06.04.1971
Sameinað þing: 42. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 167 í D-deild Alþingistíðinda. (3656)

295. mál, réttindi Íslendinga á hafinu umhverfis landið

Frsm. minni hl. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Það eru nokkrar setningar eða aths. út af því, sem hæstv. forsrh. sagði. Við afhentum fulltrúum stjórnarliðsins í utanrmn. till. okkar um þjóðaratkvgr. á laugardaginn, til þess að stjórnin og hennar menn gætu — þótt ekki yrði úr fundi þá í utanrmn. — skoðað þessa uppástungu yfir helgina. Þetta vil ég taka fram út af því, sem hæstv. forsrh. sagði, því að hann tók þannig til orða, að honum hefði borizt þetta til eyrna. En þetta gerðist á þann hátt, að við afhentum þeim fulltrúum úr utanrmn. frá stjórnarflokkunum, sem mættu á laugardagsmorguninn, þessa uppástungu. til skoðunar yfir helgina. En síðan fór nú þannig því miður, að stjórnarflokkarnir gátu ekki á þetta fallizt, og ég greindi frá því, að við teldum það ekki hafa þýðingu að flytja þessa till. á hv. Alþ., þar sem svo afdráttarlaust hefði verið tekin afstaða í utanrmn. En þetta er ekki vegna þess, að við höfum breytt um skoðun. Þvert á móti erum við eindregið þeirrar skoðunar, að það hefði verið skynsamlegt og heppilegt að láta fara fram þjóðaratkvgr. um till. báðar, vegna þess að þá hefði verið hægt að skilja þetta mál út úr þeim almennu, pólitísku málum og fá úr því skorið, hvort þjóðin vildi leggja út í útfærslu strax eða bíða. Það getur orðið æði örlagaríkt, hvor leiðin verður farin. Menn tala um aðferðamun, og það á rétt á sér, þó að þetta liggi æði mikið dýpra, eins og ég kem að á eftir. Þessi aðferðamunur getur orðið æði örlagaríkur, eins og við höfum verið að reyna að færa rök fyrir. Það væri of mikil áhætta í því að bíða. En ég skal ekki endurtaka hér allt það, sem ég hef áður sagt eða aðrir um það, því að ég tel það ekki viðeigandi, af því að við erum auðvitað í tímaskorti í sambandi við þetta stórmál eins og annað.

Ég sagði, að við vildum, að útfærsluleiðin yrði ákveðin, en kvótakerfinu hafnað, og ég var að benda á, að í þeirri þáltill., sem liggur fyrir frá stjórninni, er engin afstaða tekin til þessa. Og ég endurtek það, engin afstaða tekin til þess, hvort það eigi að færa út landhelgina eða hvort það skuli ganga inn á svokallaða kvótaleið eða það, sem kallað hefur verið með óljósum orðum forgangsréttur strandríkis á landgrunninu. Það er nefnilega sitt hvað að áskilja sér rétt í lagasetningu heima fyrir og að notfæra sér þann rétt. Það er munur á því að setja landgrunnslög, eins og við höfum gert í tvígang, og hinu að færa út landhelgina. Það þýðir ekkert að vera að reyna að hræra þetta í graut, þannig að menn skilji ekki, að hér er um tvennt ólíkt að ræða.

Það er ekki til neins að vera að reyna að komast fram hjá því, að á undanförnum árum hefur allt löðrað í bollaleggingum um að ganga inn á kvótakerfi með útlendingum á okkar eigin landgrunni eða einhvers konar forgangsréttarsamning við aðrar þjóðir um að við hefðum einhvers konar forgangsrétt, ekki einkarétt, heldur forgangsrétt á landgrunninu, takmarkaðan þó. Fram hjá því verður ekki komizt, að hæstv. ríkisstj. hefur í sinni túlkun á undanförnum árum talið þessar leiðir báðar samrýmast landgrunnslögunum og þá vitanlega einnig þeirri löggjöf, sem hún gerir ráð fyrir, að verði sett, ef þessi þáltill. er samþ.

