28.01.1971
Neðri deild: 40. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 257 í D-deild Alþingistíðinda. (3698)

16. mál, mengun frá álbræðslunni í Straumi

Magnús Kjartansson:

Herra forseti. Nú fer að síga á síðari hlutann af þessu þinghaldi okkar hér í vetur, og ef mál, sem hér hafa verið flutt, eiga að fá afgreiðslu á þessu þingi, þurfa þau að berast frá nefndum næstu vikurnar. Ég vil hér minna á mál, sem ég flutti ásamt hv. þm. Geir Gunnarssyni mjög snemma á þessu þingi. Það var till. um ráðstafanir vegna mengunar frá álbræðslu í Straumsvík. Við fluttum till. um þetta mál, sem var 16. mál þingsins, og till. var útbýtt 13. okt. Hún var rædd hér í þessari hv. d. í tvo daga, en síðan var henni vísað til hv. iðnn. 5. nóv. s.l. Ég forvitnaðist um það áðan, hvað iðnn. hefði gert í þessu máli, og það kom í ljós, að hún hafði alls ekki tekið það til umr., þó að liðnir séu nærri þrír mánuðir síðan n. fékk það. Raunar kom það einnig í ljós af fundargerðabók iðnn., að hún hefur aðeins haldið þrjá fundi síðan hún var kjörin, einn fund til þess að fullnægja því formsatriði að kjósa formann, en síðan fundi 9. nóv. og 26. nóv. og svo ekki söguna meir. Samt liggja fyrir þeirri n. mjög stór mál fyrir utan það, sem ég hef þegar nefnt, t.d. till. um olíuhreinsunarstöð á Íslandi og till. um þurrkví í Reykjavík. Ég vil beina því mjög eindregið til hæstv. forseta, að hann beiti sér fyrir því, að nefndir þessarar hv. d. fjalli á eðlilegan hátt um þau mál, sem fyrir þær hafa verið lögð, því að ég tel það vera skyldu Alþ. og þd. að taka afstöðu til þeirra mála, sem þm. flytja. Það er bæði skylda við þm. og eins skylda við almenning í landinu. Og ég vil beina því mjög eindregið til hæstv. forseta, að hann beiti sér fyrir því, að nefndir hraði störfum, eftir því sem kostur er.