06.04.1971
Sameinað þing: 42. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 163 í D-deild Alþingistíðinda. (3655)

295. mál, réttindi Íslendinga á hafinu umhverfis landið

Forsrh. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Ég skal reyna að takmarka mál mitt, eins og aðrir hv. þm. hafa gert nú, og fyrst og fremst forðast að efna til frekari deilna, en það eru nokkur atriði, sem fram hafa komið í ræðum hv. ræðumanna, 1. og 4. þm. Austf., sem gefa mér tilefni til að taka nokkur atriði fram.

Ég vil fyrst víkja að þeim upplýsingum, sem hv. 1. þm. Austf. gaf hér, um það, a6 stjórnarandstæðingar hefðu flutt till. um það í utanrmn. að efna til þjóðaratkvgr. um þessar till. og afgreiða þær ekki á þinginu. Mér barst til eyrna á laugardaginn var, að uppi væru ráðagerðir um slíkan tillöguflutning, og óskaði ég því eftir því við formann n. að mega koma á fund utanrmn. Þegar hv. 1. þm. Austf. hafði gert grein fyrir og borið fram í n. þessa ráðagerð um þjóðaratkvgr., þá fór ég þess á leit, mæltist beinlínis til þess við stjórnarandstæðinga, að þeir flyttu ekki þessar till. á Alþ. Það væri ekki sá efnismunur á milli okkar í þessu máli, að það gæfi tilefni til þjóðaratkvgr., þar sem við fyrst og fremst deildum um aðferðir, en ekki efni málsins. Í öðru lagi teldi ég varhugavert að sýna þann svip á okkur út á við, að við Íslendingar værum í raun og veru tvíklofnir í þessu máli og það væri ekki sú rétta mynd, sem aðrar þjóðir kynnu að fá af okkar raunverulegu afstöðu. Ég fagna því, að þessar till. hafa ekki komið fram í þinginu, en hv. 1. þm. Austf. gat þess á fundinum, að þeir mundu ekki heldur vera ráðnir í því, en um þær var aðeins gengið til atkv. í utanrmn., þar sem meiri hl. var á móti þeim, eins og hann gerði grein fyrir.

Hv. 1. þm. Austf. sagði, að það kæmi ekki fram í okkar till., hvort ætlunin væri að færa út landhelgina eða hallast að kvótaveiðum. Þetta gefur mér tilefni til þess að taka af allan vafa um þetta, og ég get ekki skilið, hvernig hann getur verið kominn inn. Í fyrsta lagi felst alveg tvímælalaust ætlun okkar um útfærslu í till., og við viljum undir öllum kringumstæðum forðast kvótafyrirkomulagið, sem hann vitnaði til, á landgrunnssvæðinu. Bæði felst þetta í 1. mgr. till. og einnig síðar í till., þegar áréttuð er sú stefna, sem mótuð var af íslenzku ríkisstj. um einhliða rétt okkar með tilkynningu til alþjóðalaganefndarinnar 5. maí 1952. En þar segir, að ríkisstj. Íslands sé rétt og skylt að gera allar nauðsynlegar ráðstafanir á einhliða grundvelli til þess að vernda auðlindir landgrunnsins, sem landið hvílir á. Um þetta hefur heldur enginn ágreiningur verið milli fulltrúa þingflokkanna í landhelgisnefndinni, og skal ég ekki hafa fleiri orð um það, en ég vildi aðeins koma með þessum orðum í veg fyrir það, að um þetta gæti ríkt nokkur misskilningur.

Hv. 1. þm. Austf. vitnaði til þess, sem einnig kom fram í útvarpsumr. um landhelgismálið, að áætlanir væru um stóraukna sjósókn á Íslandsmið. Ég vil af þessu tilefni lýsa yfir, að ef þær ráðagerðir verða framkvæmdar af hálfu Breta og reyndar væntanlega af hálfu annarra þjóða, eins og hv. þm. Björn Jónsson gerði sérstaklega grein fyrir í útvarpsumr., og aukin sjósókn, stóraukin sjósókn verður á miðin, eins og hv. 1. þm. Austf. sagði nú, þá tel ég kominn tíma til þess að færa út án tafar. Ef þessi áætlun, sem gert var ráð fyrir, stenzt, þá átti það að vera komið í ljós hinn 1. des. á þessu ári, og jafnvel var þá ráðgert, að stórkostlegir verksmiðjutogarar kæmu hingað frá Japan, Frakklandi og öðrum þjóðum. Þá væri ekki eftir neinu að bíða. Þá þyrfti ekki að bíða eftir 1. sept. 1972. Þá verðum við samningsbundnir, ef við náum ekki samkomulagi um það við Breta og Vestur-Þjóðverja, að doka við í sex mánuði, en ekki lengur, en gagnvart öðrum þjóðum getum við fært út þegar í stað. Breyttar forsendur gæfu okkur fyllsta rétt til þess að lýsa yfir því, að við teldum okkur ekki lengur bundna af samkomulaginu frá 1961, því að það sjá allir, að ef slík stóraukin sjósókn verður á Íslandsmið, þá verður hér á örskömmum tíma eytt fiskinum á íslenzka landgrunninu. Ríkisstj. fól Landhelgisgæzlunni á s.l. sumri að gera hálfsmánaðarlega könnun eða talningu á fiskiskipum á landgrunnssvæðinu eftir þjóðernum og reyna eftir því sem hægt væri að gefa ríkisstj. upplýsingar um stærð þeirra, veiðigetu og veiðiaðferðir, einmitt með það fyrir augum að fylgjast með, hver þróunin yrði á næstunni í þessum efnum. Við höfum upplýsingar frá eldri tímum, en miklu ófullkomnari, um sjósókn annarra þjóða á landgrunnið eða fiskimiðin kringum Ísland utan landhelginnar, en frá því í ágústmánuði höfum við hálfsmánaðarlega talningu, vegna þess að við vildum vita vissu okkar í þeim efnum og fylgjast nákvæmlega með þróuninni.

