofan í veginn venjuleg möl eða sandur, eins og oft hefur þurft að grípa til. Með því að fá þessa vélasamstæðu nýtist vegaféð mun betur en áður. Gert er ráð fyrir, að reksturskostnaður þessarar vélar sé yfir árið 8.5 millj. kr.
Hækkun framkvæmdafjár til þjóðbrauta og landsbrauta miðast við það að geta haldið vegáætluninni þrátt fyrir þær hækkanir, sem orðið hafa á framkvæmdakostnaði vegna verðhækkana. Talið er, að hækkun á framkvæmdakostnaði nemi um 17.5% frá því, að áætlunin var upphaflega gerð. Sama máli gegnir með brúaféð, að hækkun til brúagerða miðast við það að geta gert allar þær brýr, sem upphaflega voru á áætluninni. Á árinu 1971 verða tekjur sýsluvegasjóðanna samkv. 21. gr. innheimtar miðað við kaupgjald í almennri verkamannavinnu hjá Vegagerð ríkisins 1. des. 1970, og hækkar framlag til sýsluvegasjóða í samræmi við það.
Vegasjóður hefur aldrei haft eins mikið fé til framkvæmda um allt land og á þessu ári. Mun mest bera á hraðbrautaframkvæmdum á Suðurlandsvegi og á Vesturlandsvegi. Þessum framkvæmdum á að ljúka á næsta ári. Þá verður einnig byrjað á að vinna að Austurlandsáætlun og nýjum vegaframkvæmdum á Norðurlandi, einkum út frá Akureyri. Með þeim tekjum, sem Vegasjóði hafa verið tryggðar, verður hægt að halda áfram hraðbrautaframkvæmdum, eftir að því er lokið, sem nú er unnið að. Enginn vafi er á því, að með þessu framkvæmdafé er stigið stórt spor til þess að gera varanlega vegi í landinu og til þess að bæta vegakerfið í heild, þótt enn sé ekki fært að setja varanlegt slitlag nema á þá vegi, þar sem umferðin er mest. Samkv. þessari áætlun eru 39.2 millj. kr. til nýrra framkvæmda, sem verður skipt upp á landsbrautir og þjóðbrautir. Mun fjvn. gera till. um skiptingu þessa fjár í einstök kjördæmi og þm. hvers kjördæmis síðan skipta fénu á ýmsa vegi í kjördæminu, þar sem þörfin er mest.
Vonir standa til, að tekjuáætlun Vegasjóðs standist. Ekki er þó unnt að áætla tekjur af þungaskatti með fullri nákvæmni, vegna þess að enn er of skammt síðan nýja kerfið var upp tekið með gjaldmæla í dísilbifreiðum. Þó er talið fært að gefa ríflegan afslátt til þeirra, sem mest aka, og í gær var gefin út reglugerð, sem gerir þetta mögulegt. Með þessari reglugerð og þessum afslætti, sem ákveðinn er, er gengið eins langt og fært þykir, og talið er, að tekjur Vegasjóðs standist þrátt fyrir það, eins og reiknað er með í till. til vegáætlunar, sem hér er til umr. Í hinni nýju reglugerð er aukinn afsláttur til sérleyfisbifreiða og strætisvagna, þ.e. að sá þungi, sem áður var frá dreginn og miðaðist við 25%, er hækkaður upp í 30%. Þetta léttir nokkuð gjöldum af þessum bifreiðum. En sérleyfishafar hafa óskað eftir því, að til móts við þá væri gengið. Og með þessari reglugerð er gert ráð fyrir því, að þegar greiddur hefur verið þungaskattur af bifreið samkv. 1. gr. reglugerðarinnar, sem miðast við 1. gr. vegalaga, og ekið hefur verið yfir 30 þús. km á einu ári, skuli endurgreiða 15% af kílómetragjaldi, sem fellur umfram 30 þús. km og að 45 þús. km, en 25% af kílómetragjaldi umfram 45 þús. km. Endurgreiðsla þessi kemur til frádráttar ársfjórðungsgjaldi, er akstur hefur náð 30 þús. km. Með þessu er komið verulega til móts við þá, sem hafa mest kvartað undan hækkun á þungaskattinum, og er enginn vafi á því, að þessari reglugerð verður fagnað, og það hefur ekki verið búizt við því, að afslátturinn gæti numið svona hárri prósentu, 25%. Það er gott að geta komið þannig til móts við þá, sem mest aka, en halda þó þeim tekjum, sem reiknað er með í áætluninni.
Herra forseti. Ég vil svo leggja til, að till. verði að lokinni þessari umr. vísað til síðari umr. og fjvn.