17.12.1970
Sameinað þing: 18. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 557 í B-deild Alþingistíðinda. (365)

1. mál, fjárlög 1971

Einar Ágústsson:

Herra forseti. Það eru aðeins nokkur orð út af þeirri till., sem ég flyt ásamt hv. 4. þm. Sunnl. til hækkunar á framlagi til gæzluvistarsjóðs. Þegar ég mælti síðast fyrir þessari till. hér við 2. umr., þá lét ég þess getið, að við mundum taka till. til baka til 3. umr. í trausti þess, að fjárveitingarvaldið kæmi til móts við þessar sanngjörnu óskir, sem í till. felast. Það er skylt að geta þess, að þetta hefur að nokkru leyti rætzt, till. fjvn. nú er tveim millj. kr. hærri heldur en hún var hér við 2. umr. Þannig að till. verður samkvæmt þeirri till. 12 millj. kr. á næsta ári og hækkar þá um tæpar 4 millj. frá því, sem er á yfirstandandi ári. Þetta er vissulega spor í rétta átt, en engu að síður höfum við endurflutt till. um tvöföldun framlagsins og það er gert vegna þess, að við erum sannfærðir um það, að fyrir 12 millj. kr. fjárveitingu verður ekki hægt að hefjast handa um þær nauðsynlegu byggingarframkvæmdir, sem gæzluvistarsjóði eru samkvæmt lögum faldar. Þegar haft er í huga, að rekstrarkostnaður við drykkjumannahælið í Gunnarsholti verður á næsta ári samkvæmt áætlun fjárlaga 9½ millj. kr., þá er það sjáanlegt, að afgangur fjárveitingarinnar hrekkur ekki til fyrstu framkvæmda við fyrirhugað drykkjumannahæli. Og það er vitað, að það eina, sem vantar til þess að hefjast handa, er fjármagn, því staðsetningin hefur verið ákveðin, teikningar liggja fyrir og það er hægt að byrja, ef fjármagnið leyfir. Þessi mál eru, samkvæmt lögunum um gæzluvistarsjóð, ákveðin verkefni ríkissjóðs og þar með tekin frá sveitarfélögunum. Engu að síður er það staðreynd, að meginverkefni félagsmálaráðs Reykjavíkur til að mynda er starf vegna drykkjusjúkdóms í einni eða annarri mynd. Þrátt fyrir það, að ríkissjóður hefur tekið á sig þá skuldbindingu að reisa lokuð drykkjumannahæli hefur Reykjavíkurborg ekki séð sér annað fært heldur en að reka bráðabirgðastofu í gamla Farsóttahúsinu, þar sem 10–15 manns geta á hverri nóttu fengið aðhlynningu. Þetta gerir félagsmálaráð að því óhætt er að segja með hálfum huga, svo ekki sé meira sagt, og þar hafa heyrzt raddir ábyrgra aðila um það, að kannske sé þetta verra heldur en ekki neitt, og þegar síðast var ákveðin fjárveiting í þessu skyni tók félagsmálaráð sér frest til þess að herða upp hugann um það að halda þessari starfsemi áfram, og ég hygg, að það sem úrslitum réði hafi verið það, að félagsmálaráðsmenn vildu ekki lesa það í blöðum einhvern morguninn, að einn drykkjusjúklingurinn enn hefði króknað á vegum úti.

Ég skal ekki bæta miklu við þau orð, sem ég sagði hér við 2. umr. Ég vil þó aðeins leyfa mér að minna á þær blaðafregnir, sem alveg síðustu daga hafa borizt af því, að hér sé starfrækt eitt heimili enn eða afdrep ef svo mætti kalla. En í einu dagblaða borgarinnar var frásögn af því í fyrradag. Í Þjóðviljanum í gær var svo birt viðtal við einn af félagsmálaráðsmönnum, Sigurjón Björnsson sálfræðing, og ég ætla að leyfa mér að bæta orðum hans við það innlegg, sem ég hef áður gert í þessu máli, en hann segir í áðurnefndu viðtali, með leyfi hæstv. forseta:

„Hann sagði,“ — þetta eru orð blaðsins — „að úrbætur í málefnum drykkjusjúkra væri í verkahring ríkisvaldsins að gera, en eftir öllum sólarmerkjum að dæmi væri þeirra ekki að vænta í bráð. Sagði hann, að allstór hópur drykkjusjúklinga þyrfti nauðsynlega á að halda vistun á lokuðu hæli og margir þeirra væru svo illa farnir og líkamlega sjúkir, að ógerningur væri að hafa þá á opnum heimilum eins og þeim, sem borgin og Vernd reka, en í önnur hús ættu þeir ekki að venda að svo stöddu. Kvað hann ástandið í þessum málum vægast sagt hörmulegt og skjótra úrbóta þörf, en því miður virtist viðkomandi rn., þ. e. félmrn., hafa lítinn skilning á þessum vandamálum.“

Ég vil nú vænta þess, að hæstv. ríkisstj. og stuðningsmenn hennar hnekki þessum orðum og láti það sannast, að þeir hafi mikinn áhuga á þessum málum, þann áhuga, að þeir treysti sér til að tvöfalda framlagið til gæzluvistarsjóðs nú þegar á þessu þingi og gera sjóðnum þannig fært að byrja á því að standa við skuldbindingar sínar. Það er tæpast verjandi fyrir ríkissjóð, sem ætlar sér að hafa í tekjur á 12. þús. millj. kr. af sölu áfengra drykkja á næsta ári, að treysta sér ekki til þess að láta um 16 millj. kr. af þessum hagnaði renna til þess að bæta úr einhverju af því böli, sem þessi starfsemi orsakar.