Hv. 1. þm. Austf. talaði hér um, að það væri ákvæði í samkomulagi við Breta og Vestur-Þjóðverja frá 1961 um það, að við hefðum ekki einhliða útfærslurétt, og byggði hann það á því, að við værum skuldbundnir samkv. því að leggja mál okkar fyrir dóm. Sá, sem skuldbindur sig til þess að leggja mál sitt fyrir dóm, afsalar sér ekki rétti. Það er alveg ný kenning. Og hvernig er hægt að afsala sér rétti með því að skuldbinda sig til þess að láta mál sitt ganga til dóms? Það eru engin ákvæði í samningnum frá 1961 um það, að við höfum ekki einhliða útfærslurétt, heldur er beinlínis tekið fram og áréttað það, sem Alþ. lýsti yfir samhljóða 5. maí 1959 að við mundum halda áfram útfærslu landhelgi okkar, unz hún næði yfir allt landgrunnið. En Alþ. samþykkti þá, að aflað skyldi, eins og það var orðað, viðurkenningar annarra þjóða á rétti okkar. Og að því hafa íslenzk stjórnvöld unnið á undanförnum árum að framfylgja þessari stefnu Alþ. með það fyrir augum, að við gætum á hverjum tíma gert það, sem við ætluðum okkur að gera. Við töldum sjálfir, að við hefðum þá stoð til þess og réttarheimild, sem okkur mundi duga, hvort sem við værum bundnir af dómstóli eða ekki, því að ævinlega höfum við Íslendingar í öllum okkar aðgerðum í þessu máli byggt aðgerðir okkar á því, að við teldum, að við hefðum réttarheimildir til að byggja á, og þannig munum við að sjálfsögðu halda áfram að hegða okkur, og um þetta mun okkur ekki greina á, hvorki hér á Alþ. né annars staðar.

Út af ræðu hv. 4. þm. Austf. vil ég segja það, að mér fannst allt hans tal um ráðstefnuna, hafréttarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, væntanlega ráðstefnu 1973, óvarlegt í hæsta máta og reyndar óþarft. Óvarlegt er að gera því skóna, að það hafi enga þýðingu, þó að slík ráðstefna verði á okkar bandi og geri samþykktir, sem eru samhljóða því, sem við teljum okkur eiga rétt til. Það er einnig ástæðulaust.

Hv. þm. talaði um þá skoðun, að við þyrftum að semja við aðrar þjóðir um landhelgina. Hver hefur þá skoðun? Ég hef ekki heyrt þeirri skoðun lýst af neinum, að við þurfum að semja við aðrar þjóðir. Alþ. sjálft hefur ákveðið, að rétt væri að afla viðurkenningar annarra þjóða á rétti okkar. Og hvernig er það hægt? Er hægt að afla viðurkenningar á rétti, eins og Alþ. hefur falið íslenzkum stjórnvöldum, nema með því að leita einhvers konar samkomulags, leita til einnar þjóðar eða fleiri, fá þá viðurkenningu í alþjóðasamþykktum eða í niðurstöðum alþjóðadómstóla? Ég álít, að það sé ekki hægt að afla viðurkenningar með öðrum hætti, eins og Alþ. hefur falið okkur. Hitt er svo annað, að það er hægt að afla viðurkenningarinnar óbeint með því að notfæra sér einhliða rétt til útfærslu og láta þá ráðast, að aðrar þjóðir láti gott heita og viðurkenni í verki það, sem við höfum gert. Og það er opin leið fyrir okkur, hvenær sem við teljum, að það sé hagkvæmt og rétt hjá okkur, að fara þá leið.