Ég tel þýðingarmikið, að menn skilji meginkjarnann í þessum málum. En hann er sem sé þessi: Það er hægt að setja landgrunnslög, en þá er spurningin: Hvernig á að framkvæma þessi lög? Og það er einmitt þetta, sem er meginatriðið, að í þáltill. stjórnarandstæðinga er skýrt og skorinort ákvarðað af Alþ. að færa út landhelgina.

Við þurfum engin ný lög til þess að færa út landhelgina. Við getum gert það á grundvelli þeirra laga, sem fyrir eru.

Í þáltill. ríkisstj. er ekki, þó að leitað sé með logandi ljósi, nein ákvörðun um að velja á milli kvótastefnu, forgangsréttarstefnu eða útfærslustefnu í sjálfri landhelginni. Hitt er annað mál, að hæstv. forsrh. segir hér núna í ræðu sinni, að kvótareglan komi ekki til greina. En ég spyr: Ef það er svo fortakslaust, að þeir telji kvótasamning ekki koma til greina á landgrunninu, hvers vegna bæta þeir því þá ekki inn í sína þáltill. Ég skora á hæstv. forsrh. að gera það. Ég skora á hann að bæta því inn í þáltill., sem hann sagði hér áðan, að ekki komi til greina önnur framkvæmd landgrunnslaganna en útfærsla á landhelginni. Ef hæstv. forsrh. vildi gangast fyrir því að bæta þessu inn í þáltill., þá batnar þáltill., en hún verður auðvitað samt ekki fullnægjandi fyrir þá, sem vilja taka strax ákvörðun um útfærsluna. En ég hygg, að æði mörgum Íslendingum mundi létta fyrir brjósti, ef stjórnarflokkarnir bættu þessu inn í till. sína. Ég vil því beina því til hæstv. forsrh. að gera þetta, því að það mundi a.m.k. vera mikill áfangi á þeirri leið að færa menn saman í landhelgismálinu. Það ríkir mjög mikil tortryggni einmitt í sambandi við þetta mál og þýðir ekkert að vera að halda því leyndu eða þykjast ekki sjá það. Það má vel vera, að sú tortryggni eigi sér ekki eins ríka ástæðu og sumir halda, en það mundi skýra málið afar mikið og bæta það, ef þessu væri bætt inn í till. stjórnarinnar. Sem sé, að hún legði til, að Alþ. samþykkti nú að færa út landhelgina, t.d. í 50 mílur, þó að hún vildi fresta því. Það mundi ekki eyðast allur ágreiningur við stjórnarandstöðuna með þessu, en það mundi mörgum létta fyrir brjósti, ef hæstv. ríkisstj. vildi gera þetta.

Hæstv. ráðh. sagði, að ef þær spár, sem sumir hefðu uppi um stórsókn erlendra veiðiskipa á Íslandsmið, rættust, þá væri kominn tími til þess að bregðast við og færa út landhelgina fyrirvaralaust. Hæstv. ríkisstj. virðist sem sé vanta sannfæringu fyrir því, að það sé þörf á því fyrir Íslendinga að færa út landhelgina. Þarna greinir hæstv. ríkisstj. mjög á við stjórnarandstöðuna, því að við teljum ástandið nú þegar vera þannig, að það sé rík þörf á því að færa út landhelgina. Og eins og ég sagði áðan sem frsm. minni hl., þá er það mjög þýðingarmikið að gera sér grein fyrir, hve það er óendanlega miklu sterkara fyrir okkur að færa út, áður en þessir stórflotar eru komnir hér inn í landhelgina. Það er betra að byrgja þannig brunninn, ef hægt væri, áður en barnið er dottið ofan í. Ég hygg, að það sé ólíkt léttari sókn fyrir okkur að færa út nú en eftir að slíkt hefði skeð. Og svo þetta: Ef okkur auðnaðist að tilkynna það núna, að við værum ákveðin í því að færa út landhelgina eftir tiltekinn tíma, þá hafa þeir, sem ætla að senda hingað sína flota, enga afsökun. Þeir geta þá ekki sagt eftir á, að þeim hafi verið óljóst, hvað við ætluðum að gera. Það hafi fyrst komið í Ijós, þegar þeir voru komnir með skipin sín eða jafnvel verið búnir að byggja slíkan flota. Hversu mundi það ekki styrkja okkur í afstöðunni út á við gagnvart þessum þjóðum, ef við gerðum þetta öllum ljóst nú? Þar með væri það augljóst orðið, að þeir byggðu sína skipaflota þvert ofan í þessa yfirlýsingu. Eigum við að hafa þann háttinn á að bíða eftir því, að þessir flotar séu komnir hér inn á miðin? Getur nokkur efazt um það, eins og ástatt er um fiskveiðar yfir höfuð í heiminum, að þessir flotar komi? Getur nokkur efazt um slíkt? Það skil ég ekki. En það mundi stórkostlega veikja okkar stöðu að bíða eftir því, að sú flóðbylgja félli inn að ströndum landsins.