Hv. 4. þm. Austf. sagði, að risaveldin berðust af miklu kappi fyrir því, að hámark landhelgi skyldi vera 12 sjómílur. Og ég held, að hann hafi nú sagt, að sérstaklega hefðu farið erindrekar frá Bandaríkjunum milli þjóða til þess að reyna að vinna þessum málstað stuðning. Það er alveg augljóst, að þessi svokölluðu risaveldi, Sovétríkin og Bandaríkin, og svo kannske einhver önnur stórveldi, sem ekki er e.t.v. hægt að kalla risaveldi, gera feikilega mikinn mun á landhelgi, almennri lögsögu, „jurisdietion“, og fiskveiðilögsögu. Í þeirra augum er þetta algerlega sitt hvað. Og mér er kunnugt um það, að viðhorf þjóðanna nú á undirbúningsfundinum í Genf, hinna 86 þjóða, sem eru að undirbúa hafréttarráðstefnuna, eru allt öðruvísi heldur en viðhorfið var 1958 og 1960 og þau eru miklu nær okkar málstað, einmitt að strandríkið hafi rétt til að hagnýta sér fiskveiðarnar á sínu eigin landgrunni sjálft. Ég tel, að staða okkar í landhelgismálinu að því leyti að eignast óskoraðan rétt yfir fiskveiðum á landgrunninu, sem ekki er vefengdur af öðrum, hafi aldrei verið sterkari en nú, og ef við högum okkar ráði rétt, muni það ekki skipta nema misserum, að þessi réttur verði viðurkenndur á alþjóðlegum vettvangi.

Það er rétt, að risaveldin vildu hafa hafréttarráðstefnuna þrönga, að hún fjallaði aðallega um hafsbotninn, hagnýtingu hans og þá kannske að reyna að festa landhelgina við 12 mílur, fiskveiðilandhelgi og annað. Ég skal ekki segja um það. En við Íslendingar og fulltrúar okkar hjá Sameinuðu þjóðunum með öðrum þjóðum börðumst mjög hart gegn þessu og vildum ekki taka þátt í þessari ráðstefnu, nema hún væri haldin á víðum grundvelli. Í okkar augum væri aðalatriðið, að fiskveiðilandhelgin yrði tekin til meðferðar og réttur strandríkisins. Málstaður okkar og þeirra, sem með okkur voru, sigraði, og till. var þannig samþykkt hjá Sameinuðu þjóðunum á þennan hátt með atkv. allra þjóðanna nema sjö Austur-Evrópuríkja. Það fær ekki staðizt að mínum dómi, að öll stórveldin, eins og orðað var, séu andvíg þeirri skoðun, sem við berjumst nú fyrir um fiskveiðilandhelgi, íslenzka fiskveiðilandhelgi, og ekki heldur, að öll Evrópuríkin séu á móti okkur. Þetta vil ég ekki, að sé sagt hér í þinginu, en um þetta verður hver auðvitað að hafa sínar skoðanir hér í þingsölunum, og það reynir á það í framtíðinni, hverjir hafa rétt fyrir sér. En ég vil ekki, að það komi fram hér á hinu háa Alþingi vantrú á möguleika okkar til þess að afla okkur viðurkenningar á rétti okkar, eins og Alþingi fól stjórnvöldum, sem með þessi mál fara, að gera 5. maí 1959.

Ef það sýnir sig, að hér sé orðin óeðlileg ásókn á fiskimiðin, þá teldi ég rétt að taka ákvörðun um útfærslu þegar í stað. Það er það sama, sem kom fram í máli mínu hér í útvarpsumr. um landhelgismálið, þegar ég sagði eitthvað á þá leið, að í afstöðu okkar stjórnarsinna fælist ekki, að ekki kynni að teljast ráðlegt að færa út fiskveiðilögsöguna áður en hafréttarráðstefna Sameinuðu þjóðanna kemur saman 1973 eða fyrir þann tíma, ef ráðstefnunni yrði frestað. Þess vegna er ekki réttur skilningur á okkar afstöðu, að við viljum slá öllu á frest fram yfir hafréttarráðstefnu, sem e.t.v. verður haldin 1973, en e.t.v. miklu síðar. Þetta vil ég leiðrétta.

Herra forseti. Ég skal ekki hafa mál mitt lengra. Því miður höfum við ekki getað orðið sammála um eina og sömu till. nú að þessu sinni, en ég lýk máli mínu með því að leggja áherzlu á, að okkur ber miklu minna á milli en sumir vilja vera láta og okkur ber í raun og veru efnislega það lítið á milli, að okkur hefði ekki átt að verða skotaskuld úr því að sameinast hér á þinginu um eina till. Og það er rétt, og á það legg ég áherzlu, að umheimurinn fái líka að vita það, að við erum fyrst og fremst að deila hér um aðferðir, en ekki efni málsins.23