Eitt vil ég segja enn út af þessu, sem hæstv. ráðh. segir. Það verður lítið úr þeim ásökunum, sem komið hafa úr herbúðum hæstv. ríkisstj., að það sé siðlaus aðferð að færa út fyrir ráðstefnuna, þegar nú kemur í ljós, að þeir geta, að því er þeir segja sjálfir, hugsað sér slíka aðferð, ef það væru fleiri útlend skip á landgrunninu. Þeir geta sem sé hugsað sér þessa aðferð, sem við stingum upp á, ef fleiri útlend skip væru á landgrunninu. Það er náttúrlega æði þýðingarmikið atriði í þeim málflutningi, sem verður á næstunni, að þannig er talað af hæstv. ríkisstj.

Um brezka samninginn skal ég vera stuttorður. Hæstv. ráðh. sagði svipað og hann sagði í útvarpsumr. um brezka samninginn: Hvernig getur það verið réttindaafsal að bjóðast til þess að eiga mál undir dómi? Svona spyr hæstv. ráðh. Hann álítur, að þetta hljóti að skera alveg úr, að spyrja þessarar spurningar. Þá hljóti allir að sjá, að það sé ekkert réttindaafsal í því að vera bundinn til þess að fara með útfærsluna fyrir Haagdóminn. Það mætti kannske spyrja svona, ef hér væri um dóm að ræða, sem styddist við lög. En hæstv. ráðh. veit það eins vel og ég, að hér er ekki um neinn venjulegan dómstól að ræða, sem styðst við löggjöf. Það væri ekkert réttindaafsal í því t.d. að segja hér heima fyrir: ég skal eiga þetta eða hitt undir dómstólunum, vegna þess að við höfum lög, sem dómstólarnir dæma eftir, en þessi Haag-dómur er ekki dómstóll í þessum skilningi. Þess vegna er það vægast sagt mjög óviðeigandi af hæstv. ráðh. að setja upp svona spurningu. Hann veit sem sé, að Haag-dómurinn er allt annars eðlis en dómstólar, sem við búum við og dæma eftir löggjöfinni. Þessi dómur er í rauninni gerðardómur í eðli sínu. Hann hefur engin gildandi lög til þess að dæma eftir, og því er nánast hreinlega farið eftir persónulegu mati dómaranna á því, hvernig ástatt sé um þessi málefni. Samt kemur hæstv. ráðh. og segir, að það sé ekkert réttindaafsal fyrir þjóð að skjóta máli sínu undir slíkan gerðardóm án þess að hafa hugmynd um, hvað í vændum gæti verið og vitandi, að það eru engar reglur til þess að dæma eftir, engin lög. Auðvitað er slíkt hreinlega réttindaafsal, og það verður að viðurkenna. Hitt er svo annað mál, hvernig menn ætla að komast hjá því, að málefni okkar, landhelgismálið, fari fyrir þennan dóm. Um það höfum við í minni hl., sem stöndum að þáltill. varðandi landhelgismálið, okkar áætlanir, sem koma fram í þeirri þáltill., og við höfum gert grein fyrir okkar aðferð, og ég skal ekki endurtaka það hér. En ég hef ekki enn þá heyrt, hvernig hæstv. ríkisstj. ætlar að komast fram hjá þessum gerðardómi. Það er sannarlega ekki neinn dómstóll, sem þar er um að ræða.